Fréttablaðið - 28.09.2010, Page 42
28. september 2010 ÞRIÐJUDAGUR26
sport@frettabladid.is
KR-INGAR eru í leit að markverði fyrir næsta sumar. Fjölmargir markverðir eru með lausan samning
og þar á meðal þeir tveir sem sagðir eru vera efstir á óskalista KR. Það eru Ingvar Þór Kale, markvörður
Breiðabliks, og Hannes Þór Halldórsson, markvörður Fram.
FÓTBOLTI Þó svo Pepsi-deildin sé
búin í ár er vinnu stjórnarmanna
ekki lokið. Nú tekur við sá tími
þegar félög reyna að endursemja
við leikmenn eða lokka aðra samn-
ingslausa leikmenn til síns liðs.
Talsvert af sterkum leikmönn-
um eru að losna undan samningi
og þar af tveir af markahæstu leik-
mönnum sumarsins – Atli Viðar
Björnsson og Gilles Mbang Ondo.
Ondo ætlar að reyna að komast að
hjá liði erlendis en lítið er vitað um
framtíðarplön Atla Viðars.
Íslandsmeistarar Breiðabliks
eru í fínum málum með sína leik-
menn en helst gætu þeir þurft að
hafa áhyggjur af markvarðarmál-
unum enda er Ingvar Kale með
lausan samning og KR hefur sýnt
honum áhuga. Eyjamenn þurfa
eins og venjulega að skoða mál-
efni útlendinganna enda sumir
með lausan samning.
KR mun missa Guðjón Baldvins-
son og Guðmund Reyni Gunnars-
son sem komu að láni frá Svíþjóð
en annars eru KR-ingar vel sett-
ir. Sömu sögu er ekki að segja af
Keflvíkingum enda er margir af
lykilmönnum liðsins með lausan
samning. Verið er að vinna í leik-
mannamálunum þar en eflaust
munu einhver lið bera víurnar í
sterka leikmenn Keflavíkur.
Fastlega má búast við því að
Hólmar Örn Rúnarsson verði eft-
irsóttur enda einn af sterkari leik-
mönnum deildarinnar þó svo hann
hafi ekki alveg verið upp á sitt
besta í sumar.
Algengt er hversu margir mark-
menn eru með lausan samning.
Fyrir utan Kale og Hannes Hall-
dórsson eru þeir Bjarni Þórður
Halldórsson úr Stjörnunni, Valsar-
inn Kjartan Sturluson og Selfyss-
ingurinn Jóhann Ólafur Sigurðs-
son með lausan samning.
Svo er spurning hvað leikmenn
Selfoss gera en einhverjir þeirra
vilja eflaust komast að hjá úrvals-
deildarfélagi. Viktor Unnar er
þegar orðaður við sitt uppeldisfé-
lag, Breiðablik, og svo eru bræð-
urnir Guðmundur og Ingólfur
Þórarinssynir einnig með lausan
samning. henry@frettabladid.is
PRÓFAR HANN EITTHVAÐ NÝTT? Markamaskínan Atli Viðar Björnsson er með betri
framherjum landsins. Hann á eftir að ákveða hvort hann verði áfram í FH eða rói á
önnur mið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Breiðablik:
Árni Kristinn Gunnarsson
Ingvar Þór Kale
Olgeir Sigurgeirsson
FH:
Atli Viðar Björnsson
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson
Tommy Nielsen
ÍBV:
Albert Sævarsson
Anton Bjarnason
Arnór Eyvar Ólafsson
Ásgeir Aron Ásgeirsson
Danien Justin Warlem
Matt Garner
Rasmus Christiansen
KR:
Egill Jónsson
Gunnar Kristjánsson
Lars Ivar Moldsked
Guðjón Baldvinsson og Guðmundur Reynir
voru á láni frá GAIS í Svíþjóð.
