Fréttablaðið - 29.07.2010, Page 40
28 29. júlí 2010 FIMMTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggva-
dóttur
Sumarfrísins er alltaf beðið með eft-irvæntingu. Loksins tekur við sam-
fellt frí, þar sem engar vekjaraklukk-
ur né áætlanir ráða ríkjum og frelsi til
að slæpast er gefið. Oft á líka að nota
sumarfríið til að koma ýmsu í verk sem
hefur þurft að bíða. Mála stigaganginn,
flísaleggja eldhúsið, fúaverja pallinn eða
taka bílinn almennilega í gegn. Ef veðr-
ið er leiðinlegt á að nota tímann til að
lesa bækur eða taka saumavélina fram.
Svo á auðvitað að skreppa eitthvað, tjalda
úti, ganga á fjöll, heimsækja fólk, grilla,
hjóla, borða ís. Þessir dagar eiga svo
sannarlega ekki að fara til spillis.
FYRSTU sumarfríin eftir að námi
lauk einkenndust einmitt af þessu.
Ilmandi pylsurnar brögðuðust aldrei
betur en beint af einnota grillinu og
þá fylgdi gjarnan einn kaldur með.
Tjaldað í laut, sofið út, flatmag-
að í sólinni frameftir degi
þar til nefið fór að flagna
og þá opnaður annar kald-
ur.
ÞESSI sumarfrí heyra
reyndar sögunni til. Ég hef
auðvitað ekki stillt vekjara-
klukku í fjögur ár hvort sem
það var vinnudagur eða frí
og því hugarórar einir að ætla
sér að sofa út í sumarfríinu. Alla daga er
ræs klukkan 6.30 og við tekur soðning
á hafragrjónum og önnur morgunverk
sem tilheyra lífi barnafjölskyldna. Ólíkt
virkum vinnuvikum lýkur verkunum
ekki klukkan 9 þegar fjölskyldumeðlimir
halda til vinnu ogí daggæslu. Nú er frí og
því er samfelld dagskrá sem linnir ekki
fyrr en gengið var til hvílu að kveldi.
SLÆPINGURINN sem ég hafði beðið
með óþreyju er enginn og rólyndis kaffi-
húsaferðirnar við lestur blaða og bóka
yfir kaffibolla fór fyrir lítið. Saumavélin
lúrir óhreyfð inni í skáp sem og málning-
arföturnar sem ég ætlaði á stigaganginn.
Ekkert fjall hefur verið gengið né tjald-
að í neinni laut. Sólskinsstundirnar hafa
farið framhjá mér þar sem ég sný andliti
ávallt til jarðar og sólbrenn á hnakkanum
þar sem ég smyr sólarvörn á litla leggi,
kembi gras í leit að snuðum, ýti rólum, ýti
barnakerrum, byggi sandkastala, reima
skó, týni upp leikföng. Þá daga sem ekki
viðrar til sandkassaleikja taka við enda-
lausir matmálstímar og tiltekt þar sem
allir eru heima allan daginn draslandi til,
sísvangir.
ÆTLI ég bíði ekki bara elliáranna, þegar
ég get sofið alla daga, grillað og borðað
ís og ef ekki gengið fjöll, þá dólað mér á
göngugrindinnni eftir einum köldum.
Sumarsins ljúfa líf
Nei, ekki þessa
happaþrennu!
Þessi fimmtu frá
vinstri, takk!
Takk fyrir
eiginhand-
aráritunina!
Fæ ég mynd
af okkur
saman?
Sjálfsagt!
Pondus,
getur þú?
Ókei, segið
síííííís!
Hey! hey!
Hey! Kallinn
bara með
grúppíur!
Góður!
Hvað er
þetta?
Osta-
popp?
Þú ert svo
sæt í dag,
Sara. Ég hef
ekki augun
af þér.
Takk.
Þetta var sætt af
honum.
En var þetta bara eitt-
hvað sem hann sagði?
Meinti hann þetta í
alvöru?
Það er erfitt að
skilja stráka!
Fyrst að við getum ekki
ákveðið hver fær síðustu
kökuna verðum við að kjósa.
Allir sem vilja að ég fá
hana segið „á“.
Á!
Á!
Lýðræðið gengur
sinn gang!