Fréttablaðið - 23.08.2010, Side 38
22 23. ágúst 2010 MÁNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Íslenska hljómplatan er hundrað ára
og af því tilefni verður vegleg dagskrá
í Norræna húsinu í allan dag. Dagskrá-
in er í umsjón Hljómplötuklúbbsins
íslensk tónlist sem var stofnaður fyrir
tveimur árum. Klúbburinn er vettvang-
ur fyrir hljómplötusafnara til að hittast
og bera saman bækur sínar og strax á
fyrsta fundi var það haft á orði að fyrsta
íslenska hljómplatan, með íslenska söng-
laginu Dalvísur með Pétri A. Jónssyni,
hafi komið út árið 1910. Skömmu síðar
var farið að skipuleggja afmælið.
Kristján Frímann Kristjánsson, for-
maður klúbbsins, er beðinn um að segja
frá fyrstu plötunni og nefna fleiri þætti
sem tilheyra gullöld íslenskra popptón-
listar. „Pétur A. Jónsson var óperusöngv-
ari í Þýskalandi skömmu eftir þarsíðustu
aldamót og drýgði tekjur sínar með því
að syngja inn á plötur í Danmörku. Hann
sendi Dalvísur til Íslands og þá varð ekki
aftur snúið.“ Kristján segir plötugerð og
-sölu hafa verið nokkuð stopula á Íslandi
fyrstu árin og enga í seinni heimsstyrj-
öldinni ef frá eru taldar djassplötur sem
bárust til landsins með hernum. Íslend-
ingum þótti það undarleg tónlist.
„Fysta rokklagið kom út árið 1957.
Það fékk nafnið Vagg og velta (rock and
roll) og var flutt af Erlu Þorsteinsdótt-
ur. Lagið var þó nær samstundis bann-
að þar sem textinn þótti dónalegur en
hann var útursnúningur úr vísunni Afi
minn fór á honum Rauð,“ segir Krisján.
Árið 1961 hljóðritaði Ómar Ragnarsson
sína fyrsu plötu en á henni voru meðal
annars lögin Sveitaball og Ást, ást, ást.
Ári seinna kom fyrsta lagið sem var
samið fyrir íslenska kvikmynd út en
það hét 79 af stöðinni. Titillinn breytt-
ist og það er nú þekkt sem Vegir liggja
til allra átta. Lagið var síðar valið dæg-
urlag aldarinnar á Íslandi.
Árið 1964 hóf tónlistar- og skemmti-
krafturinn Svavar Gests að gefa út
hljómplötur undir merkinu SG-hljóm-
plötur sem áttu eftir að verða lífsseig-
ar. „Árið 1971 kemur fyrsta og eina
stóra plata Ragga Bjarna út en á henni
er auk þess eina lagið sem hann hefur
samið. Það heitir Barn og er við ljóð
Steins Steinarr. Eftir kvennafrídag-
inn árið 1975 kom platan Áfram stelp-
ur út við góðar undirtektir og sama ár
kom hulduhljómsveitin Stuðmenn fram
á sjónarsviðið með plötu sína Sumar
á Sýrlandi. Hljómur plötunnar þótti
betri en áður hafði þekkst og vinnsla
hennar öll hin fagmannlegasta,“ segir
Kristján og heldur áfram: „Árið 1977
gaf Fálkinn út plötu með ellefu ára
óþekktri stúlku. Það þótti heldur sér-
stakt en lagið Arabadrengurinn náði þó
nokkrum vinsældum. Seinna átti stelp-
an Björk Guðmundsdóttir eftir að ná
heimsfrægð.” Áfram mætti lengi telja
en í anddyri Norræna hússins verður
sýning þar sem sagan verður rakin í
máli og myndum.“
Á dagskránni verða síðan erindi
um 78 snúninga plöturnar, smáskífur,
og hæggengar LP og SG hljómplötur
svo dæmi séu nefnd. Ómar Ragnars-
son verður heiðraður fyrir textagerð,
Garðar Thor Cortes syngur Dalvísur
og Ragnar Bjarnason flytur nokkur lög
sem komu út á fyrstu 45 snúninga plöt-
unum. Dagskráin endar á því að hljóm-
sveitin Þeyr kemur saman í fyrsta skipti
í 28 ár í tilefni 30 ára afmælis síns en
hún kom fyrst saman í Norræna hús-
inu árið 1980.
vera@frettabladid.is
ÍSLENSKA HLJÓMPLATAN: HUNDRAÐ ÁRA
Tónlistarsagan í tónum og tali
SAFNARI Kristján á myndarlegt SG-plötusafn. Hann hefur sett alla útgáfuna inn á Wikipediu en þar er að finna upplýsingar um hverja plötu fyrir
sig ásamt hljóðdæmum. Hér er hann með fyrstu plötu hljómsveitarinnar Þeys sem kemur saman í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
RIVER PHOENIX (1970-1993)
FÆDDIST ÞENNAN DAG.
