Fréttablaðið - 29.07.2010, Qupperneq 39
FIMMTUDAGUR 29. júlí 2010 27
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Hreinn Eyjólfsson
vélstjóri, Laugarnesvegi 87,
lést á líknardeild Landspítalans þann 24. júlí sl.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudag-
inn 29. júlí kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent
á að láta Heimaþjónustuna Karitas eða líknardeild
Landspítalans í Kópavogi njóta þess.
Jóhanna Hreinsdóttir Benóní Torfi Eggertsson
Steinþór Hreinsson Elín Skarphéðinsdóttir
Guðrún Hreinsdóttir
Gestur Hreinsson Svanhildur Þórsteinsdóttir
Hlynur Hreinsson Erika Martins Carneiro
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra er
auðsýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs föður okkar,
tengdaföður og afa,
Hilmars Sævars
Guðjónssonar
Háseylu 1, Njarðvík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót.
Sólbjörg Hilmarsdóttir Ólafur Sævar Magnússon
Hilmar Þór Hilmarsson
Guðjón Ingi Hilmarsson
Ingi Þór Ólafsson
Aron Smári Ólafsson
Þökkum af alhug hlýjar
kveðjur við fráfall
Tómasar Ragnarssonar.
Þá þökkum við stórum vinahópi Tómasar, Fáki og
kvennadeild Fáks fyrir ómetanlegan stuðning við
fallega og ógleymanlega útför hans. Einnig LH,
dómarafélaginu og knöpum í heiðursverði. Dáð ykkar
gleymist ekki. Starfsfólki Karitas og Líknardeild
Landspítalans í Kópavogi þökkum við einstaka alúð
sem og læknum og starfsliði Landspítalans.
Alfa Regína Jóhannsdóttir,
Ellý Tómasdóttir, Ragnar Tómasson, Rúna Tómasdóttir
og Ragnar Arnórsson.
Svanhildur Steinarrsdóttir og Ólafur Steinarrsson,
Ragna Þóra Ragnarsdóttir, Dagný Ragnarsdóttir og
Arnar Ragnarsson.
Dagný Gísladóttir og Ragnar Tómasson.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Martha Árnadóttir,
Hlíf II, Ísafirði,
sem lést á Heilbrigðisstofnuninni, Ísafjarðarbæ 22. júlí,
verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju föstudaginn
30. júlí kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent
á Krabbameinsfélagið Sigurvon á Ísafirði.
Sigurður Jónsson
Árni Sigurðsson Guðrún Halldórsdóttir
Jón Ólafur Sigurðsson Jóhanna Oddsdóttir
Málfríður Þórunn Sigurðardóttir
Þórhildur Sigrún Sigurðardóttir Guðmundur Hafsteinsson
barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
Við þökkum innilega fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og útför
föður okkar, tengdaföður og afa,
Gylfa Baldurssonar,
heyrnarfræðings, Hátúni 12, Reykjavík.
Arngunnur Ýr Gylfadóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir,
Baldur Gylfason, Yrsa Þöll Gylfadóttir og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug, við andlát
og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Halldórs Friðriks
Nikulássonar,
Álfheimum 54, Rvk.
Lára Guðmundsdóttir
Halldóra Halldórsdóttir
Ragna Halldórsdóttir
Sighvatur Halldórsson Soffía Guttormsdóttir
barnabörn og langafabarn.
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
Ingveldar Óskarsdóttur
Thorsteinson,
sem lést sunnudaginn 20. júní. Sérstakar þakkir færum
við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Skógarbæjar fyrir
elskulega og góða umönnun.
Margrét Fafin Thorsteinson Páll Svavarsson
Steinunn Thorsteinson
Jóhanna Thorsteinson Bergur Bergsson
Anna Björg Thorsteinson Sigursteinn Sævar Einarsson
Birgitta Thorsteinson Magnús G. Benediktsson
Steingrímur Árni Thorsteinson Ásta Kristín Svavarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Guðný Guðmundsdóttir
fiðluleikari og Peter Máté
píanóleikari verða með tón-
leika í Kálfafellsstaðarkirkju
í Suðursveit í dag, 29. júlí, á
Ólafsmessu.
