Fréttablaðið - 23.08.2010, Síða 18

Fréttablaðið - 23.08.2010, Síða 18
18 23. ágúst 2010 MÁNUDAGUR Almenningur þekkir vel af eigin raun hversu mikið högg íslenska hagkerfið hlaut við fall bankanna síðla árs 2008. Stærð þeirra og umsvif ollu því að vandi Íslands varð mun meiri en önnur ríki hafa staðið frammi fyrir af sambærilegum ástæðum. Um orsakir þessa hef ég þegar fjallað í fyrri greinum, en sný mér nú að jákvæðum teiknum sem eru á lofti í íslensku efnahagslífi. Í opinberri umræðu um efna- hagsmál hefur ekki skort úrtölu- raddir sem lítið sjá hér nema svartnætti framundan. Iðulega eru þetta fulltrúar afla í samfé- laginu sem göptu upp í útrásina og nýfrjálshyggjuna og bera mikla ábyrgð á óförum okkar. Formað- ur Framsóknarflokksins lýsti því yfir fyrir Alþingiskosningarnar 2009 að annað efnahagshrun væri yfirvofandi. Ýmsir í þessum hópi hafa alið á ótta um landflótta, að atvinnuleysi fari í 20% eða meira og íþyngjandi skattaálögur muni sliga allt. Sannast sagna, og sem betur fer, hafa þetta reynst hrein öfugmæli. Minni samdráttur – mikill árangur Vissulega er það rétt að íslenskt efnahagslíf á enn langt í land að ná fullum bata en nú nærri tveim- ur árum eftir hrun eru komin fram skýr merki um viðsnúning. Þá hafa margar hagstærðir, sem gefa okkur glögga vísbendingu um stöðu efnahagsmála, þróast til betri vegar en spár, t.d. Seðla- banka Íslands, Hagstofunnar, hag- deildar ASÍ og AGS, gáfu okkur tilefni til að ætla. Samspil margra þátta orsak- ar að staðan er ekki jafn slæm og margir óttuðust. Eitt veigamesta atriðið er að samdráttur í lands- framleiðslu hefur ekki orðið eins mikill og ráð var fyrir gert. Í stað þess að verg landsframleiðsla félli niður í 1.450 ma. kr. á árinu 2009 varð hún um 1.500 ma. kr. Í stað þess að falla umtalsvert í viðbót á árinu 2010 eins og spáð hafði verið er nú talið að lands- framleiðslan lækki óverulega og verði um 1.600 ma. kr. á verðlagi þessa árs. Gangi spár um 2,5-3% vöxt landsframleiðslu á næsta ári eftir, verður það 70 – 100 milljörð- um króna stærra hagkerfi sem tekur að vaxa en spárnar á fyrstu misserum eftir hrun gerðu ráð fyrir. Það munar um minna. Raunhagkerfið hefur sýnt styrk sinn og drifið efnahagslífið áfram. Útflutnings- og samkeppnis- greinar hafa notið hagstæðrar gengisskráningar, innlend fram- leiðslustarfsemi hefur aukið markaðshlutdeild sína og nýjar vaxtargreinar sækja fram. Alger viðsnúningur hefur orðið á vöru- og þjónustujöfnuði frá útrásar- tímanum. Í stað mörg hundruð milljarða uppsafnaðs halla árin fyrir hrun er nú orðinn veruleg- ur uppsafnaður afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum frá árslok- um 2008 (nálægt 200 ma. kr. um mitt ár 2010). Þetta ásamt öðru hefur stuðlað að verulegri styrk- ingu og stöðugra gengi krónunn- ar. Áhrifanna á lífskjör almenn- ings er þegar farið að gæta. Aðrir mikilvægir hagvísar gefa jafnframt til kynna veru- legan viðsnúning. Hagvöxtur mældist síðustu tvo ársfjórðunga í röð – sem er þvert á allt tal um lamað hagkerfi. Raunar er hag- vöxtur að mælast mun fyrr en flestir greiningaraðilar gerðu ráð fyrir. Það sama gildir um atvinnuleysi sem mælist nú 7,5% en flestar spár gerðu ráð fyrir allt að 10% atvinnuleysi um mitt ár 2010. Um 2000 fleiri störf voru í boði á öðrum ársfjórðungi 2010 en á sama tíma 2009. Þó þessar atvinnuleysistölur séu óviðunandi miðað við það sem við þekkjum og sættum okkur við er það engu að síður athyglisvert að atvinnuleysi á Íslandi er með því lægsta sem finnst innan OECD, mun lægra en að meðaltali í ESB ríkjunum (10%+ ) og lægra en í Bandaríkj- unum (9,5%). Þegar ríkisstjórnin tók við mældist verðbólga 17,8% en mælist nú um 4,8%. Síðustu þrjá mánuði hefur verið verðhjöðnun í stað verðbólgu. Stýrivextir Seðla- bankans hafa lækkað um 11% og eru komnir niður í 7%. Almennir vextir hafa lækkað að sama skapi. Þessi árangur í efnahagsmál- um sem skiptir miklu máli fyrir kaupmátt og skuldastöðu heimila í landinu, byggist á styrkri stjórn í peninga og gjaldeyrismálum, hagstæðri niðurstöðu við endur- eisn fjármálakerfisins og ábyrg- um ríkisfjámálum. Við erum með stefnufestu og af ábyrgð að end- urheimta hægt og bítandi stöð- ugleika og skapa þá tiltrú sem er nauðsynleg forsenda við endur- reisn efnahagslífsins. Árangur í ríkisfjármálum Núverandi stjórn tók við með 215 milljarða halla á ríkissjóði. Í lok árs 2009 var hann