Fréttablaðið - 25.09.2010, Síða 64
MENNING 10
Afmælistónleikar
Jóns kr Ólafsson söngvara
þann 25. september.
Tónleikarnir verða haldnir í sal FíH
í Rauðagerði 27 Reykjavík, kl. 20:30.
MYNDLIST
BERGSTEINN
SIGURÐSSON ANDINN FYLGIR EFNINU
F
yrir viku var opnuð
í Listasafni Reykja-
víkur sýningin Erró –
Klippimyndir. Þar gefst
almenningi í fyrsta skipti
tækifæri til að skoða um það bil
130 klippimyndir sem Erró hóf að
gefa Listasafni Reykjavíkur árið
1989. Elstu verkin eru frá náms-
árum Errós í Myndlista- og hand-
íðaskólanum 1950 til 1951, þar
sem hann komst fyrst í kynni við
þetta listform. Erró hóf þó ekki
meðvitað notkun samklippu fyrr
en í lok sjötta áratugarins og þá í
formi mynda og prentaðra texta.
Allt frá árinu 1989 hefur Erró
gefið Listasafni Reykjavíkur 472
klippimyndir sem spanna langan
feril listamannsins.
Tók klippiverkin ekki alvarlega
Á sýningunni eru til sýnis
samklipputeikningar og sam-
klippuuppsetningar, en einn-
ig tilklipptar pappírsmyndir frá
námsárunum.
„Sannleikurinn er sá að ég tók
þessar myndir aldrei alvarlega,
þær voru alltaf bara ofan í skúffu.
Það var ekki fyrr en með sýningu
í Pompidou-safninu sem ég fór að
taka þær alvarlega og er byrjaður
að skrá þær skipulega. En margar
eru því miður horfnar.“
Erró notar gjarnan klippimynd-
ir til að mála eftir, eins og nokkur
dæmi eru um á sýningunni.
„Ég byrja á því að útbúa klippi-
mynd, ljósmynda hana og varpa
henni á léreft, þannig ég sjái
myndina en geti líka fantaserað í
kringum hana. Þetta gengur best
í ákveðnu birtustigi – á þeim tíma
dags þegar það er hvorki dagur
né nótt. Það er líka þá sem maður
veiðir besta laxinn.“
Endurnýjuð ástríða
Erró kveðst hafa endurnýjað
ástríðu sína fyrir klippiverkum sem
listformi eftir að hafa farið í nokkr-
ar stórar skurðaðgerðir á skömm-
um tíma og þurft að halda sig heima
við í tvo til þrjá mánuði.
RAUSNARLEG GJÖF
Við opnun sýningarinnar á klippiverkum Errós,
færði hann Listasafni Reykjavíkur listaverk eftir
franska listamanninn Jean-Pierre Raynaud: Le
Pot Doré, eða Gullsleginn pottur. Um er að ræða
verk sem Raynaud hefur gert í ýmsum útgáfum,
meðal annars fimm metra hátt verk sem stóð
við Pompidou safnið í París ekki alls fyrir löngu.
Listaverkið, sem Erró afhjúpaði ásamt Jóni Gnarr,
borgarstjóra, er dýrmæt viðbót við safneign
Listasafns Reykjavíkur og verður sýnt opinberlega
á Kjarvalsstöðum í vetur, ásamt öðrum verkum
sem safninu hafa áskotnast undanfarin fimm ár.
FRAMHALD AF FORSÍÐU
Vélmenning, um 1950 til 1951.Enska stúlkan, 2010.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/D
A
N
ÍE
L
Í pottinn búið
Erró og Jón Gnarr
borgarstjóri afhjúpa
gullsleginn pott sem
Erró færði Listasafni
Reykjavíkur að gjöf
á dögunum.