Fréttablaðið - 23.08.2010, Síða 10
10 23. ágúst 2010 MÁNUDAGUR
Þriðjudagskvöldið
24. ágúst verður
gengið um Öskju-
hlíðina undir leiðsögn
Einars Gunnlaugssonar, jarðfræðings, og Stefáns Pálssonar, sagn-
fræðings. Öskjuhlíðin er forvitnilegt, bæði út frá náttúrufræðilegu og
sögulegu sjónarhorni, auk þess sem starfsemi Orkuveitunnar tengist
svæðinu á ýmsan hátt. Lagt verður af stað frá Perlunni kl. 19:30.
Gönguferð um
Öskjuhlíðina
Orkuveita Reykjavíkur rekur
stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is
Athugið að efni dagsins getur riðlast af
ýmsum ástæðum og er því bent á að nánari
upplýsingar er að finna á vef Orkuveitunnar.
SVALAR ÞORSTANUM Þessi kornunga
stúlka fékk sér svolítinn sopa úr litlum
gosbrunni í dýragarði í borginni Lafay-
ette í Indianaríki í Bandaríkjunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ákvörðun menntaráðs Reykjavíkurborgar um að setja af
stað stýrihóp til að efla árangur drengja í grunnskólum, var
ekki einróma samþykkt innan ráðsins. Líf Magneudóttir,
fulltrúi VG, er ósammála aðgerðinni og segir ekkert benda
til þess að góður árangur stúlkna í skóla sé á kostnað
drengja og hún gagnrýnir ákvörðun menntaráðs harðlega.
„Það er ekki hægt að gefa sér að
drengir séu einsleitur hópur sem
þarfnist eins og sama úrræðisins,“
segir Líf. „Rannsóknir sýna að munur
er á nemendum eftir öðrum breytum
en kyni, eins og efnahag foreldra og
þátttöku þeirra í skólastarfi. Meirihlut-
inn er að vinna gegn hagsmunum
barna með því að styðjast við úreltar
kenningar.“
Björn Pétursson, skólastjóri Mela-
skóla, telur málið flókið og erfitt sé að komast að einni
niðurstöðu. „Skólinn er eitt, heimili er annað, fjölmiðlun
enn annað. Það þarf að ræða við börnin til þess að kom-
ast að því hvað má betur fara. En ég tel að það sé góðra
gjalda vert að rannsaka þetta sérstaklega.“
Aðgerðirnar voru settar af stað meðal annars vegna
þess að samkvæmt könnun Háskóla Íslands frá árinu 2008
eru drengir ekki eins ánægðir með nám í fyrstu bekkjum
grunnskóla og stúlkur. - sv
Sagt vinna gegn hagsmunum barna með úreltum kenningum
LÍF
MAGNEUDÓTTIR
STRÁKAR Í SKÓLA Skólastjóri Melaskóla telur varasamt að
styðjast of mikið við niðurstöður kannana í málefnum barna.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SAMGÖNGUR Ferða- og útivistarfé-
lagið Slóðavinir tók sig til í sumar
og lagaði brú á Mosfellsheiði. Brúin
liggur á vegarslóða frá Skálafells-
afleggjara og inn á Mosfellsheiði
„Brúin mátti muna fífil sinn
fegurri,“ segir Halldór Sveinsson
félagi í Slóðavinum. Brúargólfið var
ótraust og götótt að sögn Halldórs.
„Þessi brú var orðin hættuleg, við
sáum að jeppamenn voru farnir að
fara yfir ána fyrir neðan og þar var
farið að myndast ljótt sár.“ Slóðavin-
ir skiptu um brúargólfið og sáðu í
sárin sem farin voru að myndast í
landinu í kring. - mmf
Ferða- og útivistarfélagið Slóðavinir lagaði brú á Mosfellsheiði:
Brúin var orðin ótraust og götótt
EFTIR VIÐGERÐ Slóðavinir sáðu í sárin sem farin voru að myndast í landinu í kring.
MYND/ÚR EINKASAFNI
AFGANISTAN, AP Forseti Afgan-
istan, Hamid Karazai, segir
réttindum afganskra kvenna
ekki verða fórnað í friðarum-
leitunum við talibana. Í sam-
tali við ABC
fréttastofuna
á sunnudag
sagðist hann
nú reyna að
ná til talibana
sem væru til-
búnir að hætta
samskiptum
við al-Kaída og
aðra hryðju-
verkahópa.
Hann sagði afganskar konur
ekki þurfa að óttast um stöðu
sína og að þær myndu hafa
traustan málsvara í öllum form-
legum viðræðum. Hann sagði
pólitískan, félagslegan og efna-
hagslegan ábata þeirra ekki
einungis verða varinn heldur
aukinn.
-ve
HAMID KARZAI
Friðarumleitanir í Afganistan:
Fórna ekki rétt-
indum kvenna
SLYS Kona slasaðist á fæti á Hrút-
fjallstindum á Öræfajökli tæp-
lega hálf átta á laugardagskvöld.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-
LIF, var kölluð á slysstað.
