Fréttablaðið - 14.09.2010, Síða 34

Fréttablaðið - 14.09.2010, Síða 34
 14. september 2010 ÞRIÐJUDAGUR22 sport@frettabladid.is FRAM 2-1 KEFLAVÍK 1-0 Halldór Hermann Jónsson (36.) 1-1 Jón Guðni Fjóluson, sjálfsm. (44.) 2-1 Almarr Ormarsson (77.) Laugardalsvöllur, áhorf.: Óuppgefið. Dómari: Þóroddur Hjaltalín (7) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 18–10 (11–7) Varin skot Hannes 4 – Ómar 8 Horn 6–3 Aukaspyrnur fengnar 11–8 Rangstöður 3–1 Fram 4–4–2 Hannes Þór Halldórsson 6 – Daði Guðmundsson 6, Kristján Hauksson 7, Jón Guðni Fjóluson 7, Sam Tillen 6 – Halldór H. Jónsson 7, Jón G. Eysteinsson 6, Tómas Leifsson 6 (89. Jón Orri Ólafsson -), *Almarr Ormarsson 7, Joe Tillen 4 (73. Hlynur Magnússon -) – Ívar Björnsson 6. Keflavík 4–3–3 Ómar Jóhannsson 6 – Guðjón Árni Antoníusson 6, Haraldur Freyr Guðm. 5, Alen Sutej 5, Brynjar Guðm. 3 (83. Arnór Traustason -), – Hólmar Örn Rúnarsson 6, Andri Steinn Birgisson 5 (83. Bojan Ljubicic -), Magnús Sv. Þorsteinsson 3, Guðmundur Steinarsson 4, Hörður Sveinsson 3, Haukur Ingi Guðnason 5 (70. Magnús Þórir Matt. 3) 5 SÖLVI GEIR OTTSEN verður í kvöld fimmti Íslendingurinn sem spilar í Meistaradeild Evrópu ef hann kemur við sögu í leik FC Kaupmannahöfn gegn Rubin Kasan frá Rússlandi. Hinir eru Árni Gautur Arason, Eiður Smári Guðjohnsen, Helgi Sigurðsson og Eyjólfur Sverrisson. FÓTBOLTI Kristjáni Guðmunds- syni var í gær sagt upp störfum hjá knattspyrnuliði HB frá Þórs- höfn í Færeyjum. Liðið á titil að verja þar í landi en er nú í 2. sæti deildarinnar. Hann var ráðinn til félagsins í nóvember í fyrra. „Formaður og einn stjórnar- manna félagsins birtust heima hjá mér eftir hádegi í dag [í gær] og tilkynntu mér þetta,“ sagði Kristján við Fréttablaðið. „Ég er ekki sammála þessu. Gengið hefur að vísu verið misjafnt en liðið á enn mjög góðan möguleika á titlinum.“ HB gekk vel í Evrópudeildinni og vann til að mynda Red Bull Salzburg frá Austurríki á heima- velli, 1-0. „Það er langt síðan fær- eyskt lið vann sigur í Evrópu- keppni. Ég er því ekki að kaupa þessar útskýringar.“ Hann segir að dvölin í Færeyj- um hafi verið lærdómsrík en nú snúi hann aftur heim. „Þetta er talsvert mikið öðruvísi en ég hef vanist. Aðstæður eru til dæmis verri og hugsunarháttur annar. Ég tel að ég hafi ekki fengið nægan tíma til að aðlagast nýju umhverfi eða leikmönnunum sjálfum.“ - esá Kristján rekinn frá HB: Öðruvísi en ég hef vanist KRISTJÁN Er aftur á leið til Íslands eftir dvöl í Færeyjum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR FÓTBOLTI Ummæli sem birtust í frétt á heimasíðu KR í síðustu viku verða tekin fyrir á fundi aganefndar KSÍ í dag. Þetta kom fram á vefsíðunni Fótbolti.net í gær. Í fréttinni var því lýst yfir að KR treysti ekki Erlendi Eiríks- syni dómara. Hann dæmdi leik ÍBV og KR um helgina sem síðar- nefnda liðið vann, 4-2. Erlendur dæmdi einnig bikar- úrslitaleik FH og KR og voru KR- ingar ósáttir við störf hans í þeim leik. - esá KR mögulega refsað: Ummæli KR fyrir aganefnd RÚNAR KRISTINSSON Þjálfari KR fagnar í leik liðsins í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FÓTBOLTI U-21 landslið Íslands mætir Skotlandi á Laugardals- velli 7. október næstkomandi. Liðin mætast fjórum dögum síðar í Skotlandi en sigurvegari