Fréttablaðið - 02.09.2010, Blaðsíða 60
40 2. september 2010 FIMMTUDAGUR
SÍMI 564 0000
12
16
16
12
14
10
L
L
L
SÍMI 462 3500
12
16
12
14
10
SCOTT PILGRIM VS THE WORLD kl. 8 - 10.10
THE EXPENDABLES kl. 8 - 10
VAMPIRES SUCK kl. 6 Síðasta sýning
SALT kl. 6 Síðasta sýning
SÍMI 530 1919
18
16
14
L
THE HUMAN CENTIPEDE kl. 5.50 - 8 - 10.10
THE EXPENDABLES kl. 5.40 - 8 - 10.20
SALT kl. 5.50 - 8 - 10.10
THE KARATE KID kl. 6 - 9
.com/smarabio
NÝTT Í BÍÓ!
SCOTT PILGRIM VS THE WORLD kl. 5.30 - 8 - 10.20
THE EXPENDABLES kl. 5.40 - 8 - 10.20
THE EXPENDABLES LÚXUS kl. 5.40 - 8 - 10.20
VAMPIRES SUCK kl. 4 - 6 - 10.30
SALT kl. 8 - 10.10
THE LAST AIRBENDER 3D kl. 3.20
LJÓTI ANDARUNGINN OG ÉG kl. 3.30 (650 kr.)
KARATE KID kl. 5.10
SHREK 4 2D ÍSL TAL kl. 3.30
I T ’ S T H E C O O L E S T J O B E V E R .
ÆÐISLEG FJÖLSKYLDUMYND
MEÐ FRÁBÆRUM HÚMOR
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
EF ÞÚ FÍLAR SO YOU THINK YOU CAN DANCE
ÞÁ ÁTTU EFTIR AÐ ELSKA STEP UP
BESTA DANSMYND SEM GERÐ HEFUR VERIÐ
SÍÐAN DIRTY DANCING VAR OG HÉT...
ÁLFABAKKA KRINGLUNNI
AKUREYRI
SELFOSSI
7
7
7
7
7
L L
L
L
L
L L
L
L
12
12
12
12
STEP UP 3-3D kl. 5:40 - 8 - 10:20
HUNDAR OG KETTIR 2-3D ísl. Tali kl. 6
HUNDAR OG KETTIR 2 M/ ísl. Tali kl. 6
LETTERS TO JULIET kl. 8 - 10:20
THE SORCERER´S APPRENTICE kl. 8 - 10:20
INCEPTION kl. 7 - 8 - 10
INCEPTION kl. 7 - 10
SHREK SÆLL ALLA DAGA M/ ísl. Tali kl. 6
STEP UP 3-3D kl. 5:40 - 8 - 10:20
LETTERS TO JULIET kl. 8
HUNDAR OG KETTIR 2-3D M/ ísl. Tali kl. 6
THE LAST AIRBENDER kl. 10:50
INCEPTION kl. 8 - 10:10
LEIKFANGASAGA 3 M/ ísl. Tali kl. 5:50
STEP UP-3D kl. 8 - 10
LETTERS TO JULIET kl. 8
INCEPTION kl. 10STEP UP 3 kl. 8 - 10:20
VAMPIRES SUCK kl. 8 - 10
BESTA SKEMMTUNIN
- bara lúxus
Sími: 553 2075
SCOTT PILGRIM 5.45, 8 og 10.15 12
EXPENDABLES 5.45, 8 og 10.15 16
OTHER GUYS (FORSÝNING) 10.15 12
SALT 8 16
FORSÝNING
Þ.Þ. -FBLE.Þ.E - DVT.V. - kvikmyndir.isS.V. - MBL
TOPP MYNDIN Í DAG Á ÍSLANDI OG USA!
Fimmta plata Orra Harðar-
sonar, Albúm, er komin út.
Samfélagsrýni er meira
áberandi en áður og í fyrsta
sinn fær kassagítarinn að
njóta sín til fullnustu.
Fimmta plata tónlistarmanns-
ins Orra Harðarsonar, Albúm, er
komin út. Fimm ár eru liðin síðan
síðasta plata hans, Trú, leit dagsins
ljós en hún var tilnefnd til Íslensku
tónlistarverðlaunanna sem plata
ársins.
„Ég ákvað í apríl að ég ætlaði að
gera plötu á þessu ári. Ég fór austur
á Skriðuklaustur í nokkra daga og
vann þetta efni meira og minna. Þar
var gott að vera,“ segir Orri, sem er
uppalinn á Akranesi en hefur búið
á Akureyri undanfarin ár.
