Fréttablaðið - 29.07.2010, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 29.07.2010, Blaðsíða 4
4 29. júlí 2010 FIMMTUDAGUR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is GENGIÐ 28.07.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 200,1274 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 120,68 121,26 188,01 188,93 156,74 157,62 21,03 21,154 19,557 19,673 16,483 16,579 1,3737 1,3817 182,72 183,8 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR Sprengfull búð af frábærum tilboðum! SUMAR- MARKAÐUR ellingsen.is ALLT A Ð 70% AFSLÁ TTUR REYKJAVÍK AKUREYRI VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 31° 21° 23° 22° 21° 16° 22° 22° 23° 22° 31° 32° 36° 24° 22° 18° 22° Á MORGUN 3-8 m/s. LAUGARDAGUR Hæg breytileg átt. 15 17 16 16 14 14 14 12 18 13 13 10 7 7 4 3 2 7 2 4 3 5 16 18 18 17 16 16 16 13 14 14 VERSLUNAR- MANNAHELGIN Línur eru að skýrast fyrir helgina og það er nokkuð ljóst að veður verður með hinu besta móti í fl estum landshlut- um að minnsta kosti fram á mánu- dag. Hægur vindur og hlýindi munu einkenna veðrið en erfi ðara er að segja til um hvar bjartast verður. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður HEILBRIGÐISMÁL „Mér er alveg sama þótt Actavis sé stærsta lyfjafyrir- tæki í heimi, þeir eiga ekkert að fá að einoka Lyfjastofnun Íslands,“ segir Olgeir Olgeirsson, forstjóri Portfarma, næststærsta samheita- lyfjafyrirtækisins á Íslandi. Olgeir segir Lyfjastofnun svo fámenna að það hamli samkeppni, vegna þess að stofnunin hafi nær eingöngu tök á að afgreiða leyfi fyrir lyf frá Actavis sem ætluð séu á alþjóðamarkað. Slíkar umsóknir fá forgang vegna þess að séu þær ekki afgreiddar innan tilskilins tíma eru lyfin álitin samþykkt. Önnur leyfi, til dæmis innan- landsleyfi ti l handa smærri fyrirtækjum, þurfi því að sitja á hakanum. Olgeir bendir á að í fyrra hafi Lyfjastofnun afgreitt um 690 leyf- isumsóknir, þar af hafi einungis 130 verið fyrir innanlandsmarkað og mikið af þeim hafi verið end- urskráningar. Afgangurinn, mik- ill meirihluti allra umsókna, hafi verið umsóknir Actavis um leyfi til markaðsleyfis í Evrópu. Olgeir segir að þeir hafi ekki fengið eina umsókn um innanlands- leyfi afgreidda hjá stofnuninni. Þeir hafi dregið margar til baka vegna tafa og hætt við aðrar, og séu nú með eina umsókn sem hafi verið til meðferðar hjá stofnuninni í yfir 600 daga. Afgreiðslan á lögum sam- kvæmt ekki að taka meira en 210 daga. Portfarma hefur fengið tvær umsóknir um víðfeðmari markaðs- leyfi samþykktar en tugum hefur verið hafnað. Olgeir segir að vegna þess hve dýrt sé að sækja um markaðsleyfi hafi fyrirtækið alfarið snúið sér að erlendum lyfjastofnunum. Þar fáist leyfin yfirleitt nokkuð vandræða- laust. „Það koma aldrei nein mark- aðsleyfi frá Lyfjastofnun. Maður hendir ekki bara 1,8 milljónum í einhverja hít,“ segir hann, en tekur þó fram að ekki sé bara við Lyfja- stofnun að sakast. Hún sé undir- mönnuð og leyfisdeildina þurfi að styrkja eigi samkeppni að þrífast. Rannveig Gunnarsdóttir, for- stjóri Lyfjastofnunar, segir alls ekki rétt að Lyfjastofnun afgreiði aðallega umsóknir um lyf sem Actavis ætlar á markað erlendis. Stofnunin afgreiði mörg hundruð umsóknir á ári, alls ekki allar frá Actavis, og stór hluti sé fyrir lyf á markað hér, þótt í einhverjum til- fellum eigi einnig að selja þau ann- ars staðar í Evrópu. Lyfjastofn- un hafi hins vegar hvorki fjárráð né sérfræðiþekkingu til að full- meta nema tíu ný samheitalyf á ári, en það þarf að gera þegar þau hafa hvergi verið metin í Evrópu áður. Þetta eigi við um margar af umsóknum Portfarma, og því hafi þær þurft að sitja á hakanum. Það sé því vissulega rétt metið að Lyfjastofnun mætti vera stærri og hafa tök á að sinna fleiri slíkum umsóknum. Það yrði til hagræðis fyrir ríkið, enda borgi fyrirtækin fyrir matið, störf myndu skapast og sérfræðiþekking aukast. stigur@frettabladid.is Segir Lyfjastofnun hamla samkeppni Lyfjaframleiðandi segir Lyfjastofnun hamla samkeppni með því að afgreiða ekki leyfisumsóknir. Stofnunin sé of fámenn og þjónusti aðallega starfsemi Actavis í útlöndum. „Ekki rétt,“ segir Rannveig Gunnarsdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar. RANNVEIG GUNNARSDÓTTIR LYFSALA Forstjóri Portfarma segir engar umsóknir komast að hjá Lyfjastofnun nema þær sem Actavis sendir. Þetta segir forstjóri stofnunarinnar alrangt. FRÉTTABLAÐIÐ / VALLI STJÓRNMÁL Carl Bildt, utanríkis- ráðherra Svíþjóðar, segir líkindi með stöðu Íslendinga í upphafi