Fréttablaðið - 29.07.2010, Síða 12
29. júlí 2010 FIMMTUDAGUR
Aðildarviðræður Íslands
við Evrópusambandið (ESB)
hófust í vikunni. Rætt var
við Dr. Timo Summa af
þessu tilefni en hann fer
fyrir sendinefnd ESB á
Íslandi. Hann býst við erf-
iðum samningaviðræðum
en segir aðildarríkin hafa
skilning á sérstöðu lands-
ins. Erfiðasti hluti ferlis-
ins kunni að verða umræð-
an hér á Íslandi sem honum
þykir stutt á veg komin.
Ísland hóf formlegar aðildarvið-
ræður við ESB á ríkjaráðstefnu
sambandsins á þriðjudag. Á henni
lögðu ESB og ríkisstjórn Íslands
fram greinargerðir um viðræðurn-
ar sem eru fram undan. Fréttablað-
ið spurði Timo Summa að því hvað
tæki við næst. „Nú í haust hefst
samningaferlið með því að farið
verður yfir alla 35 kafla löggjaf-
ar ESB. Við skoðum hvar skilur á
milli íslenskrar löggjafar og ESB-
löggjafar og komumst þannig að
því um hvað þarf að semja,“ segir
Summa og bætir við að Ísland hafi
þegar tekið upp 60 prósent kaflanna
í gegnum EES-samninginn. Senni-
lega verði einfalt að fara í gegnum
þá kafla og því séu það líklega ekki
nema sex kaflar löggjafarinnar sem
virkilega þarf að semja um. Á því
verði byrjað þegar þessi undirbún-
ingsskref hafa verið stigin.
Summa segir hlutverk sendi-
nefndarinnar hér á landi vera að
greiða fyrir þessu ferli. „Við eigum
í daglegum samskiptum við ráðu-
neytin hér og svo stjórnsýsluna í
Brussel. Auk þess höfum við sér-
fræðinga á okkur snærum sem
taka þátt í undirbúningi viðræðn-
anna þótt þeir taki ekki þátt í þeim
sjálfum.“
Erfiðar viðræður fram undan
Summa segist búast við því að
viðræðurnar gætu orðið flóknar.
„Ísland er mjög einstakt og það eru
stór mál til staðar sem erfitt verð-
ur að semja um svo sem sjávarút-
vegsmál, landbúnaðarmál og fleira.
Við höfum vissar reglur í ESB sem
ekki er hægt að breyta en á sama
tíma verðum við að finna leiðir til
að klæðskerasauma sumar þeirra
að íslenskum aðstæðum. Það er til
staðar skilningur á því að Ísland
hafi sérstöðu en það verður engu að
síður áskorun að leysa þessi mál.“
Summa kveðst þó bjartsýnn á að
hægt sé að finna lausnir sem henta
báðum aðilum. „ESB hefur samið
við mjög ólík ríki á undanförnum
árum og í öllum tilfellum hefur tek-
ist að finna ásættanlega lausn fyrir
alla aðila. Eina landið sem hefur að
lokum kosið að ganga ekki í sam-
bandið er Noregur,“ segir Summa.
Samkvæmt minnisblaði sem
Bloomberg-fréttastofan hefur undir
höndum mun ESB leggja áherslu á
það í samningsferlinu að Íslending-
ar standi við Icesave-skuldbinding-
arnar og breyti fiskveiðikerfi sínu.
Spurður um þetta segir Summa:
„Það er ljóst frá ESB séð að íslensk
stjórnvöld verða að fylgja EES-regl-
um. Ég held að það séu hagsmunir
allra aðila og þar eð íslenska ríkis-
stjórnin hefur alla tíð sagt að lögum
verði fylgt, vona ég að þessu máli
verði lokið á næsta ári þegar samn-
ingaviðræðurnar hefjast af alvöru.“
Hann vill ekki setja fram neinar
getgátur um það hvað ESB muni
fara fram á varðandi sjávarútvegs-
mál. „Mikilvægast er að hefja samn-
ingaviðræðurnar um sjávarútveg-
inn. Þá geta samningsaðilar borið
saman skoðanir sínar á þessum
málum og þá fyrst sjáum við hvað
er mögulegt.“
Staðreyndir hafðar að leiðarljósi
Summa segist hafa orðið var við
töluverða andstöðu við ESB á Íslandi
en samkvæmt skoðanakönnunum
hefur stuðningur við aðild minnk-
að töluvert á síðustu misserum. „Frá
því að ég kom hingað hef ég marga
hitt. Margir eru jákvæðir gagnvart
ESB en að sama skapi eru margir
mjög gagnrýnir á sambandið. Við
reynum að hlusta á allar skoðan-
ir og sjá til þess að almenningur
hafi réttar upplýsingar í höndun-
um. Þegar ákvörðun íslensku þjóð-
arinnar liggur svo fyrir þá munum
við virða hana.“ Summa sýnist sem
svo að margir hafi litlar upplýsingar
um ESB og hvað aðild hafi í för með
sér. Hann segir suma jafnvel nota
rangar eða villandi upplýsingar um
sambandið í opinberri umræðu og
segir það þurfa að breytast.
