Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939 - 01.01.1939, Síða 5

Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939 - 01.01.1939, Síða 5
Sigurjón Jónsson ritari. Björgvin Schrani varaforni. Sigurður Halldórsson aðstoðarféhirðir. Sigurður S. Ólafsson skráritari. Erlendur Pétursson formaður. ÁVARP FORMANNS KR-ingarl Vér stöndum nii ú merkilegum tima- mótum i sögu félags vors. Hér verður ekki saga þess rakin, heldur skal hér í fdum orðum sagt, hvað gamla K.R. telur múli skifta. Á öllum sviðum íþróttanna liefur K.R. glætt áhuga félagsmanna fyrir þeim. En það er hið æðsta takmark félagsins og mesti sigur þess, að glæða um fram alt áhuga æskulýðsins fyrir hinu mikla menningarmáli, íþróttun- am. Og hve marga bikara og heiðnrs- verðlaun, sem félagið fær, verður það þó ávalt mesta gleði K.R., að sjá áliuga hvers félaga vakna til þess að verða að sönnum iþróttamanni, því á þann hátt verður hann ekki aðeins fyrir- myndar félagi, heldur einnig sannur og góður borgari þjóðar sinnar. Þess vegna vil ég minna atla KR- inga á það, að helgasta ósk félags vors er uppfylt með því, að helst all- ir félagar þess iðki iþróttir af kappi og verði að s ö n n u m íþróttamönn- um og konum. Ekki aðeins vegna K.R., heldur vegna sjálfra ykkar, ættlands ykkar og vina og vandamanna. líinn sanni iþróttamaður og kona, veit best, hve lífið er unaðslegt, þeg- ar því er lifað á réttan hátt. íþróttirnar eru eitt af bestu upp- eldismeðulum þjóðarinnar. Það er sannfæring allra bestu manna félags- ins, og vegna þeirrar sannfæringar hefur félagið stigið öll sin stóru spor hin síðustu árin. íþróttirnar eiga fyrst og fremst að miða að þvi að ná til fjöldans og verða hans eign. Þegar því marki er náð hafa iþróttafélögin unnið þjóð sinni það gagn, sem aldrei verður met- ið til fjár. Og sem betur fer nálgasl það mark óðum með dugmiklu starfi K.R. og annara íþróttasamherja. K.R. fagnar að sjálfsögðu hverjum unnum sigri á orustuvelli iþróttanna, því það veit, að bak við þann sigur liggur mikil þjálfun og sönn iþrótta- menska, og keppnin er nauðsynlegur liður að hinu æðsta marki. En það fagnar ekki siður yfir því, að hafa á síðnstu fjörutiu árum hundrað-faldað meðlimatölu sína eða frá 20, eins og stofnendurnir munu liafa verið, og upp í 2000, og mestur er fögnuður þess þó yfir því, að með sinni fjöt- breyttu íþróttastarfsemi allra síðustn ára, er allur þessi fjöldi að meira eða minna leyti virkir félagar. IÍ.R. hefur nú. ekki aðeins aðsetur hér í höfuðstaðnum, heldur einnig uppi á háfjöllum. Hin mikla fórnar- lund og ósérplægni, sem nn lýsir sér í dáðriku starfi margra KR-inga, er besta sönnun þess, hve góðnr s k ó l i félagið er fyrir æskulýð höfuðstaðar- ins. ■—- KR-ingar! Eflið iþróttirnar sjátfum ykkur til likamlegrar hreysti og vel- liðunar og til s i g u r s K.R. K. R. ! Þ i'i e r t I ý s a n d i e I d- s t ó l p i í þ j ó ð l í f i v o r u ! Eyjólfur Leós gjaldkeri. Ólafur Guðmundsson féhirðir. Georg Lúðvígsson aðstoðargjaldkeri. Björgvin Magnússon áhaldavörður. 3

x

Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939
https://timarit.is/publication/660

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.