Fram:
Alexander Veigar Þórarinsson
Hannes Þór Halldórsson
Joe Tillen
Jón Orri Ólafsson
Keflavík:
Alen Sutej
Bjarni Hólm Aðalsteinsson
Brynjar Örn Guðmundsson
Einar Orri Einarsson
Guðjón Árni Antoníusson
Haukur Ingi Guðnason
Hólmar Örn Rúnarsson
Hörður Sveinsson
Paul McShane
Lasse Jörgensen
Ómar Jóhannsson
Valur:
Baldur Ingimar Aðalsteinsson
Ian Jeffs
Kjartan Sturluson
Martin Pedersen
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson
Stjarnan:
Arnar Már Björgvinsson
Baldvin Sturluson
Bjarni Þórður Halldórsson
Björn Pálsson
Dennis Danry
Ellert Hreinsson
Marel Baldvinsson
Fylkir:
Jóhann Þórhallsson
Kristján Valdimarsson
Ólafur Stígsson
Þórir Hannesson
Grindavík:
Gilles Mbang Ondo
Grétar Ólafur Hjartarson
Jóhann Helgason
Óli Baldur Bjarnason
Selfoss:
Guðmundur Þórarinsson
Ingólfur Þórarinsson
Jóhann Ólafur Sigurðsson
Sævar Þór Gíslason
Viktor Unnar Illugason
* upplýsingar frá ksi.is
Leikmenn með lausa samninga á þessu ári
HANDBOLTI Í gær var birt spá
þjálfara, fyrirliða og forráða-
manna í N1-deildunum.
Samkvæmt spánni verða FH
og Fram meistarar næsta vor en
liðin þykja sigurstrangleg í upp-
hafi móts. - hbg
Handboltinn að byrja:
FH og Fram
spáð sigri
HRESSIR Hluti af fyrirliðum liðanna í N1-
deild karla. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
N1-deildirnar
Spá fyrir N1-deild karla:
1. FH 218 stig
2. Haukar 214
3. Akureyri 187
4. Fram 170
5. Valur 146
6. HK 119
7. Selfoss 104
8. Afturelding 90
Spá fyrir N1-deild kvenna:
1. Fram 286 stig
2. Valur 282
3. Stjarnan 224
4. Fylkir 213
5. FH 144
6. HK 142
7. Haukar 139
8. ÍBV
9. Grótta 67
10. ÍR 37
FÓTBOLTI Ef reglur Alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins væru við
lýði hér á landi við veitingu gull,
silfur- og bronsskósins þá ætti
Grindvíkingurinn Gilles Ondo
ekki að fá gullskóinn heldur Blik-
inn Alfreð Finnbogason.
Þegar FIFA verðlaunar marka-
hæstu leikmenn sína á HM í fót-
bolta þá ræður fjöldi stoðsend-
inga röð leikmanna á undan
leikja- og mínútufjölda. Þetta á
við ef leikmenn hafa skorað jafn-
mörg mörk eins og þeir marka-
hæstu í Pepsi-deildinni í sumar.
Gilles Ondo lék færri leiki en
bæði Alfreð og Atli Viðar en gaf
hins vegar aðeins eina stoðsend-
ingu í sumar. Alfreð gaf 6 stoð-
sendingar og Atli Viðar var með
4 stoðsendingar. Röðin á þeim er
Gilles-Alfreð-Atli Viðar en sam-
kvæmt reglum FIFA þá væri hún
Alfreð-Atli Viðar-Gilles. - óój
Reglur FIFA á HM í fótbolta:
Alfreð ætti að
fá gullskóinn
FÆR SILFURSKÓINN Alfreð Finnbogason
var með 14 mörk og 6 stoðsendingar í
Pepsi-deildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Feitir bitar á leið á markaðinn
Fjölmargir sterkir leikmenn í Pepsi-deildinni verða með lausan samning á næstu dögum. Eflaust munu
flestir þeirra verða áfram hjá sama félagi en líklega verður hart barist um stærstu bitana á markaðnum.
FÓTBOLTI Það fara fram átta leik-
ir í riðlum í Meistaradeildinni í
kvöld. Flestra augu verða örugg-
lega á leikjum Chelsea, Arsenal
og Real Madrid sem þurfa öll að
rífa sig upp eftir slaka frammi-
stöðu um helgina.
Chelsea tapaði þá á móti Man.
City, Arsenal tapaði óvænt 2-3
á heimavelli á móti West Brom-
wich og Real Madrid náði aðeins
markalausu jafntefli á móti
Levante.
