Fréttablaðið - 14.09.2010, Blaðsíða 10
10 14. september 2010 ÞRIÐJUDAGUR
1. Hvað hamlar Herjólfi í inn-
siglingu Landeyjahafnar?
2. Hvaða háskólar ræða þessa
dagana mögulega sameiningu?
3. Hvar er Þorláksbúð?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 26
KJARAMÁL Launabil hjá starfsmönn-
um almannaþjónustunnar og þeim
á almenna vinnumarkaðnum í sam-
bærilegum starfsgreinum er 18
prósent.
Félögin SFR og VR létu kanna
laun fyrir starfsmenn félaganna
og í ljós kom að þegar tekið hefur
verið tillit til kyns, aldurs, starfs-
stéttar, starfsaldurs, vinnutíma,
vaktaálags og menntunar er mun-
urinn á heildarlaunum félagsmanna
SFR og VR 18 prósent, en hann var
15 prósent í fyrra en tuttugu pró-
sent árið 2008.
Meðallaun hjá félögum í SFR eru
um 325.035 krónur fyrir fullt starf
en 422.027 krónur hjá félögum VR
fyrir sambærilegt starf. Heildar-
laun hjá VR hækkuðu að meðaltali
um 4,6 prósent árið 2009 en ein-
ungis um 1,6 prósent hjá félögum
SFR.
Einnig kemur fram í könnuninni
að kynbundinn launamunur meðal
félagsmanna SFR hefur minnkað
milli ára, úr 11,8 prósentum í 9,9
prósent. Þó hækkuðu heildarlaun
kvenna hlutfallslega minna heldur
en heildarlaun karla árið 2009, eða
um 0,5 prósent en hjá körlum um
3,8 prósent. Launakönnun SFR og
VR er ein stærsta vinnumarkaðs-
könnun landsins og er framkvæmd
af Capacent á meðal félagsmanna
beggja félaganna. - sv
Starfsmenn á almennum vinnumarkaði fá hærri laun en hjá því opinbera:
Allt að átján prósenta munur
MIKILL LAUNAMUNUR Launakönnun SFR og VR sýnir að fólk á almennum vinnu-
markaði þénar allt að 18 prósenta hærri laun en þeir sem eru á þeim opinbera.
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu stöðvaði ökumann
í nágrenni Reykjavíkur eftir að
tilkynning barst um að ökumaður
bifreiðar hefði sést spila á fiðlu
undir stýri.
Fann lögreglan manninn skjótt
og stöðvaði hann. Sagðist hann
þó einungis hafa sveiflað fiðlunni
með annarri hendi en ekki spilað
á hana. Hin höndin hafði verið á
stýrinu allan tímann. Fékk öku-
maðurinn að halda fiðlunni en
bifreiðin var gerð upptæk þar
sem hún reyndist ótryggð. - sv
Tónlistarmaður undir stýri:
Stöðvaður við
fiðlusveiflur
STJÓRNMÁL Ólafur Ragnar
Grímsson forseti Íslands
fór ekki dult með þá skoð-
un sína, í viðtali við kín-
verska blaðið Global
Times, að almenningur á
Íslandi ætti ekki að borga
brúsann fyrir Icesave-
reikninga Landsbankans.
„Fólk sem leggur pen-
inga sína inn í einkabanka
verður að átta sig á því að
þetta er einkabanki. Þetta er ekki
ríkisbanki. Og Evrópufyrirkomu-
lagið um einkabanka er byggt
á þeirri meginreglu að
ríkisábyrgð sé ekki fyrir
hendi,“ er haft eftir honum
í viðtalinu.
Ólafur Ragnar segir
jafnframt að þegar vel
gangi í þessum bönkum
þá gangi gróðinn alfarið
til eigenda og stjórnenda
bankans.
„Það er ósanngjarnt
að krefja almenning á
Íslandi, fólk sem býr í þorpum,
landbúnaðarhéruðum eða sjávar-
útvegsbyggðum, kennara, hjúkr-
unarkonur, lækna og verksmiðju-
fólk, að greiða þessa reikninga
ef bankarnir bregðast. Þetta fólk
fékk engan hagnað frá bönkunum.
Það er ekki skynsamlegt kerfi,“
segir.
Samningaviðræður íslenskra
stjórnvalda við Hollendinga og
Breta um Icesave-málið hafa
gengið afar hægt síðan lögum um
samning var hafnað í þjóðarat-
kvæðagreiðslu í byrjun mars, sem
efnt var til í kjölfar þess að Ólaf-
ur Ragnar neitaði að undirrita þau
lög. - gb
Forseti Íslands harður á afstöðu sinni til Icesave í blaðaviðtali í Kína:
Almenningur á ekki að borga
ÓLAFUR RAGNAR
GRÍMSSON
VEISTU SVARIÐ?
Zzzzzzzúúúúmmmm …
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
3
0
18
Mikið úrval af frábærum tilboðum - líttu við