viður- eignanna kemst í úrslitakeppni Evrópumóts U-21 landsliða í Dan- mörku á næsta sumri. A-landslið Íslands mætir Portú- gal á Laugardalsvelli 12. október. - esá Umspil í EM U-21 landsliða: Spilað á Laug- ardalsvelli FÓTBOLTI Framarar unnu 2-1 sigur á Keflavík í lokaleik 19. umferðar Pepsi-deildar karla á Laugardals- vellinum í gær. Framarar voru sterkari aðilinn og sköpuðu sér mun fleiri færi í leiknum eink- um í fyrri hálfleiknum þegar Ívar Björnsson var óheppinn að skora ekki. Þeir þurftu hins vegar þol- inmæði til að ná inn sigurmark- inu á móti þéttu Keflavíkurliði en það gerði Almarr Ormarsson á lag- legan hátt þrettán mínútum fyrir leikslok. „Þetta er mjög sætt. Þetta er svolítið að detta inn fyrir mig núna og ég er mjög ánægður með það,“ sagði Almarr Ormarsson, hetja Framara. „Sigurmarkið var mjög sætt. Ég fékk smá pláss og hitti hann ágætlega. Sennilega hjálpaði bleytan mér töluvert eins og í fyrra markinu okkar en maður verður að nýta sér aðstæður,“ sagði Almarr kátur. Halldór Hermann Jónsson hafði komið Keflavík í 1-0 með laglegu skoti fyrir utan teig sem spýttist á grasinu og í markið. Framliðið hafði undirtökin í leiknum og skapaði sér heilmikið í fyrri hálfleiknum. Keflvíkingar náðu hins vegar að jafna leikinn í lok hálfleiksins þegar Jón Guðni Fjóluson varð fyrir því áfalli að skora sjálfsmark. „Auðvitað vorum við klaufar að hleypa þeim aftur inn í leikinn eftir að við komumst yfir og þetta var svona svipað eins og í fyrri leiknum á móti þeim. Þá áttum við að klára þá en í dag héldum við sem betur fer áfram og kláruð- um dæmið. Við ætluðum ekki að gefa þeim eitthvað jafntefli aftur,“ sagði Almarr. Framliðið virtist vera að gefa eftir í júli og ágúst þegar liðið tap- aði fimm af sex leikjum sínum en hefur nú snúið við blaðinu og sig- urinn í gær var sá þriðji í röð. „Ágúst var lélegur mánuður og eiginlega júlí líka. Sem betur fer er þetta að koma hjá okkur í lokin. Við erum að reyna að safna stigum því ef liðin fyrir ofan okkur klikka þá gætum við kannski skriðið upp fyrir þau. Það er draumurinn en annars verðum við bara að klára okkar leiki,“ sagði Almarr bjart- sýnn en Fram er fimm stigum á eftir KR þegar þrjár umferðir eru eftir. „Við stefnum á að verða ekki neðar en í fimmta sætinu en von- andi komust við hærra. Ef hin liðin halda áfram að safna stigum þá verðum við bara að sætta okkur við fimmta sætið. Það er ágætt miðað við það hvernig miðjan á mótinu var hjá okkur,“ sagði Alm- arr sem er sjálfur sjóðheitur upp við markið þessa dagana. Hann skoraði 3 mörk í fyrstu 16 leikjum en hefur nú skorað fjögur í síðustu þremur. „Það hjálpar manni alltaf að skora því þá lyftist kassinn aðeins. Þetta gekk ekki alveg nógu vel í fyrri hluta mótsins en ég ákvað bara að halda áfram og reyna að troða honum inn oftar og það er sem betur fer að ganga núna,“ sagði Almarr sem átti fínan leik með Fram í gær. Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur, þurfti að horfa upp á enn eitt tap sinna manna en þetta var það fjórða í síðustu fimm leikj- um og sigrarnir eru aðeins tveir í fjórtán leikjum síðan í maí. „Það var óþarfi að tapa þessum leik. Mér fannst við vera undir á miðsvæðinu í fyrri hálfleik en spil- uðum ágætlega og færðum bolt- ann í gegnum liðið. Við þurftum að vera skarpari í baráttunni. Þeir eru baráttuglaðir og vinnusamir inni á miðjunni sérstaklega. Mér fannst við laga það í seinni hálf- leik og við spiluðum fínan leik en þá gerum við barnaleg mistök. Við afhendum þeim boltann þegar lá ekkert á og því fór sem fór. Þessi leikur gat dottið hvorum megin sem var,“ sagði Willum sem var búinn að setja stefnuna á fimmta sætið. „Við ætluðum að hoppa upp um þrjú sæti í þessum tveimur leikjum sem við eigum á þremur dögum en við verðum bara að anda með nef- inu og mæta almennilega á móti Val sem er á hörkusiglingu,“ sagði Willum Þór að lokum. ooj@frettabladid.is Vildum ekki gefa þeim aftur jafntefli Almarr Ormarsson og félagar í Fram eru í stuði en þeir unnu í gær 2-1 sigur á Keflavík. Hann finnur sig vel á Laugardalsvellinum því hann fylgdi eftir þrennu á móti Selfossi með því að skora sigurmarkið í gær. FRAMARAR FAGNA Halldór Hermann Jónsson skoraði fyrra mark Fram í leiknum í gær. Hér fagna Framarar marki hans. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Stoke fékk í gær sín fyrstu stig á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni er liðið vann 2-1 dramatískan sigur á Aston Villa á heimavelli. Fyrir leikinn hafði Stoke tapað fyrstu þremur leikj- um sínum en það var varnarmað- urinn Robert Huth sem tryggði liðinu sigurinn með marki í lok uppbótartímans. Eiður Smári Guðjohnsen var í fyrsta sinn í leikmannahópi Stoke síðan hann gekk í raðir félagsins í lok síðasta mánaðar. Hann var á varamannabekknum í gær og kom ekki við sögu í leiknum. Fyrir leikinn var greint frá því að Tony Pulis myndi ekki stýra liðinu í leiknum þar sem móðir hans lést fyrr um daginn. „Hann var ekki ánægður í hálf- leik og varð fyrir miklum von- brigðum með það sem hann sá,“ sagði Matthew Ethrington, leik- maður Stoke, eftir leikinn. „Hann hélt að það myndi reynast honum ofviða að vera með okkur í þess- um leik en eftir fyrri hálfleikinn og miðað við hvernig við spiluðum þá ákvað hann að mæta á hliðar- línuna.“ Gestirnir frá Birmingham voru mun betri í fyrri hálfleik og kom- ust yfir með skallamarki Stewarts Downing. Stoke var þó heppið að vera ekki meira undir í hálfleik. Eftir því sem leið á síðari hálf- leikinn sóttu heimamenn í sig veðrið og jöfnuðu metin með öðru skallamarki leiksins, í þetta sinn frá Kenwyne Jones sem um leið skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið. Hann hélt upp á það með heljarstökki. „Það er langt síðan ég tók helj- arstökkið síðast. En ég fékk nokk- ur færi í kvöld og náði að klára markið eftir frábæra sendingu frá Matty [Ethrington].“ Annar nýliði í leikmannahópi Stoke, Jermaine Pennant, kom inn á sem varamaður í leiknum og fiskaði ódýra aukaspyrnu í upp- bótartímanum. Mark Huth kom í kjölfar hennar, aftur eftir send- ingu Ethrington. Stylian Petrov, sem var dæmd- ur brotlegur eftir viðskiptin við Pennant, fékk að líta gula spjald- ið eftir leik fyrir kröftug mótmæli við áðurnefndri aukaspyrnu. - esá Eiður Smári Guðjohnsen var á bekknum er Stoke vann 2-1 sigur á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni: Pulis kom í hálfleik og Stoke sigraði LÉTTIR Stoke fékk sín fyrstu stig á tímabilinu í gær. Robert Huth var hetja Stoke. NORDIC PHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.