Fréttablaðið - 23.08.2010, Page 18
18 23. ágúst 2010 MÁNUDAGUR
Almenningur þekkir vel af eigin raun hversu mikið högg
íslenska hagkerfið hlaut við fall
bankanna síðla árs 2008. Stærð
þeirra og umsvif ollu því að vandi
Íslands varð mun meiri en önnur
ríki hafa staðið frammi fyrir af
sambærilegum ástæðum. Um
orsakir þessa hef ég þegar fjallað
í fyrri greinum, en sný mér nú að
jákvæðum teiknum sem eru á lofti
í íslensku efnahagslífi.
Í opinberri umræðu um efna-
hagsmál hefur ekki skort úrtölu-
raddir sem lítið sjá hér nema
svartnætti framundan. Iðulega
eru þetta fulltrúar afla í samfé-
laginu sem göptu upp í útrásina
og nýfrjálshyggjuna og bera mikla
ábyrgð á óförum okkar. Formað-
ur Framsóknarflokksins lýsti því
yfir fyrir Alþingiskosningarnar
2009 að annað efnahagshrun væri
yfirvofandi. Ýmsir í þessum hópi
hafa alið á ótta um landflótta, að
atvinnuleysi fari í 20% eða meira
og íþyngjandi skattaálögur muni
sliga allt. Sannast sagna, og sem
betur fer, hafa þetta reynst hrein
öfugmæli.
Minni samdráttur – mikill
árangur
Vissulega er það rétt að íslenskt
efnahagslíf á enn langt í land að
ná fullum bata en nú nærri tveim-
ur árum eftir hrun eru komin
fram skýr merki um viðsnúning.
Þá hafa margar hagstærðir, sem
gefa okkur glögga vísbendingu
um stöðu efnahagsmála, þróast
til betri vegar en spár, t.d. Seðla-
banka Íslands, Hagstofunnar, hag-
deildar ASÍ og AGS, gáfu okkur
tilefni til að ætla.
Samspil margra þátta orsak-
ar að staðan er ekki jafn slæm og
margir óttuðust. Eitt veigamesta
atriðið er að samdráttur í lands-
framleiðslu hefur ekki orðið eins
mikill og ráð var fyrir gert. Í stað
þess að verg landsframleiðsla félli
niður í 1.450 ma. kr. á árinu 2009
varð hún um 1.500 ma. kr.
Í stað þess að falla umtalsvert
í viðbót á árinu 2010 eins og spáð
hafði verið er nú talið að lands-
framleiðslan lækki óverulega og
verði um 1.600 ma. kr. á verðlagi
þessa árs. Gangi spár um 2,5-3%
vöxt landsframleiðslu á næsta ári
eftir, verður það 70 – 100 milljörð-
um króna stærra hagkerfi sem
tekur að vaxa en spárnar á fyrstu
misserum eftir hrun gerðu ráð
fyrir.
Það munar um minna.
Raunhagkerfið hefur sýnt styrk
sinn og drifið efnahagslífið áfram.
Útflutnings- og samkeppnis-
greinar hafa notið hagstæðrar
gengisskráningar, innlend fram-
leiðslustarfsemi hefur aukið
markaðshlutdeild sína og nýjar
vaxtargreinar sækja fram. Alger
viðsnúningur hefur orðið á vöru-
og þjónustujöfnuði frá útrásar-
tímanum. Í stað mörg hundruð
milljarða uppsafnaðs halla árin
fyrir hrun er nú orðinn veruleg-
ur uppsafnaður afgangur af vöru-
og þjónustuviðskiptum frá árslok-
um 2008 (nálægt 200 ma. kr. um
mitt ár 2010). Þetta ásamt öðru
hefur stuðlað að verulegri styrk-
ingu og stöðugra gengi krónunn-
ar. Áhrifanna á lífskjör almenn-
ings er þegar farið að gæta.
Aðrir mikilvægir hagvísar
gefa jafnframt til kynna veru-
legan viðsnúning. Hagvöxtur
mældist síðustu tvo ársfjórðunga
í röð – sem er þvert á allt tal um
lamað hagkerfi. Raunar er hag-
vöxtur að mælast mun fyrr en
flestir greiningaraðilar gerðu
ráð fyrir. Það sama gildir um
atvinnuleysi sem mælist nú 7,5%
en flestar spár gerðu ráð fyrir
allt að 10% atvinnuleysi um mitt
ár 2010. Um 2000 fleiri störf voru
í boði á öðrum ársfjórðungi 2010
en á sama tíma 2009. Þó þessar
atvinnuleysistölur séu óviðunandi
miðað við það sem við þekkjum og
sættum okkur við er það engu að
síður athyglisvert að atvinnuleysi
á Íslandi er með því lægsta sem
finnst innan OECD, mun lægra
en að meðaltali í ESB ríkjunum
(10%+ ) og lægra en í Bandaríkj-
unum (9,5%).
Þegar ríkisstjórnin tók við
mældist verðbólga 17,8% en
mælist nú um 4,8%. Síðustu þrjá
mánuði hefur verið verðhjöðnun í
stað verðbólgu. Stýrivextir Seðla-
bankans hafa lækkað um 11% og
eru komnir niður í 7%. Almennir
vextir hafa lækkað að sama skapi.
Þessi árangur í efnahagsmál-
um sem skiptir miklu máli fyrir
kaupmátt og skuldastöðu heimila
í landinu, byggist á styrkri stjórn
í peninga og gjaldeyrismálum,
hagstæðri niðurstöðu við endur-
eisn fjármálakerfisins og ábyrg-
um ríkisfjámálum. Við erum með
stefnufestu og af ábyrgð að end-
urheimta hægt og bítandi stöð-
ugleika og skapa þá tiltrú sem er
nauðsynleg forsenda við endur-
reisn efnahagslífsins.