Spurður hvort lítill stuðningur
við aðild Íslands að ESB muni hafa
áhrif á viðræðuferlið segir Summa
svo ekki vera. „Ég held að fólkið í
Brussel og ríkjunum skilji af hverju
andrúmsloftið er svo gagnrýnið. Það
sem við erum svo að vonast eftir er
að Íslendingar komist sem fyrst upp
úr efnahagsvandræðum sínum. Við
höldum að þá muni fólk hafa meira
olnbogarými til að ræða kosti og
galla aðildar. Þá getur það kannski
frekar velt fyrir sér stóru mynd-
inni.“
Summa segir að skoðanakannan-
irnar hér séu nákvæmlega eins og
þær voru í Svíþjóð ári áður en Svíar
gengu inn í ESB. „Í litlum löndum
eru sveiflur í stjórnmálum oft mikl-
ar og því kann almenningsálitið að
snúast aftur.“ Summa segir það taka
þjóðir tíma að útkljá umræðuna um
ESB. Þetta sé tilfinningamál og
því sé það ekki eitt atriði sem ríður
baggamuninn heldur stóra myndin
og stundum sé tímafrekt að ná sjón-
um á henni.
Þýska þingið samþykkti aðildar-
viðræðurnar við Ísland nýverið en
hengdi við ákvörðun sína ályktun
um að Ísland þurfi að hætta hval-
veiðum sínum ætli landið að ganga
í ESB. Fréttablaðið spurði Summa
hvort aðildarríki sambandsins geti
stillt Íslandi einhliða upp við vegg
í málum á borð við þetta. „Ef við
horfum á fyrri aðildarviðræður
sjáum við að sum aðildarríki hafa
sett fram skilyrði eins og þetta. Við
verðum hins vegar að hafa í huga að
þegar ESB ákveður sína stefnu þá
semja öll aðildarríkin um þá stefnu
svo ekkert eitt þeirra getur stjórn-
að svona hlutum einhliða. Stefna
ESB er mótuð með hliðsjón af stað-
reyndum, greiningu stofnana og svo
skoðunum aðildarríkjanna. Einstök
ríki geta því haft upphafleg viðhorf
en það sem skiptir síðan öllu máli
er það sem aðildarríkin ákveða öll
saman.“
Ávinningur Íslands mikill
Til umræðu hefur verið að draga
aðildarumsóknina að ESB til baka
og hefur Sjálfstæðisflokkurinn til
að mynda ályktað í þá veru. Summa
vildi ekki svara því hvernig ESB
myndi taka því ef umsóknin yrði
dregin til baka. Hann segir að rík-
isstjórnin hafi sótt um aðild og sam-
bandið muni því setjast við samn-
ingaborðið af heilum hug. Það sé
Íslendinga að ákveða hvernig haga
skuli umsókninni. Hann hefur hins
vegar litlar áhyggjur af því að sam-
skipti Íslands og ESB kunni að súrna
hafni Íslendingar að lokum aðild í
þjóðaratkvæðagreiðslu. „Með aðild
Íslands að EES og Schengen-samn-
ingunum er landið nú þegar í nánu
samstarfi við ESB og það mun ekki
breytast. Viðræðuferlið mun leiða til
þess að aðilarnir öðlist meiri skiln-
ing hvor á hinum. Ég held því að
það muni hafa jákvæð áhrif á sam-
starfið hvernig sem þjóðaratkvæða-
greiðslan svo fer.“
Summa segist hafa orðið var við
að margir Íslendingar líti til for-
dæmis Noregs sem hefur kosið að
standa utan við ESB. Hann segir
samanburðinn ekki endilega heppi-
legan. „Ísland er ekki Noregur. Ef
þú berð löndin saman þá sérðu fljótt
að þau búa við mjög ólíkar aðstæð-
ur. Tækifæri þeirra og áskoran-
ir eru ólíkar og til að mynda hent-
