Fréttablaðið - 25.09.2010, Qupperneq 11
LAUGARDAGUR 25. september 2010 11
STARFSFÓLK GÓÐA HIRÐISINS Níu aðilar
í húsnæðinu fengu styrki frá Sorpu.
FÉLAGSMÁL Sorpa hefur varið alls
22,5 milljónum króna til góðgerð-
armála á þessu ári. Í gær fengu
níu aðilar í húsnæði Góða hirðis-
ins styrk að heildarupphæð 14,6
milljónir króna og fyrr á árinu
veitti Sorpa styrki til Styrktar-
félags lamaðra og fatlaðra vegna
Reykjadals upp á 7,5 milljónir
króna og 400 þúsund krónur til
Traðar vegna verkefnisins For-
varnir í hestamennsku fyrir
unglinga.
Markmið Sorpu er meðal ann-
ars að auka meðvitund fólks um
endurvinnslu og stuðla að endur-
nýtingu úrgangs. - sv
Sorpa veitir milljóna styrki:
22,5 milljónir
gefnar á árinu
DÓMSMÁL Gunnar Rúnar Sigur-
þórsson, sem játað hefur að hafa
orðið Hannesi Þór Helgasyni að
bana í Hafnarfirði þann 15. ágúst
síðastliðinn, var í gær úrskurð-
aður í áframhaldandi gæslu-
varðhald til 22. október að kröfu
lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu. Er það gert á grundvelli
almannahagsmuna.
Málið telst í meginatriðum
vera upplýst, að sögn lögreglu.
Enn er þó beðið niðurstöðu lífs-
sýna frá Svíþjóð.
Lögð var fram krafa um fjög-
urra vikna áframhaldandi gæslu-
varðhald og á hana var fallist
í héraðsdómi. Maðurinn unir
niðurstöðunni. -jss
Gæsluvarðhald framlengt:
Banamaður
áfram inni
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært rúmlega þrítugan karl-
mann fyrir stórfellda líkamsárás.
Manninum er gefið að sök að
hafa aðfaranótt sunnudagsins 13.
desember 2009, að Hafnargötu
36, Reykjanesbæ, slegið annan
mann í andlitið, með þeim afleið-
ingum að hann féll aftur fyrir sig
og skall í gólfið. Hlaut fórnar-
lambið skurð á vör, kúlu og mar á
hnakka, blæðingu inn á heila og
heilamar.
Sá sem ráðist var á gerir kröfu
um tveggja milljóna króna skaða-
bætur úr hendi árásarmannsins.
- jss
Stórfelld líkamsárás:
Árás leiddi til
heilablæðingar
REYKJAVÍKURBORG Borgarráð hefur samþykkt
að fela framkvæmda- og eignasviði að undir-
búa tillögur um að flýta brýnum endurbygg-
ingar- og endurbótaverkefnum mannvirkja
sem annars hefðu komið til framkvæmda
2013-2015. „Miða skal við að þau verði unnin
þegar mestur samdráttur er í atvinnumálum
eða á árunum 2011-2012. Að sama skapi yrði
dregið samsvarandi úr framkvæmdum þegar
atvinnuástand hefur færst í eðlilegra horf,“
segir í tillögu sem sett var fram af Jóni Gnarr
borgarstjóra. - gar
Borgin mætir samdrætti í atvinnumálum:
Leitað að verkefnum
sem hægt er að flýta
JÓN GNARR Borgarstjór-
inn í Reykjavík lagði til að
viðhaldsverkefni yrðu færð
fram í tíma.
LAUSNIR FYRIR HEIMILI | landsbankinn.is | 410 4000
Lausnir fyrir heimili
Landsbankinn ætlar sér stóran hlut í uppbyggingu íslensks efnahagslífs og mun
þjónusta einstaklinga og fyrirtæki í greiðsluvanda af enn meiri krafti en áður.
Bankinn setti nýverið á stofn Ráðgjafastofu einstaklinga sem sinnir þjónustu við þá
sem standa frammi fyrir greiðsluerfiðleikum. Úrræði Landsbankans til að takast á
við greiðsluvanda einstaklinga eru fjölmörg, t.d.:
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
3
7
0
2
N
B
I
h
f.
(
L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t
.
4
7
1
0
0
8
-
0
2
8
0
.
ENDURÚTREIKNINGUR ERLENDRA FASTEIGNALÁNA
Einstaklingar með fasteignalán í erlendri mynt geta nú óskað eftir endurútreikningi lána sinna. Lánin
verða endurreiknuð miðað við verðtryggða eða óverðtryggða vexti sem Seðlabankinn ákveður með
hliðsjón af lægstu vöxtum nýrra almennra útlána hjá lánastofnunum. Úrræðið verður í boði um leið
og endurútreikningi lána er lokið. Þeirri vinnu verður hraðað eins og hægt er.
5000 KR. AF HVERRI MILLJÓN Á MÁNUÐI
Einstaklingar með fasteignalán í erlendri mynt eiga kost á að greiða 5000 kr.
af hverri milljón af upprunalegum höfuðstól lánsins þar til endurútreikningur
liggur fyrir. Greiðsla af láni sem var upphaflega 10 milljónir króna verður
50.000 krónur á mánuði.
25% HÖFUÐSTÓLSLÆKKUN LÁNA
Viðskiptavinir með lán í erlendri mynt eiga kost á að sækja um 25%
höfuðstólslækkun gegn því að lánunum sé breytt í óverðtryggð eða
verðtryggð lán í íslenskum krónum.
110% AÐLÖGUN ÍBÚÐALÁNA
Einstaklingar með íbúðalán hjá Landsbankanum, hvort sem er í erlendri
mynt eða íslenskum krónum, geta sótt um að lánið sé fært niður í 110%
veðhlutfall af markaðsvirði eignar. Eftirstöðvar áhvílandi láns, umfram
110% af markaðsvirði íbúðarhúsnæðis, eru felldar niður.
Lausnirnar eru háðar nánari skilmálum.
Viðskiptavinir sem nýta sér úrræði bankans fyrirgera
ekki rétti sínum leiði dómar eða lagasetning til betri
niðurstöðu.
Hafið samband við þjónustufulltrúa í næsta útibúi.
Við tökum vel á móti þér um land allt.
Nánari upplýsingar á landsbankinn.is
– Lifið heil
Lægra
verð
í Lyfju
www.lyfja.is
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.IS
/L
YF
5
13
19
0
9/
10
Flux flúormunnskol
– fyrir alla fjölskylduna
Flux fluormunnskol 500 ml
Verð: 1.209 kr. Verð nú: 967 kr.
Flux junior munnskol fyrir börn 250 ml
Verð: 829 kr. Verð: 663 kr.
20%
afsláttur*
*gildir til 15 okt.