aðildarvið- ræðna við ESB og stöðu Svía þegar þeir gengu í sam- bandið. Í færslu á heimasíðu Bildts á þriðju- dag segir hann upphaf við- ræðnanna merkilegan dag í sögu Norðurlanda. Hann nefnir að skoðanakannanir bendi til þess að Íslendingar séu neikvæðir í garð ESB en minnir á að það sama hafi gilt um Svía þegar aðildarviðræð- ur þeirra hófust árið 1992. Hann heitir Íslandi stuðningi í viðræðunum og segist vonast eftir því að Íslendingar segi já þegar kosið verður um aðild. - mþl Íslendingar líkir Svíum: Ráðherra fagn- ar viðræðum CARL BILDTESKIFJÖRÐUR Umhverfisstofnun mun óska eftir upplýsingum um hvort rétt hafi verið staðið að málum í tengslum við mengun- arslysið á Eskifirði þegar lönd- unarvatn úr togara blandaðist neysluvatni bæjarbúa fyrr í mán- uðinum. Íbúar Eskifjarðar fengu ekki tilkynningu um atvikið fyrr en tæpri viku eftir að það átti sér stað. Þá hafði blóðvatnið úr togar- anum verið blandað neysluvatni bæjarbúa og hafa misvísandi fréttir borist af áhrifum þess. Mengunarslys í skoðun: Rannsaka mengun í vatni Á ESKIFIRÐI Fyrir skömmu blandaðist löndunarvatn úr togara neysluvatni íbúa á Eskifirði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ORKUMÁL Samtök atvinnulífsins (SA) lýsa undrun sinni á upp- hlaupi innan ríkisstjórnarinnar vegna Magma-málsins. Samtök- in benda á að sænskt dótturfélag Magma Energy hafi full réttindi á Evrópska efnahagssvæðinu og sé lögmætur eigandi HS orku. Í yfirlýsingu frá samtökunum kemur fram að mikilvægt sé að erlendir fjárfestar búi við stöð- ugleika hér á landi og þurfi ekki að vera „skotspónn í innanbúðar- átökum í stjórnarliðinu“. Það hafi Magma Energy þurft að þola. SA segja Ísland þurfa á erlendu fjármagni að halda. Tilviljana- kennd viðbrögð stjórnvalda auki ekki traust þeirra á Íslandi. - bj SA undrandi á Magma-máli: Sænska félagið réttur eigandiÍ vímu undir stýri Maður um tvítugt var handtekinn um þrjúleytið aðfaranótt þriðjudags við Sunnuhlíð á Akureyri grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Að sögn lögreglunnar á Akureyri var ökumaðurinn einn í bílnum. Hann var færður á lögreglustöðina þar sem sýni voru tekin úr honum. LÖGREGLUFRÉTTIR Kannabis á annesjum Lögreglan á Snæfellsnesi fann 28 poka af kannabisefnum við leit í bíl manns á vestanverðu nesinu í gær- morgun. Pokarnir innihéldu samtals um 20 grömm af efnum og er talið að þau hafi verið ætluð til sölu á svæðinu. Í fyrrakvöld fann lögreglan í Borgarfirði 355 grömm af hassi í bíl með aðstoð fíkniefnahunds. ÞÝSKALAND, AP Yfirvöld í Þýska- landi segja að skipuleggjendur Ástargöngunnar hafi brotið gróf- lega gegn öryggisreglum. Skortur á gæslu gæti hafa orðið til þess að 21 lést og yfir fimm hundruð særðust þar um síðustu helgi. Skipuleggjendur göngunnar segjast hafa haft leyfi og áætlun um öryggisgæslu hafi fengið sam- þykki. Borgarstjóranum í Duis- burg, þar sem hátíðin fór fram, hefur verið sakaður um að hafa ekki haft nægilega yfirsýn yfir atburðina. - þeb Stjórnvöld um Ástargönguna: Stjórnendur há- tíðar brugðust VÍSINDI Beinagrind af manneskju með Pagets-sjúkdóminn fannst við fornleifauppgröft á Skriðuklaustri í Fljótsdal í vikunni. Steinunn Kristj- ánsdóttir, fornleifafræðingur og ábyrgðarmaður verkefnisins, segir margt merkilegt hafa komið í ljós við uppgröftinn, en þetta er níunda sumarið sem unnið er við hann. „Við vitum núna að í klaustrinu var starfræktur spítali frá árun- um 1490 til 1550 og þetta er sá elsti sem hefur fundist hér á landi,“ segir hún. „Það var ekki vitað að klaustrin hefðu stundað slíka starf- semi fyrr en við byrjuðum að finna beinagrindir sjúklinga árið 2003.“ Búið er að grafa upp 185 beina- grindur til þessa, en þetta er í fyrsta sinn sem manneskja með Pagets-sjúkdóminn hefur fund- ist, og segir Steinunn að einung- is eitt tilvik hafi áður fundist hér á landi. „Við höfum fundið mörg tilfelli af sárasótt og berklum, en þetta til- vik var ólíkt þar sem sjúkdómurinn veldur ofvexti og afmyndun í bein- um,“ segir hún. Rekstrartími klaust- ursins og spítalans var í kring um sextíu ár og segir Steinunn þann mikla fjölda sem þar hefur dval- ið gefa til kynna að fólk hafi leitað þar hælis víðsvegar að af landinu og jafnvel erlendis frá. - sv Tilfelli af Pagets-sjúkdómi fannst í 500 ára gamalli gröf við Skriðuklaustur: Hafa fundið 185 beinagrindur GRÖFIN Beinagrindin sem ber einkenni Pagets-sjúkdómsins í gröf sinni á Skriðu- klaustri. MYND/STEINUNN KRISTJÁNSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.