Fréttablaðið - 20.10.2010, Page 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Miðvikudagur
skoðun 12
SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Allt
veðrið í dag
20. október 2010
246. tölublað 10. árgangur
Björt framtíð
Tæknifræðingafélag Íslands
fagnar fimmtíu ára afmæli.
tímamót 20
Smáratorgi 1
Alla daga
Sterkar tennur og fallegt bros.
Flux flúormunnskol fyrir alla
fjölskylduna.
Fæst í næsta
apóteki.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Hefur þú
skolað
í dag?
FJARSKIPTI Engar varnir gegn tölvu-
árásum sem gagn er að eru til stað-
ar hér á landi, þrátt fyrir að ítrek-
að hafi verið bent á þörf fyrir þær.
Tölvuárásir gætu lamað samskipti
í gegnum Netið, og jafnvel haft
áhrif á hluta símkerfisins.
Bæði Póst- og fjarskiptastofn-
un og Varnarmálastofnun hafa
unnið að því að undirbúa uppsetn-
ingu slíkra varna. Sá undirbúning-
ur hefur nú að mestu stöðvast þar
sem ekkert fé er lagt í varnirnar.
Mikil áhersla hefur verið lögð á
varnir gegn tölvuárásum á hinum
Norðurlöndunum. Íslandi var boðið
að þróa varnir samhliða Dan-
mörku. Það var
þegið, en Ísland
heltist úr lest-
inni þegar kom
að því að fjár-
festa í tækjum
og ráða og þjálfa
starfsmenn.
V í ð a í
ná grannalönd-
unum hafa verið
settir upp við-
bragðshópar sem hafa það hlut-
verk að bregðast við hættu á árás-
um. Póst- og fjarskiptastofnun
hefur lagt til að slíkum hópi verði
komið á fót hér á landi.
„Við teljum fulla ástæðu til að
koma upp slíkum viðbragðshópi
hérlendis, en það kostar fé sem
liggur ekki á lausu,“ segir Hrafn-
kell V. Gíslason, forstjóri Póst- og
fjarskiptastofnunar.
Hann segir varnir gegn tölvu-
árásum geta verið fljótar að borga
sig, þar sem þær geti kostað stofn-
anir og fyrirtæki háar upphæðir.
Hrafnkell segir veltuna hjá glæpa-
mönnum sem noti Netið við iðju
sína gríðarlega mikla, og þeir noti
afar háþróaðan hugbúnað.
Tölvuárásir hafa valdið gríðar-
legum truflunum bæði í Eistlandi
og Georgíu. - bj / sjá síðu 10
Ísland er óviðbúið
árásum tölvuþrjóta
Íslensk stjórnvöld hafa ekki byggt upp varnir gegn tölvuárásum sem valdið geta
miklum usla. Ísland stendur hinum Norðurlöndunum langt að baki í viðbúnaði.
ÉL EÐA SLYDDUÉL í fyrstu en
nokkuð bjart víða þegar kemur fram
á daginn. Vindur víða fremur hægur
en strekkingur með NA-ströndinni.
Hiti verður á bilinu 0 til 8 stig.
VEÐUR 4
4
2 3
1
3
MEXÍKÓ Lögreglan í mexíkósku
borginni Tijuana við landa-
mæri Bandaríkjanna lagði í
gær hald á 105 tonn af kanna-
bisefnum, sem er meira en
dæmi eru til um að hald hafi
verið lagt á í einu lagi í land-
inu árum saman.
Ellefu voru handteknir í
tengslum við aðgerðir lögregl-
unnar, sem réðist til atlögu
gegn stórtækum smyglurum í
þremur hverfum borgarinnar
eldsnemma í gærmorgun.
Magnið er nánast jafn-
mikið og lögreglan í Mexíkó
hafði lagt hald á það sem af
er árinu, en samtals var það
komið upp í 115 tonn.
Samkvæmt nýjustu verð-
könnun SÁÁ er gramm af
hassi selt hér á landi á 2.500
krónur, en gramm af grasi á
tæpar 3.000 krónur. Verðmæti
105 tonna gæti því numið 260
til 315 milljörðum króna. - gb
Fíkniefnalögreglan í Mexíkó:
Tók meira en
hundrað tonn
HALD LAGT Á 105 TONN AF MARÍJÚANA Efnin voru í tíu þúsund stórum pakkningum, greinilega ætluðum til útflutnings. Heildar-
magnið er eitt það mesta sem stjórnvöld hafa komið höndum yfir í Mexíkó svo árum skiptir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Aftur af stað
Vaktargengið leggur drög
að nýjum sjónvarpsþætti
án Jóns Gnarr.
fólk 30
SJÁVARÚTVEGUR „Þetta var óum-
flýjanleg niðurstaða. Hún hafði
verið í kortunum lengi,“ segir
Kristján Freyr Helgason, formað-
ur samninganefndar Íslands, á
fundi í London þar sem kolmunna-
kvóti næsta árs var ákveðinn.
Samanlagður kvóti strandríkj-
anna var minnkaður úr 540 þús-
und tonnum niður í 40 þúsund.
Hlutur Íslands fer úr 87.000 tonn-
um í 6.500 tonn. Áfallið fyrir upp-
sjávarveiðiflotann er því mikið.
Ríkin voru sammála um að
fara í einu og öllu eftir ráðgjöf
Alþjóðahafrannsóknaráðsins. - gb
Kolmunnakvótinn hrynur:
Úr 87 þúsund
tonnum í 6.500
HRAFNKELL
V. GÍSLASON
STJÓRNMÁL „Ég er að leggja þetta
fram til að þjóðin fái að segja álit
sitt á málinu,“ segir Vigdís Hauks-
dóttir, fyrsti flutningsmaður þings-
ályktunartillögu sjö þingmanna úr
öllum flokkum nema Samfylkingu
um þjóðaratkvæðagreiðslu um það
hvort halda eigi áfram aðildarvið-
ræðum Íslands og Evrópusam-
bandsins.
Samkvæmt tillögunni á að halda
atkvæðagreiðsluna sama dag og
kosið er til stjórnlagaþings, 27. nóv-
ember. Gallinn er sá að samkvæmt
lögum um þjóðaratkvæðagreiðslur,
sem Alþingi samþykkti í júní, skulu
líða minnst þrír mánuðir frá því
Alþingi samþykkir þingsályktunar-
tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu
þar til atkvæðagreiðslan fer fram.
„Ég var búin að gleyma þessum
lögum,“ viðurkennir Vigdís sem
sjálf tók þátt í að samþykkja lögin í
júní. Að fenginni fyrirspurn Frétta-
blaðsins kveðst Vigdís munu leggja
fram á Alþingi í dag frumvarp til að
breyta lögunum frá því í júní.
„Það er náttúrulega alveg galið, ef
það er brýnt málefni sem kemur upp
í þjóðfélaginu og nota á kosningadag
til að spara 250 milljónir, að það séu
þannig tímamörk á því að þjóðar-
atkvæðagreiðslan fari ekki fram,“
segir Vigdís sem kveðst bjartsýn
á að tillaga sjömenninganna verði
samþykkt á Alþingi. - gar
Þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB:
Gleymdu lögum um þjóðaratkvæði
VIÐ VEIÐAR Kolmunni er uppsjávarteg-
und og getur orðið 50 cm langur.
Arsenal setti markamet
Chelsea, Arsenal, Real
Madrid og Bayern München
eru öll í frábærum málum í
Meistaradeildinni.
íþróttir 27