Fréttablaðið - 18.08.2010, Page 34

Fréttablaðið - 18.08.2010, Page 34
26 18. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Íslenska kvennalands- liðið spilar gríðarlega mikil- vægan leik á móti Frökkum á Laugardalsvellinum á Menning- arnótt. Liðið þarf að vinna 3-0 sigur til þess að eiga möguleika á því að vinna riðilinn en sigur gæti reynst liðinu heilladrjúgur í framtíðinni þótt hann myndi ekki duga til þess að liðið kæmist upp úr riðlinum. „Þetta er frábær áskorun og ég held að það dreymi alla leikmenn um að fá að spila svona leiki á heimavelli. Við erum alltaf að mæta þessum sterkustu þjóðum á útivelli eða á hlutlausum velli. Loksins fáum við virkilega sterkt lið hingað heim. Ég held að alla góða leikmenn dreymi um að fá svona áskorun,“ sagði Sigurður Ragnar en íslenska liðið hefur unnið alla níu leikina undir hans stjórn á Laugardalsvelli með markatölunni 43-0. „Okkur hefur bara einu sinni tekist að vinna Frakkland og það var leikurinn sem við pökkuðum í vörn og náðum síðan að skora í restina úr skyndisókn. Franska liðið er með átta leikmenn sem tóku þátt í úrslitaleiknum í Meist- aradeildinni og tvo frábæra leik- menn sem eru að spila í banda- rísku úrvalsdeildinni,“ segir Sigurður Ragnar sem saknar sterkra leikmanna. Ísland þarf að vinna leikinn 3- 0 til að vinna upp 0-2 tap í fyrri leiknum í Frakklandi en Sigurð- ur Ragnar er líka búinn að reikna það út að sigur gæti hjálpað fram- tíðarplönum liðsins. „Sigur gæti mögulega gefið okkur það að við yrðum í fyrsta styrkleikaflokki í drættinum fyrir undankeppni næsta Evrópu- móts. Þá myndum við sleppa við þjóðir eins og Þýskaland, Noreg, Svíþjóð, Danmörku, England og Frakkland. Það er því til mikils að vinna að vinna þennan leik,“ segir Sigurður Ragnar. Hann vonast eftir góðum stuðn- ingi og að landsleikurinn mikil- vægi falli ekki í skuggann af öllu því sem er í gangi í Reykjavík á menningarnótt. „Ég vona að fólk geri sér leið á völlinn á leikinn sem er klukk- an fjögur. Það er svo mikilvægt að við fáum góðan stuðning því við þurfum extra mikla hjálp núna þar sem liðið okkar er aðeins lemstrað og óreyndara en oft áður. Þá er gott að fá klapp þegar maður gerir vel og stuðn- ing frá áhorfendum,“ segir Sig- urður Ragnar sem dreymir um 3-0 sigur og sigur í riðlinum. - óój Sigurður Ragnar Eyjólfsson veit að íslenska landsliðið þarf að eiga stórleik til að vinna Frakka á laugardaginn: Það er allt hægt á Laugardalsvellinum SIGURÐUR RAGNAR EYJÓLFSSON Þjálfari kvennalandsliðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 1. deild karla: KA-Fjarðabyggð 2-2 Steinn Gunnarsson, Daniel Stubbs - Andri Albertsson, Fannar Árnason. Þróttur-Þór 1-1 Dusan Ivkovic - Atli Sigurjónsson. ÍA-Víkingur R. 1-1 sjálfsmark - Daníel Hjaltason. Grótta-Leiknir 0-0 HK-Njarðvík 4-1 Hólmbert Friðjónsson 3, Ásgrímur Albertsson - Ísak Örn Þórðarson. ÍR-Fjölnir 0-2 Pétur Georg Markan. * upplýsingar um markaskorara fengnir frá fótbolti.net. STAÐAN: Leiknir 17 11 2 4 25-13 35 Víkingur 17 10 3 4 30-20 33 Þór 17 8 7 2 31-19 31 ÍR 17 8 5 4 29-27 29 Fjölnir 17 8 4 5 31-23 27 KA 17 6 5 6 24-28 23 ÍA 17 5 7 5 26-23 22 Þróttur 17 6 3 8 24-29 21 HK 17 5 4 8 25-30 19 Grótta 17 4 5 8 24-26 17 Fjarðabyggð 17 3 3 11 21-35 12 Njarðvík 17 3 2 12 12-29 11 Meistaradeild Evrópu: