Fréttablaðið - 25.09.2010, Síða 78

Fréttablaðið - 25.09.2010, Síða 78
 25. september 2010 LAUGARDAGUR42 timamot@frettabladid.is Lagarfossvirkjun var vígð þennan dag árið 1975 og við gangsetningu hennar tvöfaldaðist raforkufram- leiðsla í Austfirðingafjórðungi. Undir lok sjöunda áratugarins var mestallt rafmagn á Austfjörðum framleitt með dísilvélum. Það ástand háði öllu athafnalífi því olíuverð var hátt. Vorið 1971 var ákveðið að hefja vinnu við virkjun Lagarfoss og ári síðar var grafinn 480 metra langur aðrennslisskurður og laxastigi steyptur. Einnig var um 100 metra löng og tíu metra há jarðvegsstífla gerð ofan við fossinn. Byggingarvinnu lauk sumarið 1974 og 4. mars sama ár hófst orkuframleiðslan. Afkastageta stöðvarinnar var um 7.500 kW. ÞETTA GERÐIST: 25. SEPTEMBER 1975 Orkan tvöfölduð á Austurlandi GUNNAR THORODDSEN, forsætisráðherra (1910-1983) lést þennan dag. „Þekking og gáfur verða lítils virði ef ekki er hægt að koma þeim á framfæri í ræðu og riti.“ Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. „Þetta verður fagnaður allan daginn, alveg frá morgni til kvölds,“ segir Elías Jónatansson, bæjarstjóri í Bolungar- vík, um hátíðarhöld í tilefni af opnun Bolungarvíkurganga. Göngin verða opnuð við hátíðlega athöfn í dag. Elías segir talsvert mikla dagskrá hafa verið skipulagða vegna opnun- arinnar. „Hún byrjar með því að það verður afhjúpaður minnisvarði við Skarfasker í Hnífsdal, og svo verður hlaupið og hjólað inn í göngin,“ segir Elías. Varðinn verður til minningar um þá sem hafa látist af slysförum á svæðinu. Vígslan sjálf fer svo fram klukk- an hálftvö þegar Ögmundur Jónasson samgönguráðherra og Hreinn Haralds- son vegamálastjóri munu opna fyrir almenna umferð. „Svo verður keyrt Bolungarvíkurmegin inn í göngin og inn í Hnífsdal þar sem bæjarstjóri Ísa- fjarðar tekur á móti bæjarstjóra Bol- ungarvíkur og föruneyti. Svo verður farið í íþróttahúsið í Bolungarvík og þar verður skemmtun.“ Boðið verður upp á skemmtiatriði, ræðuhöld og veit- ingar í íþróttahúsinu fram eftir degi. Einnig verður opnuð sýning í Nátttúru- gripasafni Bolungarvíkur um göngin en hún verður opin næstu vikurnar. „Eftir að formlegu hátíðarhöldunum lýkur verður haldinn jarðgangafagnað- ur í íþróttahúsinu með mat og balli.“ Elías segir að um fjögur hundruð manns hafi nú þegar boðað komu sína á fögnuðinn, en hann verður veislu- stjóri ásamt Daníel Jakobssyni, bæjar- stjóra á Ísafirði. Þá verða skemmtiat- riði og dagskránni lýkur með dansleik við tónlist hljómsveitarinnar Húsið á sléttunni. Vinna við Bolungarvíkurgöng hófst fyrir rúmum tveimur árum, sumarið 2008. Þau eru tæplega fimm og hálf- ur kílómetri á lengd og tók rúmt ár að grafa þau í gegn. Upphaflega átti að opna göngin fyrir umferð í júlí síðast- liðnum en það tafðist lítillega. Elías segir þó biðina eftir göngunum ekki hafa verið langa, enda hafi aðdragand- inn að gerð þeirra verið stuttur. „Menn eru þó búnir að bíða lengi eftir sam- göngubótum hér,“ segir Elías. Óshlíð- arvegurinn, sem er rúmlega sextíu ára gamall, hefur verið einn hættulegasti vegakafli landsins vegna hættu á snjó- flóðum og gróthruni. Hann verður nú lokaður fyrir bílaumferð. thorunn@frettabladid.is BOLUNGARVÍKURGÖNGIN: OPNUÐ VIÐ HÁTÍÐLEGA ATHÖFN Í DAG Fagnað frá morgni til kvölds BÆJARSTJÓRINN Það verður nóg um að vera hjá Elíasi í dag, en hann gegnir ýmsum skyldum í hátíðarhöldunum. Innilegar þakkir og kveðjur til þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát móður okkar, ömmu og langömmu, Guðrúnar L. Kristjánsdóttur Skála, Seltjarnanesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks H1 á Hrafnistu í Reykjavík. Unnur V. Duck Elísabet Stefánsdóttir Kristján Jóhannsson Kristjana Stefánsdóttir Guðmundur Þorkelsson Anna Stefánsdóttir Reynir Hólm Jónsson barnabörn og langömmubörn. Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 6988 / 553 6699 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 / 565 6511 Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför okkar kæru, Bennýjar Sigurðardóttur, hússtjórnarkennara, Skúlagötu 40, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar Landspítalans, Landakoti fyrir einstaka alúð svo og hlýju og nærgætni við aðstandendur. Sigríður Á. Pálmadóttir Guðmundur I. Sigmundsson Björn Orri Guðmundsson Bergur Már Guðmundsson Sigrún Sigurðardóttir Sigurður Magnússon Innilegar þakkir og kveðjur til þeirra er sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför frænku okkar, Margrétar Hönnu Eyjólfsdóttur. Starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum er sér- staklega þökkuð hlýja og umhyggja. Guðrún Ásbjörnsdóttir Þorgeir Sigurðsson Sigurður Ingi Sigurðsson og aðrir aðstandendur. Elskuleg móðir mín, Sigurbjörg Björgvinsdóttir, áður Þórsgötu 21 a, sem lést að hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð laug- ardaginn 18. september, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 28. september kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á hjúkr- unarheimilið Sunnuhlíð, sími 560 4100. Stefán Hermanns. Minningarathöfn um Silo (Mario Rodriguez Cobos) upphafsmann Nýhúmanismans, sem lést þann 16. september s.l. í Mendoza Argentínu – verður haldin sunnudaginn 26. september kl. 20.00 í salarkynnum Félags bókagerðarmanna, Hverfisgötu 21, Reykjavík. Allir velkomnir. Húmanistaflokkurinn, Samhljómur menningarheima, Samhygð og Boðskapur Silo
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.