Fréttablaðið - 25.09.2010, Page 8
8 25. september 2010 LAUGARDAGUR
SVEITARSTJÓRNIR Fulltrúar minni-
hluta S-lista Samfylkingarinnar í
bæjarstjórn Blönduóss segja meiri-
hluta L-listans leggja „blessun sína
yfir stórfellda eyðslu umfram fjár-
heimildir“ með endurskoðun fjár-
hagsáætlunar fyrir árið 2010.
„Fulltrúar S-lista mótmæla
þessari óráðsíu með skattfé íbúa
sveitarfélagsins harðlega“, segir í
bókun S-listans. „Framúrkeyrsla
á einum framkvæmdalið um 130
milljónir króna (87 prósent) á átta
mánuðum er algerlega ólíðandi og
ætti að kalla á sérstaka rannsókn á
þeim embættisfærslum sem að baki
liggja,“ segja S-listafulltrúarnir. Er
þar vísað til þess að á þessu ári hafi
átt að verja 150 milljónum króna til
að ljúka byggingu sundlaugar. Talan
hafi endað í 280 milljónum.
„Þessi óráðsía, óvönduðu vinnu-
brögð og jafnvel í einhverjum til-
vikum lögbrot í ráðstöfun fjármuna
sveitarfélagsins lýsa virðingarleysi
meirihlutans fyrir íbúum þess,“
segir S-listinn.
Ágúst Þór Bragason, fulltrúi L-
listans, segir að við gerð fjárhags-
áætlunar í fyrrahaust hafi menn
ekki haft yfirsýn yfir kostnaðinn,
meðal annars þar sem verið var að
byggja við eldra hús og hönnunar-
vinnu ólokið. Talan 150 milljónir
hafi þó verið sett í áætlunina.
„Síðan fjallaði bæjarstjórn um
þetta á fundum á fyrri hluta árs-
ins og tók ákvarðanir um búnað og
annað sem var keypt.“ Ágúst minn-
ir á að núverandi meirihluti hafi
ekki tekið við fyrr en daginn áður
en sundlaugin var opnuð um miðjan
júní. Fyrri bæjarstjórn hafi staðið
einhuga að framkvæmdunum. „Svo
á að hengja nýkjörna fulltrúa. Mér
finnst það ódýr málflutningur.“
Að sögn Ágústs gerði kostnaðar-
áætlun á árinu 2008 ráð fyrir því að
sundlaugin myndi í heild kosta 340
milljónir króna. Framreiknuð til
dagsins í dag sé sú upphæð um 420
milljónir. Nú líti út fyrir að heildar-
kostnaður verði 490 til 500 milljónir.
„Frávikið er 15 til 20 prósent frá því
fyrir hrun. Það kalla ég ekki stórt
frávik á svona stórri framkvæmd,“
segir Ágúst. - gar
Fulltrúar minnihlutans gagnrýna háan kostnað við nýja sundlaug á Blönduósi:
Sundlaugin sögð vera óráðsía
SUNDLAUGIN Á BLÖNDUÓSI Heildarkostnaður við nýja sundlaug á Blönduósi verður
um hálfur milljarður króna. MYND/GUÐMUNDUR HARALDSSON
Komdu í heimsókn
og gerðu góð kaup.
Skoðaðu tilboðin á
heimasíðu okkar,
í september
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
101 Skuggahverfi | Hátúni 2b | 105 Reykjavík
Sími 594 4200 | Fax 594 4201 | www.101skuggi.is
16
SKÚLAGATA
14
LINDARGATA
2. áfangi
3. áfangi
FR
A
K
K
A
S
TÍ
G
U
R
V
A
TN
S
S
TÍ
G
U
R
37 39
18
20
22
101 Skuggahverfi er þyrping íbúðabygginga í miðborg
Reykjavíkur á einum fegursta útsýnisstað borgarinnar þar
sem íbúarnir njóta nálægðar við iðandi mannlíf og þjónustu
sem miðborgin hefur upp á að bjóða. Nánari upplýsingar
eru veittar á skrifstofu félagsins að Hátúni 2B í síma
594-4210/660-4210, netfang: thorsteinn@101skuggi.is
Í hjarta Reykjavíkur
101 SKUGGAHVERFI HEFUR EFTIRFARANDI FASTEIGNIR
TIL SÖLU, Í HEILD EÐA AÐ HLUTA:
VATNSSTÍG 16-18, 40 íbúðir, 5.665 birtir m²
VATNSSTÍG 14, 8 íbúðir, 1.007 birtir m²
LINDARGÖTU 37, 31 íbúð, 3.755 birtir m²
Fasteignirnar afhendast á ólíkum byggingarstigum.
Auk þess er til sölu byggingarréttur fyrir:
LINDARGÖTU 39, 3.789 birtir m²
VATNSSTÍG 20-22, 5.822 birtir m²
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
A
E
5
13
29
0
9/
10
Au
gl
ýs
in
ga
sím
i
STJÓRNMÁL Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, varar við því að matsákvæði
séu notuð í málum ráðherranna
fyrrverandi sem meirihluti þing-
mannanefndar leggur til að verði
ákærðir fyrir landsdómi. Þingið
sé komið í algerar ógöngur verði
farið að tillögunum.
Í grein í Morgunblaðinu í gær
bendir Bjarni á að ef sækja eigi
málin á grundvelli mats, megi að
sama skapi sækja ráðherra í sitj-
andi ríkisstjórn til saka fyrir við-
bragðaleysi þegar hæstaréttar-
dómurinn í gengislánamálinu féll í
sumar. Þá hafi nefnd um fjármála-
legan stöðugleika komið saman og
metið það svo að vissar líkur væru
á að bankakerfið myndi hrynja að
nýju, sagði Bjarni í greininni.
Engu að síður hafi ríkisstjórnin
ekki látið vinna greiningu á þeirri
fjárhagslegu áhættu sem ríkið stóð
frammi fyrir.
Í tillögu þingmannanefndarinn-
ar er ráðherrunum fjórum gefið að
sök að hafa ekki látið vinna slíka
greiningu í aðdraganda hruns
bankanna. Segir Bjarni málin
sambærileg í öllum mikilvægum
atriðum.
Í samtali við Fréttablaðið kvaðst
Bjarni vera að benda á fáránleika
málsins. „Ef byggt er á mats-
kenndum atriðum er auðvelt að
heimfæra þau upp á verk þessar-
ar ríkisstjórnar. Ég er talsmaður
þess að menn fari ekki inn á þessa
braut. Hins vegar kunna að koma
upp mál þar sem þingið verður að
grípa inn í. Það eru mál þar sem
ráðherra mátti vera ljóst að hann
væri að fremja brot. Það á ekki við
í þessum málum.“ - bþs
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir matsákvæði landsdómslaga varhugaverð:
Bjarni Ben bendir á fáránleika málsins
BJARNI BENEDIKTSSON
Formaður Sjálfstæðisflokksins.
1. Hvar á landinu er undir-
búin myndataka fyrir National
Geographic?
2. Hvað eykst framleiðslugeta
álversins í Straumsvík mikið
eftir straumhækkun?
3. Hvaða dag ársins hafa flest-
ir látist síðastliðin 14 ár?
SVÖR
1. Í Þríhnúkagíg. 2. Um fimmtung. 3. 3.
janúar.
VEISTU SVARIÐ?