Tíu lög eru plötunni, sem er lág-
stemmd eins og fyrri verk Orra. Í
fyrsta sinn notaði hann eingöngu
kassagítar við upptökurnar og vildi
með því fagna því að 25 ár eru liðin
síðan hann kom fyrst fram opinber-
lega, þá með kassagítar að vopni í
Íþróttahúsinu á Akranesi aðeins
tólf ára. Orri segir það hálfgerða
synd hversu lítið hefur farið fyrir
kassagítarnum á plötum hans til
þessa. „Hann hefur aldrei fengið að
vera í forgrunni, hvorki á mínum
eigin plötum né þegar ég hef verið
að taka upp fyrir aðra. Ég ákvað að
gera plötu sem yrði bara með einn
kassagítar en samt ekki endilega í
hefðbundnum trúbadorastíl,“ segir
hann og bætir við: „Mér leið svolítið
eins og ég væri kominn heim, að
gangast við kassagítarnum aftur.
Á tíunda áratugnum þegar ég var
mest áberandi og að gera mínar
fyrstu plötur var ég mikið að spila
á kassagítar. Þá fór í taugarnar á
mér þessi trúbadorastimpill og
ég fór að reyna að hrista hann af
mér. Þannig að ég hef forðast þetta
hljóðfæri meðvitað.“
Albúm er einnig fyrsta plata
Orra þar sem hann er ekki ein-
göngu að syngja um eigið líf. Þess
í stað koma hin ýmsu samfélagsmál
við sögu. „Hinar plöturnar voru
mikið inn á við. Þetta voru tilfinn-
ingar, hvort sem það var sorg eða
ást eða eitthvað þar á milli. Mig
langaði að líta aðeins upp úr nafla-
lónni og horfa í kringum mig.“
Orri ætlar að vera duglegur við
að fylgja nýju plötunni eftir og
útgáfutónleikar verða haldnir á
Rósenberg 9. september kl. 21.30.
Spurður hvort hann sé ekki sáttur
við árin 25 í tónlistinni hefur hann
þetta að segja: „Það er fullt af hlut-
um sem maður hefur gert og komið
nálægt sem manni þykir ekki mikið
til koma í dag. Svo er annað mjög
gott, eins og almennt í lífinu. En
þetta er rétt að byrja. Ég var bara
á hálfum hraða og við hálfa heilsu
hluta af þessum 25 árum. Næstu 25
verða örugglega betri.“
freyr@frettabladid.is
Kassagítarinn loks í fyrirrúmi
25 ÁRA FERILL AÐ BAKI Orri Harðarson er að gefa út sína fimmtu sólóplötu, Albúm. Hann á að baki 25 ára feril í tónlistinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
„Við erum búnir að gera þetta í
fjölda ára. Þetta er bara gert af
hugsjón,“ segir Halldór Jónsson,
eða Dóri tjakkur.
Hið árlega trukkakvöld Dóra
tjakks verður haldið á Spot í Kópa-
vogi á laugardagskvöld. Þar hitt-
ast hundruð trukkabílstjóra og
annarra aðila sem tengjast þess-
um risavöxnu tryllitækjum, fá
sér að borða og skemmta sér fram
á rauða nótt undir sykursætum
tónum Hunangs.
Dóri byrjaði á þessum kvöldum
fyrir hátt í tíu árum. Þá voru þau
smá í sniðum þar sem einungis
nokkrir félagar hittust. Núna hefur
viðburðurinn vaxið gríðarlega og
hefur Dóri því haft í nógu að snúast
á hverju ári í kringum trukkakvöld-
in. „Þetta væri ekki hægt nema
með góðum félögum og styrktar-
aðilum. Öðruvísi væri ekki hægt
að gera þetta. Ég hef alltaf ætlað
að fá aðra í þetta en það eru margir
sem vilja tala en enginn vill fram-
kvæma,“ segir hann. „Þetta er eins
og ríkis stjórnin. Hún talar og talar
en framkvæmir ekki.“
Dóri sér samt ekki eftir vinnunni
sem fer í eitt svona kvöld. „Þegar
erfiðið er búið er þetta gaman en
þetta er hellings vinna. En maður
lætur hafa sig í þetta. Ég hef ekki
gert annað í 37 ár en að keyra stór-
an bíl og þetta er það eina sem ég
þekki. Ég er tvisvar búinn að reyna
að hætta þessu en það var ekki
hægt. Þetta er svo frjáls og þægi-
leg vinna að það er ekkert sem ýtir
manni úr þessu héðan af.“ -fb
Trukkabílstjórar dansa á Spot
DÓRI TJAKKUR Halldór Jónsson ásamt
trukknum sínum sem vekur mikla
athygli hvert sem hann fer, enda hefur
hann unnið til nokkurra verðlauna.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN