Fréttablaðið - 14.09.2010, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 14.09.2010, Blaðsíða 31
ÞRIÐJUDAGUR 14. september 2010 19 Tónleikar/ ★★★★ Sinfóníutónleikar í Háskóla- bíói Einleikari: Víkingur Heiðar Ólafsson Stjórnandi: Ivan Volkov. Djöfullinn kom á tónleika Sinfóní- unnar á föstudagskvöldið. Og mað- urinn með ljáinn. Á dagskránni voru Dauðadans og Djöflavals eftir Liszt, hugleið- ingar eftir Rakmaninoff um mann sem sagður var hafa gert samn- ing við djöfulinn, og fleira góð- gæti. Einleikari var píanistinn Víkingur Heiðar Ólafsson. Hann var klæddur í stíl við tónlistina, í svörtum fötum með rautt hálstau. Sakleysisleg hárgreiðslan var þó í undarlegri mótsögn við fatastílinn. Manni datt í hug fermingardreng- ur sem hefur lent á villigötum og liggur yfir bókum um svartagald- ur. En Víkingur var ekki á nein- um villigötum við píanóið. Dauða- dansinn, Totentanz eftir Liszt, lék í höndum hans. Miðaldastemning- in í músíkinni var sterk og gríp- andi, innhverfir hlutar verksins myrkir og hraðir kaflar þrungn- ir sprengikrafti. Án efa var þetta með því flottasta sem ég hef heyrt frá Víkingi. Rakmaninoff kom ekki alveg eins vel út. Tónlistin er röð til- brigða um stef eftir Paganini, fiðlu- snillinginn sem var svo flinkur að mönnum þótti það yfirnáttúrulegt. Vissulega var djöfullegur kraftur í leik Víkings, og hann spilaði líka af nákvæmni. Það vantaði bara frásögnina í túlkunina. Uppbygg- ingin var ekki nægilega markviss. Útkoman var fremur flöt; það gerð- ist ekki margt í tónlistinni. Maður hafði stundum á tilfinningunni að Víkingur væri að flýta sér. Ramminn utan um píanóein- leikinn var hljómsveitarverk. Fyrst var hinn líflegi Rúmenski konsert eftir György Ligeti, sem lést fyrir nokkrum árum. Kons- ertinn byggir á þjóðlögum og var sérlega skemmtilegur í meðförum hljómsveitarstjórans, Ilans Volkov. Sinfónían spilaði einstaklega vel, hver hljóðfærahópur var með sitt á hreinu. Konsertmeistarinn Sigrún Eðvaldsdóttir átti nokkur glæsileg sóló. Útkoman var hreint út sagt rafmögnuð. Minna er hægt að segja um ómerkilega hljómsveitarútgáfu á Djöfla-, eða Mefistóvalsinum eftir Liszt, sem á eftir kom. Hann hefði sómt sér ágætlega á Vínartónleik- um. En Eldfuglinn eftir Stravinskíj, lokaverk tónleikanna, var frábær! Þetta er upphaflega balletttónlist, en hér voru leiknir úr henni sex samhangandi kaflar. Volkov hélt utan um alla þræði af gríðarlegri festu og öryggi, skapaði ævintýra- heim ótal lita og blæbrigða. Stíg- andin var svo vel útfærð að maður gersamlega gleymdi sér við að hlusta. Volkov er flottur stjórnandi, helst mátti finna að dálítið litlaus- um meðleik í einleiksverkinu eftir Liszt. Bragðmikil túlkun píanó- leikarans fékk ekki mikinn stuðn- ing frá hljómsveitinni. Sem betur fer var Víkingur þar í svo mikl- um ham að það héldu honum engin bönd. Jónas Sen Niðurstaða: Í það heila flottir tón- leikar, Víkingur Heiðar spilaði Liszt af stakri glæsimennsku, en Rakmaninoff var aðeins síðri. Stjórnandinn Ilan Volkov átti víða frábæra spretti. Maðurinn með ljáinn Á ÆFINGU Dauðadans Liszts er með því flottasta sem tónlistarrýnir hefur heyrt frá Víkingi Heiðari. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Auglýsingasími Allt sem þú þarft… Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755 Ýsuflök, lúðuflök, þorskflök, steinbítsflök, gellur, saltfiskur, allir fiskréttir marineraðir og svo framvegis. 1290kr. kg. Núna spörum við fyrir þig! Aðeins eitt verð á öllum ferskum fiski í fiskborði Tilboðið gildir alla vikuna Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755 Sogavegur Baltasar Kormákur og Sögn ehf kynna KJARTAN GUÐJÓNSSON ÓLAFÍA HRÖNN JÓNSDÓTTIR Kvikmynd eftir Grím Hákonarson FRUMSÝND 17. SEPTEMBER

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.