Fréttablaðið - 25.09.2010, Side 84
48 25. september 2010 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Knattspyrnumaðurinn David
Beckham hyggst láta sverfa til
stáls í baráttu sinni við banda-
ríska tímaritið In Touch og vænd-
iskonuna Irmu Nici. In Touch
birti í fyrradag frétt þess efnis að
Beckham hefði greitt Irmu og vin-
konu hennar fúlgur fjár fyrir kyn-
lífsleiki. Beckham hyggst krefja
Irmu um fimm milljón-
ir punda sem samsvarar
rúmum níu hundruð millj-
ónum íslenskra króna
en hún ku vera horf-
in af yfirborði jarðar eftir
að fréttin birtist, að því
er fram kemur í breska
blaðinu The Sun. Beck-
ham segir að hann muni
gera allt sem í hans valdi
stendur til að finna hana,
velta við hverjum
steini.
ÆTLAR AÐ VERJA
SIG Beckham lætur
ekki vaða yfir sig.
Íslenska heimildarmyndin Sólskins-
drengurinn fær lofsamlega dóma í
bandarísku stórblöðunum New York
Times og Los Angeles Times. Mynd-
in var frumsýnd í Bandaríkjunum og
Bretlandi í gær og því nokkuð skammt
stórra högga á milli hjá Friðriki Þór
Friðrikssyni, leikstjóra myndarinnar,
því önnur kvikmynd hans, Mamma
Gógó, hefur einnig fengið flotta
dóma, meðal annars hjá Variety.
New York Times sparar ekki stóru
orðin í sinni gagnrýni. Gagnrýnand-
inn Andy Webster segir enska tal-
setningu Kate Winslet hafa heppn-
ast einstaklega vel og að þótt titill
myndarinnar gefi það til kynna
að Margrét Dagmar Ericsdóttir,
mamma sólskinsdrengsins Kela, sé í
aðalhlutverki þá fjalli myndin meira
um ástæður og eðil einhverfu. Webs-
ter segir í lokaorðum sínum að það hafi
verið ótrúlegt að sjá Margréti ná loks
sambandi við son sinn handan veggja
einhverfunnar, það eigi eftir að hreyfa
við áhorfendum.
Michael Ordoña hjá Los Angeles
Times fer yfir sögu Margrétar og Kela
eins og hún birtist í myndinni og til
hvaða ráða þau hafi gripið. Ordoña
segir hins vegar að myndin nái ákveðn-
um hæðum þegar fjölskyldan kemur
til Texas og kynnist hinni indversku
Soma. „Það er virkilega hjartnæmt að
fylgjast með fjölskyldu sem þráir það
eitt að geta tengst syni sínum. Og þeim,
sem eru fullir efasemda um myndina
eins og ég var, get ég sagt að þetta er
virkilega falleg og heillandi mynd,“
skrifar Ordoña. - fgg
Sólskinsdrengurinn lofaður í Ameríku
FLYTUR TIL ÚTLANDA Í FYRSTA SINN Dóri DNA hlakkar mikið til að flytja til Þýska-
lands og er að eigin sögn altalandi á þýsku. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Rapparinn og uppistandar-
inn Dóri DNA segist þurfa
á tilbreytingu að halda og
flytur út eftir helgi.
„Ég flyt út á þriðjudaginn og
hlakka mikið til,“ segir Hall-
dór Halldórsson, betur þekktur
sem Dóri DNA, en hann er flytja
til Þýskalands í skiptinám. Dóri
nemur fræði og framkvæmd við
Listaháskóla Íslands en hann
hyggst vera úti í hálft ár. „Ég er
mikill heimalningur í mér svo
þetta er í fyrsta sinn sem ég flyt
út fyrir landsteinana – en finn að
ég þarf á því að halda,“ segir Dóri
og bætir við að íslenskur samtími
sé svo sorglegur að hann hlakki
bara til að sleppa við að lesa blöð-
in á morgnana og gráta yfir örlög-
um landsins síns. „Þetta er eitt-
hvað sem maður verður að prufa
en skólinn er í litlum bæ fyrir
utan Frankfurt og við erum tveir
frá Íslandi að fara í saman,“ segir
Dóri og viðurkennir að það eigi
eftir að slá aðeins á heimþrána.
Þegar Fréttablaðið náði af Dóra
tali var hann staddur í New York
þar sem hann hefur verið að vinna
að viðtölum fyrir heimildarmynd-
ina HKL ásamt móður sinni, Guð-
nýju Halldórsdóttur. „Þetta er búið
mjög skemmtileg ferð þar sem við
erum búin að lenda í vandræð-
um fyrir utan Hvíta húsið, skoða
frelsisstyttuna og fara um upp-
tökustaði The Wire-þáttanna,“
segir Dóri en hann kemur heim í
dag í tæka tíð fyrir kveðjupartýið
sitt sem haldið verður á Prikinu í
kvöld. „Ég vonast til að sem flest-
ir sjái sér fært að skála við mig í
kvöld. Allir velkomnir,“ segir Dóri
glaður í bragði að lokum.
alfrun@frettabladid.is
Dóri DNA flytur
til Þýskalands
JÁKVÆTT Gagnrýnendur hjá New York Tims og
Los Angeles Times hrósa Sólskinsdrengnum.
> STRÖNG MÓÐIR
Madonna þykir mjög strangur upp-
alandi og mega börn hennar meðal
annars hvorki neyta sykurs né horfa
á sjónvarp. Elsta dóttir Madonnu,
Lourdes, verður fjórtán ára
í október og hefur feng-
ið leyfi móður sinnar til
að lita á sér hárið í fyrsta
sinn. Stúlkan segist ætla
lita hárið á sér rautt, en
hún er dökkhærð.
Beckham vill tæpan milljarð
www.ellingsen.is
BARNAÚLPUR
GÓÐAR
REYKJAVÍK
Fiskislóð 1 Sími 580 8500
Opið mánud.–föstud. 10–18, laugard. 10–16
AKUREYRI
Tryggvabraut 1–3 Sími 460 3630
Opið mánud.–föstud. 8–18, laugard. 10–16
Hlýjar Didriksons barnaúlpur með
vatnsvörn, límdum saumum og góðri
öndun. Mikið úrval á frábæru verði.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
3
7
2
3