Young Boys-Tottenham 3-2 1-0 Senad Lulic (4.), 2-0 Henri Bienvenu (13.), 3-0 Xavier Hochstrasser (28.), 3-1 Sebastien Bassong (42.), 3-2 Roman Pavlyuchenko (83.). Zenit. St. Petersburg-Auxerre 1-0 Dynamo Kiev-Ajax 1-1 Rosenborg-FC Copenhagen 2-1 1-0 Steffen Iversen (23.), 2-0 Markus Henriksen (57.), 2-1 Jesper Grönkjær (84.) Sparta Prag-Zilina 0-2 ÚRSLIT - gólfþvottavélar - ryksugur Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ. Sími 480-0000 · www.aflvelar.is - sala - varahlutir - þjónusta Björgvin Páll Gústavsson æfir sig í allt að klukkutíma aukalega á hverjum degi. Metnaðurinn hjá íslenska landsliðsmarkmanninum er að skila sér í frábæru formi fyrir nýja tímabilið með Kadetten í Sviss, hans síðasta hjá félaginu. Liðið hefur tekið þátt í tveimur æfinga- mótum í sumar og hefur Björgvin verið valinn besti markmaður beggja mótanna. „Ég er búinn að vera að æfa eins og rotta, það er að skila sér og mér hefur gengið vel,“ sagði Björgvin við Fréttablaðið í gær. En hvernig æfir maður eins og rotta? „Bara meira en allir hinir,“ segir Björgvin ákveðinn. „Ég mæti alltaf fyrstur og er síðastur út. Ég er að æfa á réttum forsendum núna, aukaæfingarnar ofan á hitt og matarræðið hefur verið áberandi gott hjá mér undanfarið,“ segir markmaðurinn. Liðið hefur unnið sterk lið á borð við Hamburg og Celje Lasko. „Við höfum líka átt slæma leiki en vörnin okkar er orðin betri en í fyrra og ég græði klárlega á því.” Hann segir líka að hann sé búinn að koma sér vel fyrir en um leið að tímabilið sé hans síðasta í Sviss. „Þetta tímabil er mjög spennandi fyrir mig. Ég er 25 ára og á góð fimmtán ár eftir í boltanum. Það stefnir í spennandi og skemmtilegt tímabil, við erum í skemmtilegum riðli í Meistaradeildinni,“ segir Björgvin sem er ánægður yfir að vera samningslaus eftir þetta tímabil. „Það er líka HM í janúar og það er góður gluggi. Ég er búinn að vera að horfa á HM frá því í sumar og það hjálpar manni í útihlaupunum,“ segir markmaðurinn. Hann talar einnig um bætt mataræði og þá sérstaklega íslenska harðfiskinn. „Ég læt fólk draga mat með sér hingað út, meðal annars harðfisk. Ætli það sé ekki hluti af velgengn- inni. Eins kjánalega og það hljómar læt ég fólk líka taka íslenskan ost út, og það til Sviss. Ætli það sé ekki bara gamli vaninn,“ segir matgæðingurinn Björgvin Páll Gústavsson. BJÖRGVIN PÁLL GÚSTAVSSON: VALINN BESTUR Á TVEIMUR ÆFINGAMÓTUM Í RÖÐ Harðfiskurinn á hluta af velgengninni > Arnar og Magnús fara til Danmerkur Arnar Freyr Jónsson og Magnús Þór Gunnarsson munu semja við danska félagið Aabyhoj. Það hefur tekið nokk- urn tíma fyrir tvímenningana að fá atvinnumál sín úti á hreint en það skýrðist loksins í byrjun vikunnar. „Við förum út í byrjun september og semjum við liðið. Það er mjög gaman að þetta sé í höfn,“ segir Arnar. Þeir félagar munu vinna sem smiðir og búa saman í Árósum. „Þetta er svona hálf- atvinnumennska sem hentar okkur fínt. Það verður gaman að fara út og prófa eitthvað nýtt,“ segir Arnar sem fer því frá Keflvíkingum og Magnús frá Njarðvík. FÓTBOLTI Efstu þrjú liðin í 1. deild karla gerðu öll jafntefli í leikjum sínum í gær. Topplið Leiknis sótti Gróttu heim á Nesið og tókst ekki að skora. Það tókst Gróttu ekki held- ur þannig að bæði lið fengu eitt stig. Leiknir heldur toppsætinu þar sem Víkingi tókst ekki að leggja ÍA að velli. Daníel Hjaltason bjargaði stigi fyrir Víking eftir að ÍA hafði komist yfir á sjálfs- marki. Þór sótti síðan eitt stig í Laug- ardalinn gegn Þrótti þar sem bæði mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik. HK sýndi loksins eitthvað í sumar er liðið valtaði yfir botn- lið Njarðvíkur, 4-1. Þar skoraði hinn ungi og bráðefnilegi, Hólm- bert Aron Friðjónsson, þrjú mörk fyrir Kópavogsliðið. HK reif sig með sigrinum aðeins frá botnliðunum og getur farið að anda dálítið léttar. - hbg 1. deild karla: Óbreytt á toppi deildarinnar SJÓÐHEITUR Hinn ungi Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði þrjú mörk fyrir HK í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SKEMMTILEGT FUTSAL Bojan Stefán Ljubicic og félagar í Keflavík töpuðu, 16- 5, fyrir Eindhoven í gær. Keflavík er þar með úr leik. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Frumraun Tottenham Hotspur í Meistaradeild Evrópu var ekki án vandræða. Liðið sótti svissneska liðið Young Boys heim í fyrri leik liðanna í umspili keppninnar. Young Boys vann leikinn 3-2 og á ágæta möguleika í síðari leiknum. Heimamenn byrjuðu leikinn með ótrúlegum látum. Eftir aðeins 28 mínútna leik var staðan orðin 3-0 fyrir Young Boys. Heimamenn hefðu hæglega getað bætt við fleiri mörkum fyrir hlé enda var vörn Spurs hriplek. Skallamark Sebastiens Bass- ong rétt fyrir hlé gaf Tottenham síðan von. Spurs gekk illa að skapa sér færi en Roman Pavlyuchenko skoraði laglegt mark sex mínútum fyrir leikslok sem gjörbreytir stöð- unni fyrir síðari leikinn. Harry Redknapp, stjóri Tottenham, var furðulega sáttur með tapið og lýsti því sem frábæru. „Þetta var frábært tap ef hægt er að tala um slíkt. Við vorum 3- 0 undir og nánast úr leik. Ég verð að gefa strákunum hrós fyrir að koma til baka og gefa okkur möguleika fyrir seinni leikinn,“ sagði Redknapp nokkuð brattur. Redknapp vildi ekki kenna gervigrasinu um slæman leik sinna manna. „Ég vil ekki bjóða upp á afsakanir. Við æfðum á vellinum fyrir leik og það voru margir með ýmsar áhyggjur eftir æfinguna ef ég á að segja eins og er,“ sagði Redknapp sem var svo reiður yfir byrjun sinna manna að hann tók bakvörðinn Assou-Ekotto af velli fyrir hálfleik. „Þessi úrslit þýða að síðari leikurinn verður frábær á White Hart Lane. Andrúmsloftið á eftir að verða einstakt og leikurinn erfiður. Það er alveg klárt mál. Þetta er agað lið sem er erfitt að brjóta niður. Þeir eiga líka lipra leikmenn sem kunna að sækja hratt.“ L í k lega t vö best u l ið Norðurlandanna, Rosenborg og FC Copenhagen, mættust í Þrándheimi þar sem heimamenn unnu sigur, 2- 1. Þar voru þekktir menn eins og Steffen Iversen og Jesper Grönkjær á skotskónum. Sölvi Geir Ottesen sat allan tímann á varamannabekk Kaupmannahafnarliðsins í gær. henry@frettabladid.is Smástrákarnir lögðu Spurs Svissneska liðið Young Boys gerði sér lítið fyrir og lagði enska liðið Tottenham í fyrri leik liðanna í umspili Meistaradeildar Evrópu. Rosenborg vann Norðurlandaslaginn gegn FCK þar sem Sölvi Geir Ottesen fékk ekki að spila. BJARGAÐI MIKLU Roman Pavlyuchenko skoraði gríðarlega mikilvægt mark fyrir Tottenham þegar sex mínútur voru eftir af leiknum. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.