Fréttablaðið - 25.09.2010, Qupperneq 38
25. september 2010 LAUGARDAGUR2
Dr. Þórgunnur Snædal rúnafræðingur flytur fyrirlesturinn Snældusnúður Vilborgar -
Um rúnaristur frá Alþingisreitnum á Landsnámssýningunni í Aðalstræti 16 klukkan 14 í
dag. Þar mun hún segja frá snældusnúði Vilborgar og öðrum gripum sem fundust við
rannsóknir á Alþingisreitnum á árunum 2008 til 2009.
Leikhópar og Ljótir hálfvitar í Færeyjum
Íslenskir menningardagar hófust í
Færeyjum í gær og standa fram á
sunnudag. Af því tilefni hafa leik-
hóparnir Stoppleikhópurinn og
Tímamótaverksmiðjan og hljóm-
sveitin Ljótu hálfvitarnir sótt eyj-
arnar heim. Stoppleikhópurinn
sýnir verðlaunasýninguna Bólu-Hjálmar en Tímamótaverksmiðjan flytur dag-
skrá um Jörund hundadagakonung.
Bólu-Hjálmar segir sögu litríks alþýðuskálds sem glímdi við fátækt, fjand-
skap nágranna sinna og harðneskju yfirvalda, en skildi eftir sig skáldskap
þar sem samferðamennirnir fá að kenna á orðsnilldinni. Í dagskránni um
Jörund hundadagakonung er saga hans rakin en hann er frægastur fyrir að
hafa rænt völdum á Íslandi og ríkt sem einvaldur sumarið 1809.
Leikstjóri beggja sýninganna er Ágústa Skúladóttir sem er leiklistarunnend-
um í Færeyjum að góðu kunn sem leikstjóri og námskeiðshaldari undanfar-
in ár. Höfundar beggja verkanna eru meðlimir í Ljótu hálfvitunum. Þeir léku
fyrir dansi í Vaskeríinu í Þórshöfn í gær en allur hópurinn stígur á svið í Sjón-
leikarhúsinu í kvöld. Á morgun er ferðinni síðan heitið út í Nólsoy. -ve
ÚTSALA
síðustu dagar.
ÚLPUR, KÁPUR, JAKKAR
20 - 70% afsl. og margt fleira.
Kjóll
8.990,-
stærðir s-xl
Kjóll
9.990,-
stærðir s-xl
Kjóll
9.990,-
stærðir s-xl
Opið frá 11–18 í Smáralind.
Kjóll
8.490,-
stærðir s-xl
3 Smárar Smáralind • 578 0851
Nýjar haustvörur
Egill leggur nú lokahönd á „live“
plötu með lögum Sigfúsar Halldórs-
sonar, en Stuðmenn kvaddi hann
formlega fyrir um ári.
„Stuðmenn verða ábyggilega að
fram í rauðan dauðann, því miður.
Við eigum það sameiginlegt að búa
yfir einhverri ónáttúru sem fær ekki
útrás nema menn komi saman og
geri eitthvað af sér,“ segir Egill sem
er í miklu sambandi við félaga sína
úr hljómsveit allra landsmanna.
„Nú eiga Stuðmenn tvíþætt
afmæli. Fjörtíu ár eru síðan hljóm-
sveitin var stofnuð og 35 ár síðan
Sumar á Sýrlandi kom út. Niðurstað-
an varð þó sú að gera ekkert veður úr
því, því okkur finnst talan 50 miklu
voldugri,“ segir Egill og játar að tón-
leikar með Stuðmönnum séu freist-
andi. „Stuðmenn freista alltaf en
menn rekast í mörgu og sjónarmiðin
er mörg. Við erum auðvitað gamlir
skólafélagar og æskuvinir; sumir frá
því þeir voru rétt farnir að ganga,
eins og við Þórður, og ég sakna Stuð-
manna allra. Því væri gaman að líta
yfir farinn veg, því við gerðum fullt
af skemmtilegum hlutum sem fólu í
sér umsköpun sjálfsins í hvert sinn
sem við komum fram,“ segir Egill
sem kveðst í einlægni ekki nefnt
sinn uppáhalds Stuðmann.
„Styrkur Stuðmanna fólst í ólíkum
persónuleikum sem áttu sameigin-
legt að hafa fengið ríkulegar vöggu-
gjafir, vera flinkir spilarar og flinkir
í hausnum. Það var því mikið hleg-
ið og grátið, enda skiptust menn á
hugmyndum sem stundum þurfti að
lúffa með, og stundum var eitthvað
sagt sem betur hefði kyrrt legið, eins
og gengur í öllu samstarfi sem geng-
ur út á líf og dauða, eins og okkur
fannst það vera. Mest var þó gleð-
in yfir svöruninni og oftast á þann
veg að menn gleymdu argaþrasinu,
og sungu og dönsuðu eins og vitleys-
ingar. Því get ég ómögulega gert upp
á milli, en Ragga var náttúrlega sæt-
ust,“ segir Egill, sem er duglegur að
sækja leikhús um helgar og ætlar að
vera þaulsætinn á Riff-hátíðinni um
helgina.
„Ég sé nánast allt í leikhúsi sem
fylgiherra þjóðleikhússtjóra. Leik-
hús er spennandi, ekki síst þegar
það segir dramatíska sögu þar sem
maður getur speglað sig í vanda-
málum annarra. Ég kann því óskap-
lega vel að vera þjóðleikhússtjóra-
frú því það er nýtt hlutskipti. Við
karlar erum búnir að yfirskyggja
heiminn síðastliðin 220 ár, eða allt
frá frönsku stjórnarbyltingunni, og
nú mega konur ráða næstu 220 árin.
Margir tala um kólnun hjartans um
leið og loftslag hlýnar, en ég spái því
að hjartað hlýni á nýjan leik með til-
komu aukinna valda kvenna.“
Á morgun hyggst Egill hvílast en
fjölskyldan hefur fyrir venju að hitt-
ast yfir sunnudagssteikinni.
„Að vísu býr yngri sonur okkar
í Stokkhólmi þar sem þau unnust-
an eiga von á sér í nóvember og við
erum óskaplega spennt. Ég er að
verða tvöfaldur afi og það er dás-
amleg lífsreynsla. Í barnabörnun-
um birtist eilífðin, því við lifum til
eilífðar í þeim sem eru sannarlega
betrungar okkar og bæta okkur
upp,“ segir Egill sem líka býst við
að leggja sig oft á morgun.
„Ég sef orðið miklu meira en ég
þyrfti, allt að fjóra tíma á sólar-
hring, en ekki meira en það. Ég er
kominn á þann aldur að þurfa ekki
að sofa, enda engin starfsemi leng-
ur.“
thordis@frettabladid.is
Framhald af forsíðu Egill reiknar allt eins
með að stíga á stokk
með Stuðmönnum
síðar, enda hljómsveitin
þekkt fyrir að halda
stuðinu áfram þótt hún
hvíli sig inn á milli.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI