Fréttablaðið - 25.09.2010, Page 28
28 25. september 2010 LAUGARDAGUR
É
g hef alltaf jafngaman af þessu
og hef hug á að halda áfram að
skrifa þessar bækur. Ef ég hefði
ekki áhuga á þessu væri ég hætt-
ur fyrir löngu,“ segir Víðir Sig-
urðsson, íþróttafréttamaður og
höfundur nærri allra bókanna um íslenska
knattspyrnu. Fyrsti árgangur þessa merkilega
og vinsæla bókaflokks kom út árið 1981 og
vinnur Víðir því þessa dagana að bók númer
þrjátíu í röðinni.
Tildrögin að ritun bókanna voru þau að Eyj-
ólfur Sigurðsson, sem þá rak bókaútgáfuna
Bókhlöðuna, bað Sigurð Sverrison, þáverandi
samstarfsmann Víðis á Dagblaðinu, að taka að
sér umsjón fyrstu bókarinnar árið 1981. Árið
eftir fékk Sigurður Víði til að hjálpa sér við
verkefnið og alla tíð síðan hefur Víðir borið
ábyrgð á bókaflokknum.
Víðir hefur alla tíð unnið að bókunum sam-
hliða starfi sínu sem íþróttafréttamaður og
segir þetta tvennt falla vel hvort að öðru.
„Ég reyni að vera skipulagður og taka þetta
saman jafnóðum yfir árið svo efnið sé tiltölu-
lega ferskt. Tilkoma netsins hefur flýtt mikið
fyrir allri gagnaöflun, og sérstaklega hvað
varðar allar myndirnar í bókinni.
Hér áður fyrr þurfti ég jafnvel að þvælast
út um allan bæ til að sækja myndir eða planta
mér á skrifstofu Knattspyrnusambandsins
löngum stundum til að viða að mér efni, en
þess gerist ekki þörf lengur. Vinnan við sjálf-
ar skriftirnar er þó meira og minna sú sama,“
segir Víðir.
Aðspurður segist hann finna fyrir miklu
þakklæti frá almenningi vegna bókanna. „Ég
get ekki neitað því að það felst mikil hvatning
í því. Ég finn fyrir því að margir bíða spenntir
eftir bókunum og safna þeim, og slíkt hvetur
mig auðvitað til að halda áfram.“
Víðir segist oft leita upplýsinga í göml-
um bókum eftir sjálfan sig. „Einnig getur
verið mjög skemmtilegt að skoða ljósmynd-
ir af meistaraliðum í hinum ýmsu aldurshóp-
um, því í gömlu bókunum finnur maður ansi
marga sem síðar hafa orðið þekktir einstakl-
ingar, bæði í knattspyrnunni og líka á allt
öðrum sviðum,“ segir Víðir.
Vinnur að þrítugustu bókinni
ÞRJÁTÍU ÁRA SAGA Víðir Sigurðsson segist finna fyrir miklu þakklæti almennings vegna bókaflokksins
Íslensk knattspyrna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Einar Tönsberg tónlistarmaður, Sigurður Kári Kristjánsson alþingismaður, Pétur Marteinsson, fyrrverandi
atvinnumaður í knattspyrnu, Egill Sæbjörnsson listamaður og Rúnar Freyr Gíslason leikari. Íslandsmeistarar
með 5. flokki Fram árið 1985.
Hannes Smárason útrásarvíkingur. Íslands- og
bikarmeistari með 2. flokki Fram árið 1985.
Þorvaldur Davíð Kristjánsson leik-
ari. Íslandsmeistari með 6. flokki
Þróttar árið 1993.
Höskuldur Ólafsson, eða Hössi í
Quarashi, Íslandsmeistari með 6.
flokki KR 1987,
Dagur B. Eggertsson stjórnmálamaður. Íslandsmeistari með 4. flokki
Fylkis árið 1986.
Þóra Arnórsdóttir fréttamaður. Íslandsmeistari með 3. flokki Breiðabliks árið 1987.
Jóhannes Felixsson, eða Jói Fel bakari,
fyrirliði Íslandsmeistara 3. flokks Fram árið
1983.
Þorsteinn J. Vilhjálmsson sjónvarpsmaður. Íslands- og
bikarmeistari með 2. flokki Fram árið 1983.
Guðmundur Stephensen, margfaldur Íslandsmeistari í borðtennis, og Jón Arnór
Stefánsson, atvinnumaður í körfuknattleik. Íslandsmeistarar 6. flokks með Fram
árið 1992.
ÞESSUM BREGÐUR FYRIR Í BÓKUNUM UM ÍSLENSKA KNATTSPYRNU
Í haust kemur út þrítugasti árgangurinn í bókaflokknum vin-
sæla Íslensk knattspyrna. Kjartan Guðmundsson ræddi við Víði
Sigurðsson, íþróttafréttamann og höfund bókanna, um vinnu-
ferlið og viðtökurnar og skoðaði skemmtilegar myndir.
Bjarni Benediktsson stjórnmálamaður. Íslandsmeistari
með 3. flokki Stjörnunnar árið 1986.