ar evran ekki Norðmönnum en hún
hentar Íslendingum vel. Ávinningur
Íslands af því ganga í ESB yrði gríð-
arlega mikill til langs tíma séð. Nor-
egur hefur efni á því að standa fyrir
utan en Ísland hefur það trauðla.“
Margir Íslendingar hafa áhyggjur
af því að áhrif Íslands innan sam-
bandsins verði lítil þegar á hólminn
er komið. Summa telur ekki ástæðu
til þess að óttast það. „Lítil lönd
í ESB, á borð við heimaland mitt
Finnland, geta haft mjög mikil áhrif
ef þau eru virk innan sambandsins
og beita sér fyrir þeim málefnum
sem skipta þau máli. Auðvitað hafa
lönd mismikið vægi þegar kemur
til atkvæðagreiðslna en það er nær
aldrei gripið til þeirra. Yfirleitt er
ferlið þannig að ákvörðunum er
frekar slegið á frest ef ekki næst
samstaða um þær en síður kosið
um þær. Ég hef stýrt yfir hundrað
stórum fundum aðildarríkjanna og
á þessum fundum hefur aldrei, ekki
einu sinni, verið kosið um niðurstöð-
una. Ríkin setjast niður, rökræða og
komast að niðurstöðu sem allir geta
sætt sig við.“
Erfiðar viðræður en skiln-
ingur á sérstöðu Íslands
Magnús Þorlákur
Lúðvíksson
magnusl@frettabladid.is
FRÉTTAVIÐTAL: Timo Summa, sendiherra ESB á Íslandi
TIMO SUMMA Finninn veitir sendinefnd ESB á Íslandi forstöðu. Sendinefndin tók til
starfa á Íslandi í upphafi árs og mun starfa hér þar til viðræðuferli Íslands og ESB
lýkur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Dr. Timo Summa er finnskur
hagfræðingur fæddur árið 1948.
Summa er með doktorsgráðu frá
Helsinki School of Economics og
hefur unnið innan Evrópusam-
bandsins frá árinu 1995. Áður var
hann framkvæmdastjóri iðnað-
arfyrirtækis í Finnlandi en hefur
einnig starfað sem hagfræðingur
meðal annars hjá samtökum
iðnrekanda í Finnlandi.
Hver er Timo Summa?
Frídagur verslunarmanna var
fyrst haldinn hátíðlegur í
september 1894 og var hann
ætlaður starfsfólki verslana
á Íslandi. Frídagur verslunar-
manna fellur á mánudag og
því er helgin um mánaðar-
mótin júlí og ágúst löng helgi
og hún er kölluð verslunarmannahelgi.
Þetta er stærsta ferðahelgi ársins þar sem
tugþúsundir Íslendinga leggja land undir fót.
Dagurinn er eftir danskri fyrirmyndi og því gefst
kjörið tækifæri til að fagna frídegi verslunarmanna
með góðu BKI kaffi.
Gættu þess að eiga nóg af bragðgóðu BKI kaffi um
helgina. Það er nauðsynlegt að hressa sig við annað
slagið með rjúkandi bolla af BKI kaffi.
Angan af
kaffi kemur
bragðlauk-
unum af stað
og ilmurinn
segir til um
ríkt bragðið
af BKI kaffi.
Helltu upp
á gott BKI
kaffi.
BKI Classic
Frídagur verslunarmanna er á mánudaginn!
Fagnaðu
frídegi verslunarmanna
með BKI kaffi
Frídagur verslunarmanna er á mánudaginn
Kauptu BKI fyrir
frídag verslunarmanna
BKI Extra
Snöggristað við háan hita.
Þannig næst fram ríkara
kaffibragð við fyrsta sopa
en léttur og mjúkur keimur
fylgir á eftir.
Sérvaldar baunir frá
þekktustu kaffisvæðum
heimsins tryggja hið
mjúka bragð, lokkandi
ilminn og fersklegt
eftirbragðið.