„Grænmetishyggja er tengd
fullkomnun og friði.“
River Phoenix var bandarísk-
ur leikari sem lést langt fyrir
aldur fram.
Þennan dag árið 1967 fékk
íslenska landsliðið í knattspyrnu
skell sem aldrei gleymist, þegar
þeir töpuðu fjórtán tvö fyrir
Dönum á þjóðarleikvangi Dana
í Kaupmannahöfn. Þó í dag séu
liðin rúmlega fjörtíu ár síðan
hefur útreiðin síður en svo
gleymst.
Mörk Íslendinga gerðu þeir
Helgi Númason og Hermann
Gunnarsson. Mikill hugur hafði
verið í íslenska landsliðinu eftir
góðan árangur gegn Spánverj-
um en leikurinn reyndist verða
hin mesta háðung og eru þetta
mestu hrakfarir íslenskrar
knattspyrnu fyrr og síðar.
Í bókinni Knattspyrna í
heila öld kemur fram að
leikurinn hafi verið samfelld
hrakfallasaga hjá íslenska
liðinu, en tónninn var gefinn
þegar Elmar Geirsson fékk
bolta í höfuðið í búnings-
klefanum svo hann rotaðist
og gat ekki spilað með.
Staðan í hálfleik var 6:0 og
eftir leikhlé héldu dönsku
landsliðsmennirnir áfram að
skora hvert glæsimarkið á
fætur öðru.
ÞETTA GERÐIST 23. ÁGÚST ÁRIÐ 1967
Íslendingar tapa 14-2 fyrir Dönum
HERMANN GUNNARSSON
skoraði annað mark Íslendinga.
MERKISATBURÐIR
1914 Japan sagði Þýskalandi
stríði á hendur.
1942 Orrustan um Stalíngrad
hefst.
1946 Gunnar Huseby setur Evr-
ópumet í kúluvarpi í Ósló.
1954 Við fornleifauppgröft í
Skálholti finnst steinkista
Páls biskups Jónssonar,
sem lést 1211.
1989 Íbúar Eistlands, Lettlands
og Litháens mynda 600
km langa mennska keðju
og krefjast frelsis og sjálf-
stæðis.
2006 Austurríska stúlkan Nat-
ascha Kampusch slepp-
ur úr haldi mannræningja
eftir átta ára innilokun í
kjallara hans.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Mjallhvít Þorláksdóttir,
Hraunbæ 16, Reykjavík,
sem lést á dvalarheimilinu Mörk þriðjudaginn
7. ágúst, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju
miðvikudaginn 25. ágúst kl. 13.00.
Sigmar Eyjólfsson,
börn og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegs eiginmanns míns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Helga Felixsonar
húsasmiðs, Andrésbrunni 17, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi.
Fríða Freymóðsdóttir
Erla Helgadóttir Tómas Guðmarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigríður Árnadóttir
lést sunnudaginn 15. ágúst 2010 á sjúkradeild
Hornbrekku Ólafsfirði.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hornbrekku fyrir góða
umönnun.
Eiríkur Óskarsson Inga Hrönn Sigurðardóttir
Birna Óskarsdóttir Hilmar Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
Gunnlaugur Ó.
Guðmundsson
frá Ísafirði, Ársölum 1, Kópavogi,
lést laugardaginn 14. ágúst. Útför hans fer fram frá
Garðakirkju Álftanesi þriðjudaginn 24. ágúst kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Heimaþjónustu
Karitas og Krabbameinsfélag Íslands.
Jónína Nielsen
Theódóra Gunnlaugsdóttir Tryggvi Ólafsson
Guðmundur Gunnlaugsson Sólrún Anna Jónsdóttir
Margrét Gunnlaugsdóttir Sveinbjörn Jóhannsson
Sif Gunnlaugsdóttir
barnabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýjar
kveðjur vegna andláts
Jónínu Jónsdóttur
frá Gemlufalli, áður til heimilis
Safamýri 51, Reykjavík.
Sigríður Pétursdóttir Jan Overmeer
Jón Ágúst Pétursson Hólmfríður Helga Þórsdóttir
Ólafur Pétursson Anna M.Þ. Ólafsdóttir
Kristín Pétursdóttir Þröstur Harðarson
og barnabörn.
MOSAIK
Gjótuhrauni 8, 220 Hafnarfirði Sími: 571 0400, legsteinar@gmail.com
GRANÍT OG LEGSTEINAR
Fallegir legsteinar
á einstöku verði
Frí
áletr
un
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.