Fréttablaðið - 02.09.2010, Blaðsíða 72
Mest lesið
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
Horfði á strákana
Þéttsetið var á haustþingi nýsköp-
unar- og frumkvöðlasetursins
Innovit í Háskólanum í Reykjavík
í gær. Þar var nokkuð rætt um
umhverfi sprotafyrirtækja hér og í
Kísildalnum svokalla, Silicon Valley
í Bandaríkjunum, sem hefur verið
vagga nýjunga vestanhafs um
áratuga skeið. Bæði ræðumenn og
gestir, sem framarlega hafa verið
í frumkvöðlastarfi hér, hafa dvalið
þar í lengri og skemmri tíma bæði
í námi og vinnu. Helga Valfells,
framkvæmdastjóri Nýsköpunar-
sjóðs atvinnulífsins, viður-
kenndi í erindi sínu að
þangað hafi hún ekki
komið síðan hún var
átján ára. Og ekki voru
það frumkvöðlarnir
sem heilluðu hana.
„Þar var ég að horfa
á sæta verkfræðinga,
ekki að fylgjast með
frumkvöðlum,“
sagði hún.
Á myndum með
stórstjörnum
Darri Ingólfsson, leikarinn úr
kvikmyndinni Boðbera, er smám
saman að koma sér fyrir í kvikmynda-
paradísinni Hollywood. Eins og
gefur að skilja er varla þverfótað fyrir
frægu fólki á götum úti og hefur leik-
arinn verið svo lánsamur að rekast
á nokkrar stjörnur. Darri hitti þannig
Jason Segal, eina af aðalstjörnum
sjónvarpsþáttarins How I Met Your
Mother, en hann ku víst heimsækja
veitingastaðinn sem Darri
vinnur á. Þá spjallaði
Darri stuttlega við Busta
Rhymes en ef marka
má myndirnar af þeirra
fundum á samskipta-
síðunni Facebook
virðist Busta gera
lítið annað en að
vera fastagestur á
veitingastöðum.
- jab, fgg
f u l l a r b ú ð i r a f n ý j u m v ö r u m !
1 Haraldur Flosi furðar sig á
myndbandi um eldhús OR
2 Líkamsræktarstöðvar
skuldfæra gegn vilja neytenda
3 Lögregla skoðar myndasafn í
tengslum við morðið
4 Þórunn Sveinbjarnardóttir
grínast í fréttamanni RÚV
5 Hélt að Össur væri að tala
um tollhliðið á Seltjarnarnesi
6 Boeing Dreamliner á
Keflavíkurflugvelli