Dagskráin hefst með
helgistund klukkan 14. Fjall-
að verður um sögu kirkjunn-
ar og staðarins og rifjuð upp
gömul saga um mátt Ólafs
helga, en kirkjan var helguð
honum í kaþólskum sið. Síðan
er komið að tónleikunum. Á
efnisskránni eru einleikslög
eftir Bach, vinsæl og þekkt
íslensk lög ásamt sígauna-
og Vínartónlist. Í lokin verð-
ur farið í heimsókn að völvu-
leiði í landi Kálfafellsstaðar
og gömul saga um Völvuna á
Kálfafellsstað og mátt henn-
ar rifjuð upp.
Þórbergssetur stendur
fyrir tónleikum ásamt sókn-
arprestinum á Kálfafells-
stað, Séra Einari G. Jónssyni
og viðburðurinn er einnig
styrktur af Menningarráði
Austurlands.
Heimild: www.rikivatna-
jokuls.is. - gun
Tónlist, útivera og
trú í Suðursveit
TÓNLISTARFÓLKIÐ Guðný Guðmundsdóttir og Peter Máté spila í
kirkjunni á Kálfafellsstað sem þykir hafa góðan hljómburð.
Hópur sjö erlendra sjálf-
boðaliða á vegum SEEDS og
Hjólafærni mun næstu daga
hjóla á Suðurlandsundirlend-
inu. Hópurinn mun hafa við-
komu og nokkra daga dvöl í
Hveragerði, Þorlákshöfn og
Eyrarbakka til þess að ræða
við íþrótta- og tómstunda-
fulltrúa og aðra áhugasama
til þess að setja upp um það
bil tíu kílómetra hjólahring
í nágrenninu.
Á meðan hópurinn dvelur
á hverjum stað geta íbúar og
aðrir komið og fengið hjól-
in sín ástandsskoðuð af dr.
Bæk og aðstoð við að lag-
færa minni háttar vankanta
á hjólinu. Ferðinni lýkur
svo í Alviðru, umhverfis- og
fræðslusetri Landverndar 6.
ágúst þar sem hópurinn mun
sinna umhverfisverkefnum í
landi Landverndar.
Sjálfboðaliðar
á leið um landið
GERT Í GÓÐUM TILGANGI Markmið ferðarinnar er að stuðla að upp-
setningu á tíu kílómetra hjólahring. MYND/ÚR EINKASAFNI
Listakonurnar Inga Ragn-
arsdóttir og Svava Björns-
dóttir opna sýningu á verk-
um sínum í Bryggjusal
Edinborgarhússins á Ísa-
firði á laugardaginn, 31.
júlí klukkan 16. Segja má
að verk þeirra séu skyld þó
að efniviðurinn sé ólíkur.
Myndmál þeirra er af sama
meiði en þær nýta sér rými,
form, efni og liti hvor á sinn
persónulega hátt.
Svava og Inga stund-
uðu báðar höggmynda-
nám í Listaakademíunni í
München í lok áttunda og
byrjun níunda áratugar síð-
ustu aldar. Þar fylgdust þær
náið að og einnig síðar sem
starfandi myndlistarmenn.
Verk eftir þær eru á helstu
listasöfnum landsins og líka
á söfnum í Þýskalandi og
báðar eiga margar sýningar
að baki. Þó hafa þær aldrei
sýnt saman áður. Það er því
spennandi verkefni fyrir
þær að stilla saman strengi
í Bryggjusal Edinborgar-
hússins.
Sýningin er opin alla daga
til 19. ágúst frá klukkan 16 til
18. Verkin á henni eru fyrst
og fremst þrívíddarverk
unnin á þessu ári. - gun
Vinkonurnar
sýna saman
MYNDLISTARKONURNAR Inga Ragnarsdóttir og Svava Björnsdóttir eru
með samsýningu í Edinborgarhúsinu. MYND/ÞORSTEINN J. TÓMASSON