Ekki reyndist unnt að lenda
á slysstað og því var lent við
Freysnes til að létta þyrluna áður
en haldið var aftur á slysstað þar
sem hin slasaða var hífð um borð
ásamt tveimur ferðafélögum.
Konan var svo skilin eftir
ásamt ferðafélögunum á
Freysnesi þar sem ætlun þeirra
var að keyra til Reykjavíkur. - mmf
TF-LIF send á slysstað:
Kona slasaðist
á Öræfajökli
Ljósmyndir af landsmóti
Landssamband hestamannafélaga
hefur í samvinnu við Reykjavíkur-
borg komið upp ljósmyndasýningu í
Hljómskálagarðinum. Á sýningunni er
stiklað á því helsta frá upphafi lands-
móts árið 1950 til dagsins í dag.
REYKJAVÍK
FRÉTTASKÝRING
Er þörf á sérstökum úrræðum til að
efla námsárangur drengja?
Menntaráð Reykjavíkur skipaði í
síðustu viku átta manna stýrihóp
með fulltrúum skólastjóra, kenn-
ara, foreldra og sérfræðinga, sem
ætlað er að vinna markvisst að
því að efla námsárangur drengja
í grunnskólum. Hvatinn að skipun
stýrihópsins er sagður rannsókn-
ir sem gerðar
hafa verið við
Menntavísinda-
svið HÍ, sem
sýna marktæk-
an mun á náms-
áhuga og náms-
ánægju stúlkna
og drengja strax
í 1. bekk.
Inga Dóra Sig-
fúsdóttir, próf-
essor í félags-
fræði við Háskólann í Reykjavík
og Columbia University í New
York, hefur rannsakað kynjamun
á námsárangri barna og unglinga
frá árinu 1997. Hún segir þá stað-
reynd löngu kunna að strákum
gangi og líði verr í skóla en stelp-
um. „Í grunnatriðum þykir mér
skipan stýrihópsins þörf og góð.
Staðan hefur verið ljós nokkuð
lengi en ekki hefur verið brugðist
Lausnir verði raunverulegar
Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófessor í félagsfræði, segir skipan stýrihóps, sem ætlað er að vinna að eflingu
námsárangurs drengja, í grunnatriðum þarfa og góða. Lausnir þurfi þó að byggja á traustum heimildum.
INGA DÓRA
SIGFÚSDÓTTIR
Á LEIKVELLINUM „Sérfræðingar eru góðir og gildir en foreldrar eru alltaf helstu sér-
fræðingar í málefnum barna sinna,“ segir Inga Dóra Sigfúsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Af 41 þjóð sem tók þátt í alþjóðlegu námsmatskönn-
uninni PISA (Programme for International Student
Assessment) árið 2003 mælist kynjamunur á náms-
árangri í þeim greinum sem rannsakaðar voru mestur hjá
Íslendingum. Námsárangurinn reyndist betri hjá stelpum
í stærðfræði, raungreinum og lestri.
Forskot stelpna í ofantöldum greinum var ljóst í 4. og
7. bekk og allt upp á háskólastig.
Munurinn mestur hjá Íslendingum
við með beinum aðgerðum fyrr en
nú, nema þá í sérstökum tilfellum
þar sem ákveðnar tilraunir hafa
verið gerðar. Hins vegar er nauð-
synlegt að hafa í huga að þetta er
flókið mál og byggja þarf á traust-
um rannsóknum sem miða að því
að finna úrlausnir,“ segir Inga
Dóra.
Hún segir rannsóknir sínar og
fleiri hafa leitt í ljós að strákar
hafi almennt minna eftirlit og njóti
minni stuðnings foreldra en stelp-
ur, og þeir þættir séu veigamiklir í
að skýra námsárangur. „Þetta eru
þættir sem þarf að breyta í samfé-
laginu og þegar rýnt er í tölurnar
kemur raunar í ljós að dregið hefur
úr kynjamun í námsárangri. Sam-
félaginu hættir til að líta á skólann
sem einangraða stofnun, en það
sem gerist innan veggja skólanna
á sér oft orsakir fyrir utan hann.“
Formaður stýrihópsins, Þor-
björg Helga Vigfúsdóttir, full-
trúi Sjálfstæðisflokks í mennta-
ráði Reykjavíkurborgar, telur að
kerfið hafi á einhvern hátt misst
sjónar á strákum, meðal annars
vegna fækkunar á körlum sem
fyrirmyndum í skólakerfinu. Inga
Dóra segir slíkt ekki eiga við rök
að styðjast. „Ýmsar rannsókn-
ir hafa sýnt fram á að engu máli
skiptir fyrir námsárangur kynj-
anna hvort karlar eða konur kenni.
Þetta er meðal þess sem þarf að
gæta að þegar lausna er leitað, að
þær séu raunverulegar og byggi á
traustum heimildum,“ segir Inga
Dóra Sigfúsdóttir.
kjartan@frettabladid.is