Chelsea tekur á móti frönsku
meisturunum í Olympique de
Marseille (Stöð 2 Sport), Arsen-
al sækir FK Partizan heim (Stöð
2 Sport 3) og Real er á útivelli á
móti Auxerre (Stöð 2 Sport 4). - óój
Leikir kvöldsins:
E-riðill: Roma-Cluj, Basel-Bayern Munchen
F: Chelsea-Marseille, Spartak Moskva-Zilina
G: Auxerre-Real Madrid, Ajax-AC Milan
H: Braga-Shakhtar Donetsk, Partizan-Arsenal
Meistaradeildin í kvöld:
Frönsku meistar-
arnir á Brúnni
ÓSÁTTUR Chelsea hefur tapað 2 síðustu
leikjum sínum. MYND/GETTYIMAGES
FÓTBOLTI Rúnar Kristinsson verð-
ur áfram þjálfari KR-inga í Pepsi-
deild karla en hann skrifaði undir
þriggja ára samning í gær.
„Ég vildi vera viss um að ég
væri að taka rétta ákvörðun bæði
fyrir mig og fyrir félagið. Ég tek
þetta að mér af því að ég treysti
mér fullkomlega til þess og
hef áhuga á þessu,“ sagði
Rúnar í gærkvöldi.
Rúnar gjörbreytti
KR-liðinu þegar hann
tók við því um mitt
sumar og fór með það úr
9. sæti upp í toppbarátt-
una og inn í bikarúrslita-
leikinn. KR-liðið vann
8 af 13 leikjum undir
hans stjórn.
„Mér fannst þetta
vera eðlilegt fram-
hald af því að þetta
gekk það vel, strák-
arnir tóku mér vel
og það var vilji bæði
frá mér og stjórn
knattspyrnudeild-
arinnar að ég héldi
þessu áfram. Ég tel
því að ég sé að gera
rétt með því að halda
áfram,“ segir Rúnar
sem mun halda áfram
í starfi sínu sem yfir-
maður knattspyrnu-
mála hjá félaginu.
„Ég mun sinna því að einhverju
leyti áfram en mun reyna að til-
einka mér meira aðstoð við þjálfun
yngri flokka. Það er eitthvað sem
hentar mér miklu betur en að vera
bundinn inni. Þá getur maður reynt
að vera þjálfurunum innan handar
og taka meiri þátt í þjálfarastarf-
inu út á vellinum í stað þess að
vera í einhverjum samræðum
inni á skrifstofu,” segir Rúnar.
Hann fer nú að huga að leik-
mannamálum liðsins.
„Við erum með mjög góðan
kjarna af leikmönnum sem
eru samningsbundnir
okkur og við munum fara
að kíkja á leikmanna-
málin á allra næstu
dögum. Auðvitað
verða alltaf ein-
hverjar breyting-
ar eins og gerist
og gengur hjá flest-
öllum félögum. Við
munum skoða þau mál gaumgæfi-
lega en ég er með mjög góðan efni-
við og marga góða leikmenn sem
eru samningsbundnir KR. Það er
lykilatriði að hlúa að þeim fyrst
og svo sjáum við til hvort þurfi að
bæta einhverju við,“ sagði Rúnar
en stærsta verkefnið hjá Rúnari er
að fá KR-liðið til að byrja betur.
„Annað árið í röð þá misstum við
toppliðin alltof langt frá okkur og
það var bara of erfitt að ná þeim.
Auðvitað munum við reyna að bæta
okkur á flestum sviðum og við
þurfum að ná betri árangri í upp-
hafi móts og reyna að halda því út
allt mótið,“ sagði Rúnar.
„Heimavallartölfræðin okkar
er líka mjög slæm og alls ekki KR
bjóðandi. Það er eitthvað sem við
þurfum að vinna í og laga því við
náum aðeins fimm sigrum á heima-
velli af ellefu og KR-völlurinn á að
vera sterkari en það,“ sagði Rúnar.
- óój
Rúnar Kristinsson heldur áfram þjálfun KR-liðsins til næstu þriggja ára:
Fannst þetta eðlilegt framhald
FH-ingar staðfestu það á heimasíðu sinni í gær að Heimir
Guðjónsson verði áfram þjálfari liðsins í Pepsi-deildinni. Þetta
verður fjórða sumar Heimis með liðinu en hann tók við liðinu af
núverandi landsliðsþjálfara Ólafi Jóhannessyni haustið 2007. FH
hefur unnið stóran titil á öllum þremur tímabilum Heimis með
liðinu, Íslandsmeistaratitil fyrstu tvö árin og svo bikarmeistara-
titilinn í ár.
Heimir áfram með FH-liðið