Fréttablaðið - 29.07.2010, Blaðsíða 32
29. JÚLÍ 2010 FIMMTUDAGUR
Icepharma hf | Lynghálsi 13 | 110 Reykjavík | Sími 540 8000 | www.icepharma.is
C-vítamínríkur sólberjasafi
Ribena
Sólberjadrykkurinn Ribena hefur
verið á markaði í meira en sextíu
ár. Hann varð til í kringum seinni
heimsstyrjöldina þegar C-vítamíns-
skortur hrjáði hermenn.
„Á herskipunum og kafbátun-
um þurftu hermennirnir að vera
með matvæli með sér sem myndu
ekki eyðileggjast því C-vítamín er
oft mjög óstöðugt,“ segir Björg Dan
Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri
heilsu- og neytendasviðs Icepharma.
„C-vítamín í sólberjum er stöðugra
en í öðrum sítrusávöxtum.“
Að sögn Bjargar fór breska
stjórnin fram á það við matvæla-
framleiðendur eftir fyrri heims-
styrjöldina að þeir þróuðu drykk
sem myndi uppfylla ríka þörf al-
mennings fyrir C-vítamín. „Þetta
átti að vera matvara með stöðugt
og mikið C-vítamín en jafnframt
þannig að þetta væri góð matvara.“
H.W. Company sýndi þessu verk-
efni mikinn áhuga og setti á markað
sólberjasaft undir nafninu Ribena.
„Þá mátti blanda bæði vatni og
mjólk í þetta,“ upplýsir Björg og
bætir við að nafnið Ribena komi frá
latneska heitinu fyrir sólber, Ribes
negrum.
„Velgengni Ribena er vegna þess
hvernig berin eru meðhöndluð.
Það eru svo mörg fersk ber notuð
í hverja flösku,“ útskýrir Björg og
segir 464 sólber í hverri flösku.
„Árið 1992 var Ribena light mark-
aðssett. Munurinn á því og venju-
legu Ribena er að í Ribena light er
hvort tveggja notað sætuefni og
sykur.“
C-vítamínskortur hrjáði hermenn
Björg segir að innihald Ribena hafi
breyst 1995 og síðan fást fleiri lítrar úr
hverri flösku. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sumarlegar Ribena-uppskriftir
M
YN
D
IR/G
ESTG
JA
FIN
N
Gott er að hnoða Ribena í
marsípan og flórsykur.
Ribena er
gott út á
svalandi ís.
Hjartakökur með
marsípani
10-12 stk.
60 g súkkulaði
1 1/4 dl vatn
2 msk. kakóduft
100 g smjör, mjúkt
70 g púðursykur
130 g sykur
2 egg
100 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
Hitið ofninn í 175°C. Brjótið súkkul-
aðið í skál, sjóðið vatnið og hellið
því yfir súkkulaðið. Hrærið vel í þar
til súkkulaðið er uppleyst og bætið
kakódufti út í. Hrærið smjör, púð-
ursykur og sykur vel saman í ann-
arri skál. Bætið eggjunum út í,
fyrst öðru svo hinu og hrærið því
næst hveiti og lyftiduft saman við.
Hellið súkkulaðiblöndunni út í og
blandið vel saman. Hellið deiginu í
smjörpappírsklætt form, 20x30 cm,
og bakið í 25 mín. Látið kólna ör-
lítið og stingið úr hjörtu með smá-
kökuformi.
Ofan á
250 g hrámarsípan
2 msk. Ribena-sólberjasafi
3-4 msk. flórsykur
Rauður matarlitur
Rósablöð
Hnoðið marsípanið með Ribena
og flórsykri. Bætið örlitlu af rauð-
um matarlit út í og hnoðið vel
saman. Takið 1/3 hluta af deiginu
frá og litið hann með örlítið meiri
matarlit (hugsanlega þarf að bæta
við meiri flórsykri). Fletjið út báðar
marsípantegundirnar og stingið
út mismunandi stór hjörtu. Leggið
marsípanhjörtun ofan á kökurnar
og dreifið rósablöðum í kring.
Ís og ávextir
fyrir 4
1/4 vatnsmelóna
1/2 kantalópumelóna
100 g rifsber
1 l vanilluís
1 dl Ribena-saft
Skerið vatnsmelónu og kantalópumelónu í bita
og setjið í litlar skálar ásamt rifsberjum og ís. Hellið
Ribena-saft yfir.
Þeir sem ekki ætla að vera á faraldsfæti um helgina geta skemmt sér í eldhúsinu heima. Hægt er að
leika sér með drykkinn Ribena á ýmsan hátt og reiða fram á margvíslega vegu.