Árangur í ríkisfjármálum
Núverandi stjórn tók við með 215
milljarða halla á ríkissjóði. Í lok
árs 2009 var hann kominn í um
140 milljarða. Það var 34 millj-
arða króna betri afkoma en spár
gerðu ráð fyrir. Viðsnúningurinn
er um heil 6%, úr -15% af vergri
landsframleiðslu (VLF) í rúm -
9%. Þess má geta að Þjóðverjar
settu sér nýlega það markmið að
ná fram 3% betri afkomu á ríkis-
sjóði á þriggja ára tímabili sem
þykir afar metnaðarfullt.
Í stað aðgerðaleysis í ríkis-
fjármálum á árinu 2009, eins og
áform stóðu til, ákvað ný ríkis-
stjórn að hefjast þegar handa og
greip til aðgerða á miðju ári 2009,
bæði með lækkun útgjalda og
tekjuöflun upp á rúma 20 millj-
arða króna. Það eru alltaf þung
spor að stíga að skera niður, eink-
um í samneyslunni, en slíkt var
og er enn óhjákvæmilegt og reynt
var og verður að hlífa undirstöðu
velferðarþjónustunnar eins og
kostur er. Útgjöld ríkissjóðs án
vaxtagjalda voru þannig lækk-
uð úr nærri 44% af VLF á árinu
2008 í um 33% af VLF 2009 og
áætlað að þau verði um 29% af
VLF á yfirstandandi ári, sem er
svipað hlutfall og var á árunum
fyrir hrun þótt mikil óumflýjan-
leg útgjöld, tengd ástandinu, hafi
bæst við.
Þó tekjur ríkissjóðs yrðu
nokkru meiri á árinu 2009 en
áætlanir gerðu ráð fyrir eru þær
engu að síður miklu lægra hlut-
fall af landsframleiðslu en fyrir
hrun. Aðgerðir hafa því beinst að
því að koma í veg fyrir enn meira
tekjuhrap en ella hefði orðið. Um
leið var skattkerfinu breytt í átt
til aukinnar tekjujöfnunar og nú
er það staðfest að hinum tekju-
lægstu var hlíft við skattahækk-
unum. Þá hafa verið stigin fyrstu
skrefin í átt til umhverfis- og auð-
lindaskatta.
Markmið í ríkisfjármálum eru
fullkomlega samkvæmt áætlun
eftir fyrstu sjö mánuði ársins
2010 og góðar vonir til þess að
halli ríkissjóðs verði vel innan
við 100 milljarða eða um 5,5% af
VLF. Erum við þá komin langan
veg frá 15% halla ársins 2008.
Það óvænta er að staða okkar í
þessu tilliti verður þá betri en
fjölmargra Evrópuríkja sem
glíma við fjárlagahalla upp á
tveggja stafa prósentutölu.
Hér að ofan hefur þróunin verið
borin saman við spár. Engir, ekki
einu sinni svartsýnustu heims-
endaspámenn, geta borið á móti
því að mikill árangur hefur náðst
og að við erum á réttri leið. Það
eru góðu fréttirnar en hitt er ljóst
að það er mikil glíma eftir. Stað-
reyndin er að ráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar í fjármálum vegna
áranna 2009 og 2010 voru mark-
vissar og hafa heppnast. Þær urðu
ekki til að magna kreppuna eða
kæfa atvinnulífið eins og ýmsir
héldu fram heldur þvert á móti.
Veruleikinn, staðreyndirnar, eiga
síðasta orðið.
Glöggt er gestsaugað
Sumt það sem hér að ofan var
lýst gæti hafa orðið kveikjan að
nýlegum pistli bandaríska nóbels-
verðlaunahafans í hagfræði, Paul
Krugman, um það sem hann kall-
ar íslenskt efnahagsundur eftir
hrun. Að algjör breyting hafi orðið
á stjórn efnahagsmála á Íslandi.
Krugman er þeirrar skoðunar að
hér hafi ríkt efnahagsóstjórn sem
leiddi til eins hlutfallslega stærsta
efnahagshruns sögunnar en að
viðsnúningurinn sem orðið hafi á
Íslandi sé undraverður. Spyrjum að
leikslokum, tökum ekkert út fyrir-
fram og munum að það er mikið
eftir, segi ég. Þó er full ástæða til
að draga fram það sem vel gengur
í íslensku efnahagslífi um þessar
mundir. Nægar vísbendingarnar
eru til að segja að það sé farið að
sjá til sólar og bölmóður eigi nú að
víkja fyrir bjartsýni.
Spyrjum að leikslokum, tökum ekkert út fyrirfram og munum að
það er mikið eftir, segi ég. Þó er full ástæða til að draga fram það
sem vel gengur í íslensku efnahagslífi um þessar mundir. Nægar
vísbendingarnar eru til að segja að það sé farið að sjá til sólar og
bölmóður eigi nú að víkja fyrir bjartsýni.
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSA
KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...D
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...P
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSA
KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...D
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...P
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSA
KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...D
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...P
Þúsundir fermetra
af flísum með
20 -70% afslætti
Eikarparket 14 mm
kr 3.990 m2
Allar baðherbergisvörur
25% afsláttur
ÚTSALA
Staða þjóðarbúsins og horfur á miðju sumri 2010 Grein 3
Landið tekur að rísa!
Þjóðmál
Steingrímur J.
Sigfússon
fjármálaráðherra