Fréttablaðið - 25.09.2010, Page 64

Fréttablaðið - 25.09.2010, Page 64
MENNING 10 Afmælistónleikar Jóns kr Ólafsson söngvara þann 25. september. Tónleikarnir verða haldnir í sal FíH í Rauðagerði 27 Reykjavík, kl. 20:30. MYNDLIST BERGSTEINN SIGURÐSSON ANDINN FYLGIR EFNINU F yrir viku var opnuð í Listasafni Reykja- víkur sýningin Erró – Klippimyndir. Þar gefst almenningi í fyrsta skipti tækifæri til að skoða um það bil 130 klippimyndir sem Erró hóf að gefa Listasafni Reykjavíkur árið 1989. Elstu verkin eru frá náms- árum Errós í Myndlista- og hand- íðaskólanum 1950 til 1951, þar sem hann komst fyrst í kynni við þetta listform. Erró hóf þó ekki meðvitað notkun samklippu fyrr en í lok sjötta áratugarins og þá í formi mynda og prentaðra texta. Allt frá árinu 1989 hefur Erró gefið Listasafni Reykjavíkur 472 klippimyndir sem spanna langan feril listamannsins. Tók klippiverkin ekki alvarlega Á sýningunni eru til sýnis samklipputeikningar og sam- klippuuppsetningar, en einn- ig tilklipptar pappírsmyndir frá námsárunum. „Sannleikurinn er sá að ég tók þessar myndir aldrei alvarlega, þær voru alltaf bara ofan í skúffu. Það var ekki fyrr en með sýningu í Pompidou-safninu sem ég fór að taka þær alvarlega og er byrjaður að skrá þær skipulega. En margar eru því miður horfnar.“ Erró notar gjarnan klippimynd- ir til að mála eftir, eins og nokkur dæmi eru um á sýningunni. „Ég byrja á því að útbúa klippi- mynd, ljósmynda hana og varpa henni á léreft, þannig ég sjái myndina en geti líka fantaserað í kringum hana. Þetta gengur best í ákveðnu birtustigi – á þeim tíma dags þegar það er hvorki dagur né nótt. Það er líka þá sem maður veiðir besta laxinn.“ Endurnýjuð ástríða Erró kveðst hafa endurnýjað ástríðu sína fyrir klippiverkum sem listformi eftir að hafa farið í nokkr- ar stórar skurðaðgerðir á skömm- um tíma og þurft að halda sig heima við í tvo til þrjá mánuði. RAUSNARLEG GJÖF Við opnun sýningarinnar á klippiverkum Errós, færði hann Listasafni Reykjavíkur listaverk eftir franska listamanninn Jean-Pierre Raynaud: Le Pot Doré, eða Gullsleginn pottur. Um er að ræða verk sem Raynaud hefur gert í ýmsum útgáfum, meðal annars fimm metra hátt verk sem stóð við Pompidou safnið í París ekki alls fyrir löngu. Listaverkið, sem Erró afhjúpaði ásamt Jóni Gnarr, borgarstjóra, er dýrmæt viðbót við safneign Listasafns Reykjavíkur og verður sýnt opinberlega á Kjarvalsstöðum í vetur, ásamt öðrum verkum sem safninu hafa áskotnast undanfarin fimm ár. FRAMHALD AF FORSÍÐU Vélmenning, um 1950 til 1951.Enska stúlkan, 2010. FR ÉT TA BL A Ð IÐ /D A N ÍE L Í pottinn búið Erró og Jón Gnarr borgarstjóri afhjúpa gullsleginn pott sem Erró færði Listasafni Reykjavíkur að gjöf á dögunum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.