Fréttablaðið - 25.09.2010, Page 10
25. september 2010 LAUGARDAGUR
Nánari upplýsingar á
www.sterkaraisland.is
Joe Borg var utanríkisráðherra Möltu 1999 - 2004 og leiddi aðildarviðræður Möltu
við ESB. Um leið og Malta varð aðili að ESB 2004 tók hann sæti í framkvæmda-
stjórn ESB og gengdi starfi sjávarútvegsstjóra þess þar til í byrjun þessa árs.
Joe Borg heldur erindi í
Háskólanum í Reykjavík,
Öskjuhlíð,
laugardaginn 25. september
kl. 11 í salnum Bellatrix.
Fundurinn er öllum opinn.
Eftir erindið verða fyrirspurnir og umræður.
Fundarstjóri er Svanborg Sigmarsdóttir, stjórnmálafræðingur.
Hvað má læra
af reynslu Möltu?
Samningaviðræður Íslands við ESB
Sk
já
rB
íó
V
O
D
, S
kj
ár
Fr
el
si
o
g
Sk
já
rH
ei
m
ur
e
r a
ðg
en
gi
le
gt
u
m
S
jó
nv
ar
p
Sí
m
an
s.
M
eð
D
ig
it
al
Ís
la
nd
+
fæ
st
a
ðg
an
gu
r a
ð
Sk
já
Ei
nu
m
o
g
Sk
já
Fr
el
si
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
0
6
8
5
EKKERT
VENJULEGT
SJÓNVARP
ÞETTA ER
PÁLÍNA
EIGINKONA VÍÐIS
OG HÁTT SETTUR
EMBÆTTISMAÐUR
HJÁ AKUREYRARBÆ
FRUMSÝNDUR
30. SEPTEMBER
Veldu áskrift á skjareinn.is
VIÐSKIPTI Hreiðar Már Sigurðsson
vonar að niðurstaðan úr rann-
sókn Breska fjármálaeftirlits-
ins (FSA) á starfsemi Kaupþings
Singer & Friedlander í aðdrag-
anda hrunsins geti nýst í samn-
ingaviðræðum stjórnvalda um
uppgjör hrunsins.
Þetta kemur fram í bréfi sem
Hreiðar Már Sigurðsson hefur
sent til ráðamanna hérlendis í
tilefni þess að rannsókninni er
lokið. Bréfið var póstlagt á þriðju-
dag í Lúxemborg og er stílað á
forsætisráðherra, fjármálaráð-
herra, efnahags- og viðskiptaráð-
herra, forstjóra Fjármálaeftirlits-
ins og sérstakan saksóknara.
Í bréfinu nefnir Hreiðar að
ákvarðanir breskra stjórn-
valda um að bjarga ekki bank-
anum frá hruni í október 2008
hafi haft „bein og mikil áhrif á
þróun mála hér á landi.“ Haldið
hafi verið fram, meðal annars af
Gordon Brown í samtali við Geir
H. Haarde, að miklir fjármun-
ir, 500 til 1.500 milljónir punda,
hefðu verið fluttir úr bankanum
til Íslands dagana fyrir hrun.
Hreiðar segir þá spurningu
áleitna hvort bankinn hafi þurft
að fara í þrot og af hverju hann
fékk ekki aðstoð breska ríkis-
ins. Rannsókn FSA leiði í ljós að
ástæðuna sé ekki að finna í lög-
brotum eða misferli stjórnenda
bankans. Von hans sé því að sú
niðurstaða geti nýst stjórnvöldum
í samningaviðræðum um uppgjör
hrunsins.
Hreiðar Már gagnrýnir
íslenska Fjármálaeftirlitið (FME)
harðlega í bréfi sínu og furðar sig
á því að enginn starfsmaður þess
hafi rætt við hann svo mikið sem
einu sinni frá falli Kaupþings.
Til samanburðar hafi FSA tekið
fjölda skýrslna af öllum helstu
stjórnendum Kaupþings Singer
& Friedlander. Það gefi ástæðu
til að ætla að niðurstöður þess
séu vel ígrundaðar og fag-
legar, á meðan svo virð-
ist sem ályktanir FME um meinta
glæpi stjórnenda Kaupþings séu
alrangar og að eftirlitið verði
aldrei trúverðugt.
Þá hafi ekkert lekið út um rann-
sókn FSA, ólíkt því sem verið
hefur hjá FME. Til dæmis hafi
einungis liðið nokkrir klukkutím-
ar frá því að FME fékk lánabók
Kaupþings og FIH í hendur á raf-
rænu formi þar til hún var komin
á vefinn Wikileaks.
Hreiðar segist vona að þessi
ábending hans veki íslensk stjórn-
völd til umhugsunar og aðgerða í
þessum efnum.
Kaupþing er þó enn til rann-
sóknar á Bretlandseyjum. Seri-
ous Fraud Office, sem rannsakar
glæpi í bankakerfinu, skoðar enn
þátt Kaupþings í meintri svika-
fléttu með hluti í íþróttavöru-
keðjunni JJB Sports, auk þess
sem starfsmenn embættisins
hafa verið sérstökum sak-
sóknara til aðstoðar við
hans rannsóknir.
stigur@frettabladid.is
Vonar að niðurstaðan
gagnist í samningum
Í bréfi til stjórnvalda segist Hreiðar Már Sigurðsson vona að jákvæð niðurstaða
í rannsókn á Kaupþingi Singer & Friedlander geti nýst í samningaviðræðum
um uppgjör hrunsins. Hann gagnrýnir FME harðlega og kallar eftir aðgerðum.
HREIÐAR MÁR
SIGURÐSSON Breska
fjármálaeftirlitið hefur
sektað forstjóra Kaup-
þings um 35 þúsund
pund. Kaupþingsfor-
stjórinn fyrrverandi
neitar að greiða
sektina.
ÍSLENSKA FJÁRMÁLAEFTIR-
LITIÐ Hreiðar Már furðar sig
á að starfsmenn þess
hafi ekki rætt við sig
eftir fall Kaupþings.