Fréttablaðið - 29.07.2010, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 29.07.2010, Blaðsíða 40
28 29. júlí 2010 FIMMTUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman BAKÞANKAR Ragnheiðar Tryggva- dóttur Sumarfrísins er alltaf beðið með eft-irvæntingu. Loksins tekur við sam- fellt frí, þar sem engar vekjaraklukk- ur né áætlanir ráða ríkjum og frelsi til að slæpast er gefið. Oft á líka að nota sumarfríið til að koma ýmsu í verk sem hefur þurft að bíða. Mála stigaganginn, flísaleggja eldhúsið, fúaverja pallinn eða taka bílinn almennilega í gegn. Ef veðr- ið er leiðinlegt á að nota tímann til að lesa bækur eða taka saumavélina fram. Svo á auðvitað að skreppa eitthvað, tjalda úti, ganga á fjöll, heimsækja fólk, grilla, hjóla, borða ís. Þessir dagar eiga svo sannarlega ekki að fara til spillis. FYRSTU sumarfríin eftir að námi lauk einkenndust einmitt af þessu. Ilmandi pylsurnar brögðuðust aldrei betur en beint af einnota grillinu og þá fylgdi gjarnan einn kaldur með. Tjaldað í laut, sofið út, flatmag- að í sólinni frameftir degi þar til nefið fór að flagna og þá opnaður annar kald- ur. ÞESSI sumarfrí heyra reyndar sögunni til. Ég hef auðvitað ekki stillt vekjara- klukku í fjögur ár hvort sem það var vinnudagur eða frí og því hugarórar einir að ætla sér að sofa út í sumarfríinu. Alla daga er ræs klukkan 6.30 og við tekur soðning á hafragrjónum og önnur morgunverk sem tilheyra lífi barnafjölskyldna. Ólíkt virkum vinnuvikum lýkur verkunum ekki klukkan 9 þegar fjölskyldumeðlimir halda til vinnu ogí daggæslu. Nú er frí og því er samfelld dagskrá sem linnir ekki fyrr en gengið var til hvílu að kveldi. SLÆPINGURINN sem ég hafði beðið með óþreyju er enginn og rólyndis kaffi- húsaferðirnar við lestur blaða og bóka yfir kaffibolla fór fyrir lítið. Saumavélin lúrir óhreyfð inni í skáp sem og málning- arföturnar sem ég ætlaði á stigaganginn. Ekkert fjall hefur verið gengið né tjald- að í neinni laut. Sólskinsstundirnar hafa farið framhjá mér þar sem ég sný andliti ávallt til jarðar og sólbrenn á hnakkanum þar sem ég smyr sólarvörn á litla leggi, kembi gras í leit að snuðum, ýti rólum, ýti barnakerrum, byggi sandkastala, reima skó, týni upp leikföng. Þá daga sem ekki viðrar til sandkassaleikja taka við enda- lausir matmálstímar og tiltekt þar sem allir eru heima allan daginn draslandi til, sísvangir. ÆTLI ég bíði ekki bara elliáranna, þegar ég get sofið alla daga, grillað og borðað ís og ef ekki gengið fjöll, þá dólað mér á göngugrindinnni eftir einum köldum. Sumarsins ljúfa líf Nei, ekki þessa happaþrennu! Þessi fimmtu frá vinstri, takk! Takk fyrir eiginhand- aráritunina! Fæ ég mynd af okkur saman? Sjálfsagt! Pondus, getur þú? Ókei, segið síííííís! Hey! hey! Hey! Kallinn bara með grúppíur! Góður! Hvað er þetta? Osta- popp? Þú ert svo sæt í dag, Sara. Ég hef ekki augun af þér. Takk. Þetta var sætt af honum. En var þetta bara eitt- hvað sem hann sagði? Meinti hann þetta í alvöru? Það er erfitt að skilja stráka! Fyrst að við getum ekki ákveðið hver fær síðustu kökuna verðum við að kjósa. Allir sem vilja að ég fá hana segið „á“. Á! Á! Lýðræðið gengur sinn gang!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.