kominn í um 140 milljarða. Það var 34 millj- arða króna betri afkoma en spár gerðu ráð fyrir. Viðsnúningurinn er um heil 6%, úr -15% af vergri landsframleiðslu (VLF) í rúm - 9%. Þess má geta að Þjóðverjar settu sér nýlega það markmið að ná fram 3% betri afkomu á ríkis- sjóði á þriggja ára tímabili sem þykir afar metnaðarfullt. Í stað aðgerðaleysis í ríkis- fjármálum á árinu 2009, eins og áform stóðu til, ákvað ný ríkis- stjórn að hefjast þegar handa og greip til aðgerða á miðju ári 2009, bæði með lækkun útgjalda og tekjuöflun upp á rúma 20 millj- arða króna. Það eru alltaf þung spor að stíga að skera niður, eink- um í samneyslunni, en slíkt var og er enn óhjákvæmilegt og reynt var og verður að hlífa undirstöðu velferðarþjónustunnar eins og kostur er. Útgjöld ríkissjóðs án vaxtagjalda voru þannig lækk- uð úr nærri 44% af VLF á árinu 2008 í um 33% af VLF 2009 og áætlað að þau verði um 29% af VLF á yfirstandandi ári, sem er svipað hlutfall og var á árunum fyrir hrun þótt mikil óumflýjan- leg útgjöld, tengd ástandinu, hafi bæst við. Þó tekjur ríkissjóðs yrðu nokkru meiri á árinu 2009 en áætlanir gerðu ráð fyrir eru þær engu að síður miklu lægra hlut- fall af landsframleiðslu en fyrir hrun. Aðgerðir hafa því beinst að því að koma í veg fyrir enn meira tekjuhrap en ella hefði orðið. Um leið var skattkerfinu breytt í átt til aukinnar tekjujöfnunar og nú er það staðfest að hinum tekju- lægstu var hlíft við skattahækk- unum. Þá hafa verið stigin fyrstu skrefin í átt til umhverfis- og auð- lindaskatta. Markmið í ríkisfjármálum eru fullkomlega samkvæmt áætlun eftir fyrstu sjö mánuði ársins 2010 og góðar vonir til þess að halli ríkissjóðs verði vel innan við 100 milljarða eða um 5,5% af VLF. Erum við þá komin langan veg frá 15% halla ársins 2008. Það óvænta er að staða okkar í þessu tilliti verður þá betri en fjölmargra Evrópuríkja sem glíma við fjárlagahalla upp á tveggja stafa prósentutölu. Hér að ofan hefur þróunin verið borin saman við spár. Engir, ekki einu sinni svartsýnustu heims- endaspámenn, geta borið á móti því að mikill árangur hefur náðst og að við erum á réttri leið. Það eru góðu fréttirnar en hitt er ljóst að það er mikil glíma eftir. Stað- reyndin er að ráðstafanir ríkis- stjórnarinnar í fjármálum vegna áranna 2009 og 2010 voru mark- vissar og hafa heppnast. Þær urðu ekki til að magna kreppuna eða kæfa atvinnulífið eins og ýmsir héldu fram heldur þvert á móti. Veruleikinn, staðreyndirnar, eiga síðasta orðið. Glöggt er gestsaugað Sumt það sem hér að ofan var lýst gæti hafa orðið kveikjan að nýlegum pistli bandaríska nóbels- verðlaunahafans í hagfræði, Paul Krugman, um það sem hann kall- ar íslenskt efnahagsundur eftir hrun. Að algjör breyting hafi orðið á stjórn efnahagsmála á Íslandi. Krugman er þeirrar skoðunar að hér hafi ríkt efnahagsóstjórn sem leiddi til eins hlutfallslega stærsta efnahagshruns sögunnar en að viðsnúningurinn sem orðið hafi á Íslandi sé undraverður. Spyrjum að leikslokum, tökum ekkert út fyrir- fram og munum að það er mikið eftir, segi ég. Þó er full ástæða til að draga fram það sem vel gengur í íslensku efnahagslífi um þessar mundir. Nægar vísbendingarnar eru til að segja að það sé farið að sjá til sólar og bölmóður eigi nú að víkja fyrir bjartsýni. Spyrjum að leikslokum, tökum ekkert út fyrirfram og munum að það er mikið eftir, segi ég. Þó er full ástæða til að draga fram það sem vel gengur í íslensku efnahagslífi um þessar mundir. Nægar vísbendingarnar eru til að segja að það sé farið að sjá til sólar og bölmóður eigi nú að víkja fyrir bjartsýni. FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSA KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...D TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...P FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSA KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...D TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...P FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSA KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...D TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...P Þúsundir fermetra af flísum með 20 -70% afslætti Eikarparket 14 mm kr 3.990 m2 Allar baðherbergisvörur 25% afsláttur ÚTSALA Staða þjóðarbúsins og horfur á miðju sumri 2010 Grein 3 Landið tekur að rísa! Þjóðmál Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.