Fréttablaðið - 19.10.2010, Qupperneq 16
Nýlegar rannsóknir hafa sýnt
fram á að karlmenn með þvagleka
og ristruflanir hafa mikið gagn af
grindarbotnsæfingum.
Fagdeild þvagfærahjúkrun-
arfræðinga heldur af því tilefni
fræðslufund á morgun þar sem dr.
Grace Dorey, prófessor í sjúkra-
þjálfun við Vestur-Englandshá-
skóla í Bristol, verður með erindi
um hvernig nota má grindarbotns-
þjálfun til þess að vinna bug á
þvagleka og ristruflunum karla.
Hólmfríður Traustadóttir,
þvagfærahjúkrunarfræðingur
á Landspítalanum, er ein þeirra
sem standa að fræðslufundinum.
„Til okkar koma karlmenn sem
fara í aðgerðir eða geislameðferð
vegna krabbameins í blöðruháls-
kirtli. Slíkum aðgerðum og með-
ferð getur fylgt þvagleki og rist-
ruflanir sem hafa áhrif á lífsgæði
karlmanna,“ segir hún.
Talið er að einn af hverjum tíu
karlmönnum þjáist af þvagleka
einhvern tíma á ævinni, og þá oft
í kjölfar aðgerða. Hins vegar er
talið að um fjörutíu til fimmtíu
prósent karlmanna um fimmtugt
séu með ristruflanir en svo eykst
vandamálið með vaxandi aldri.
Ástæður ristruflana eru að sögn
Hólmfríðar margar fyrir utan
aukinn aldur. „Það geta verið sjúk-
dómar sem stafa af lifnaðarhátt-
um, sykursýki 2, háum blóðþrýst-
ingi, offitu, lyfjum, reykingum og
misnotkun áfengis.“
Á fyrirlestrinum, sem verður
á morgun í húsi Krabbameins-
félagsins að Skógarhlíð 8 klukk-
an 17.30, mun dr. Dorey fjalla
um áhrif grindarbotnsæfinga
á þvagleka og ristruflanir. Þar
kynnir hún rannsóknarniðurstöð-
ur sínar og fjallar um þær. Dr.
Dorey hefur skrifað eftirtaldar
bækur um þetta efni: Living and
Loving after Prostate Surgery og
Use It or Lose It.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku
og er öllum opinn.
solveig@frettabladid.is
Grindarbotnsþjálfun gegn
þvagleka og ristruflunum
Fagdeild þvagfærahjúkrunarfræðinga hefur fengið dr. Grace Dorey, prófessor í sjúkraþjálfun við háskóla
í Bristol, til að halda fyrirlestur um rannsóknir sínar á áhrifum grindarbotnsþjálfunar fyrir karla.
Heilsan er heiti nýs fríblaðs sem
Birtíngur gefur út. Fyrsta tölu-
blaðið kom út á föstudaginn var.
Nýtt tímarit um heilsu frá Birt-
íngi útgáfufélagi kom út síðast-
liðinn föstudag. Áætlað er að
tímaritið,
sem er frí-
blað, komi út
annan hvern
mánuð. Því
er dreift
í h e l s t u
verslanir á
landinu og
á líkams-
ræktar-
stöðvar.
„Okkur
fannst
vanta
jákvætt og
létt blað um
heilsu,“ segir
Halldóra
Anna Haga-
lín, ritstjóri
Heilsunnar.
„Blaðið
skiptist í fjóra flokka: húð, hár,
líkama og sál, og í hverjum kafla
er viðtal við einstakling sem hefur
með þann flokk að gera,“ útskýr-
ir hún. Í fyrsta tölublaðinu er að
finna viðtal við jógakennara og
einkaþjálfara, sem meðal annars
gefur góð ráð til líkamsræktar
heima. - rat
Nýtt fríblað
um heilsu
Út er komið nýtt fríblað
um heilsu sem hægt er
að nálgast á líkams-
ræktarstöðvum og í
helstu verslunum um
land allt. MYND/BIRTÍNGUR
Evrópska endurlífgunarráðið hefur gefið út nýjar leiðbeiningar
í endurlífgun í stað þeirra sem komu út 2005. Leiðbeiningarnar
byggja á niðurstöðum nýjustu rannsókna á meðferð og árangri í
endurlífgun. Nánar á www.endurlifgun.is
Hólmfríður Traustadóttir og Arnfríður Gísladóttir eru í forsvari fyrir fagdeild þvagfærahjúkrunarfræðinga, sem stendur fyrir áhuga-
verðum fyrirlestri í Skógarhlíð 8 á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Viltu fræðast um orkustöðvar líkamans?
Marta Eiríksdóttir
Námskeið í Gerðubergi, Reykjavík
laugardaginn 30.október kl. 12:00
Sjakradans
chakra dance
Dans og jógastöður í gegnum orkustöðvarnar
Ég hafði sótt dansjóga námskeið og hikaði því ekki við að skrá mig
þegar ég sá auglýst námskeið í Sjakradansi. Að eiga nokkrar
klukkustundir þar sem við vorum leiddar áfram í mjúkum fallegum
hreyfingum og hugsunum um hverja orkustöð í líkamanum var
yndislega nærandi fyrir líkama og sál. Andrúmsloftið var einstaklega
frjálslegt og notalegt.
- Þóra Kristinsdóttir
Skráning í síma 848 5366 www.pulsinn.is
Agil eru nett og nýtískuleg í hendi
en nánast ósýnileg á bak við eyra
©
20
10
O
tic
on
In
c.
A
ll
Ri
gh
ts
R
es
er
ve
d.
Pantaðu tíma í
heyrnarmælingu í síma
568 6880
og prófaðu Agil
...og njóttu þess besta með Agil heyrnartækjum
Upplifðu nýja hljóðveröld...
Áttu í erfiðleikum með að heyra í fjölmenni eða klið? Finnst þér aðrir tala lágt eða óskýrt?
Tekur þú sjaldnar þátt í hópumræðum en áður? Allt þetta getur verið merki þess að heyrn
þín sé farin að versna.
Agil eru byltingarkennd ný heyrnartæki sem hjálpa þér að heyra betur með minni áreynslu.
Tölvuörflagan í Agil er helmingi öflugri en áður hefur þekkst en tækin eru samt um helmingi minni
en hefðbundin heyrnartæki og búa þar að auki yfir þráðlausri tækni.
Ekki láta heyrnarskerðingu halda aftur af þér og verða til þess að þú missir úr í samskiptum við aðra.
Upplifðu nýja og betri hljóðveröld með Agil heyrnartækjum.
G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 Re y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w. h e y r n a r t æ k n i . i s
vhs spólu í
kolaportinu
Stöð 2, Stöð 2 Bíó og Stöð 2 Extra kosta aðeins 229 krónur á dag í Stöð 2 Vild.
Tryggðu þér áskrift í dag!
FYRIR 229 KRÓNUR
FÆRÐ ÞÚ:
frábæra skemmtun í
heilan sólarhring fyrir
alla fjölskylduna
eða
512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000