Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939 - 01.01.1939, Page 17

Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939 - 01.01.1939, Page 17
um, að fyrir utan þann lærdóin, sem niargt annað lært af því að kynnast honum og umgangast hann, sem síðar mun hafa komið okkur oftsinnis mjög vel i lífinu. Árið 1932 var Guðmundur kosinn formaður félagsins og hefur í fjölmörg ár átt sæti i stjórn þess. í for- mannssætinu, og yfirleitt sem stjórn- andi félagsins, komu að sjálfsögðu fram hinir söniu kostir Guðmundar og að framan er getið. Að mínum dómi þá eru það ekki aðeins við K.R.-ingar, sem getum þakk. að Guðmundi fyrir það, sem hann hef- ur kent okkur á knattspyrnusviðinu, heldur vil ég leyfa mér að fullyrða, að áhrifa hans hefur einnig gætt al- ment í knattspyrnunni hér í bænum. Kristján L. Gestsson. Hann hefur átt sæti í stjórn K.R. í 13 ár og þar af i 9 ár sem formaður félagsins. Án þess á nokkurn hátt að gera litið úr hæfni annara formanna félagsins, bæði fyr og síðar, er mér óhætt að fullyrða, að Kristján hefur verið okkar mikilvirkasti formaður. Það má segja, að um leið og Krist- ján tók við formensku félagsins árið 1923, þá hefjist hið merkasta framfara- tímabil i sögu þess. Á tiltölulega stuttum tíma gerði hann K.R. að stærsta og sigursælasta iþróttafélagi þessa lands. f samfeld 6 ár var ég i stjórn félags- ins með Kristjáni, og hafði mjög gott tækifæri til að fylgjast með störfum hans. Var þetta einmitt þau árin. sem voru hin drýgstu i framfarasögu félags- ins. Ég undraðist oft yfir hinuin geysi- mikla krafti og áhuga, sem Kristján sýndi á þessum árum. Það var bókstaf- lega alveg sama, hversu erfið viðfangs- efnin virtust vera, sem hann liafði hugsað sér að leysa, það lék i hans höndum. Ég man að ekki allsjaldan á þessum árum kom Kristján með tillög- ur á stjórnarfundi um einhver þau at- riði. sem liöfðu mjög mikinn kostnað i för með sér fvrir félagið, oft á tiðum svo mikinn, að félagið sjálft gat ekki staðist straum af hinum væntanlegu útgjöldum. En þá hað Kristján okkur hina stjórnarmeðlimina vinsamlegast, hvort hann ekki mætti siálfur revna að iitvega féð og síðan að sjá um greiðslu á því. Svo varð maður hess var, að næsfu dagana þevstist Kristián um borgina milli ýmsra góðra félagn og styrktarmanna K.R., og hafði hon- um þá i sumum tilfellum á örstuttum tíma tekist að fá greiðsluloforð upp á 2—3000 krónur. Ég dreg þetta dæmi hér fram aðeins til að gefa mönnum hugmynd um, hvers geysimikið erfiði Kristján hefur lagt á sig til að vinna félaginu alt það gagn, er hann mátti á þessum árum og reyndar ávalt síð- an. Hann hefur frá þvi að hann fór úr stjórn félagsins verið framkvæmd- arstjóri KR-hússins og leysti það starf, eins og öll önnur, sem hann hefur tek- ið að sér, með hinni mestu prýði. Það má með sanni segja, að Kristján var hinn eiginlegi upphafsmaður að kaup- um KR-hússins, og er það því heinlínis honum að þakka, að hagur félags okk- ar mun vera betri en nokkurs annars iþróttafélags þessa lands. Ég tel að framsýni Kristjáns og hinn óbilandi dugnaður hans og atorka i hvívetna, muni um fjölda ókominna ára vera sá grundvöllur, sem hið endurreista K.R. byggist á. Það má með sanni segja, að Kristján sé gæddur þeim kostum, sem hinn sjálfkjörni foringi þarf að hafa. Ollum sem þekkja hann er kunnugt um hina mjög fáguðu og háttprúðu framkomu hans í hvívetna, og ekki munu margir iþróttamenn vera til hér á landi, sem eru s a n n a r i íþrótta- menn en hann. Fyrir utan þátttöku Kristjáns í stjórn félagsins, hefur hann verið mjög mikilvirkur í flestum iþróttagreinum þeim, sem iðkaðar hafa verið i félaginu. Hann var t. d. um langan tíma elsti og einhver gagnmesti knattspyrnumaður félags okkar. Sýndi hann i knattspyrnunni, eins og annars staðar, ódrepandi dugnað og útheldni. Ég tek algerlega undir það ineð vini minum. Erlendi Péturssyni, sem hann einu sagði um Kristján, að umfram alt væri hann „drenaur góður“. og meira eða betra er ekki hægt á islenskri tungu að segja um einn mann. Erlendur Pétursson. Hann hefur i aprilmánuði n.k. verið í stjórn K.R. samfelt i 24 ár. Lengst af liefur liann verið ritari félagsins, en einnig nokkrum sinnum formaður þess, og er hann það nú. Því má með sanni segja, að Erlendur hefur frá endur- vakningu félagsins 1910 og fram til þessa dags, haft mjög mikil áhrif á stjórn þess. Hann hefur með ritara- starfi sínu einu, gert sig ógleymanleg- an í sögu félagsins um aldur og æfi. Þær þrjár bækur, sem hann að mestu leyti hefur ritað um starf félagsins, geyma þann mesta fróðleik um knatt- spyrnu hér á landi, frá öndverðu og til dagsins í dag, auk nákvæmrar skýrslu um öll íþróttamót, sem fram liafa farið á knattspyrnuvöllunum i Reykjavik, ásamt skýrslu um flest op- inber hlaup, iþróttamót o. fl. Þegar saga knattspyrnunnar hér á landi verður rituð, verða bækur þess- ar alveg ómetanlegar sem heimildar- rit í því efni. Með þvi að lesa bækur þessar, sér maður livernig Erlendur frá byrj- un kemur stöðugt við sögu félagsins, og ávalt til hins besta. Strax á unga aldri kenmr hann fram með ýmsar til- lögur um félagsmálin, sem ég sé, að síðan liafa ávalt verið til hins mesta gagns fyrir félagið, Við lestur bók- anna, og sér i lagi við persónulega viðkynningu við Erlend, kemst maður að þeirri niðurstöðu, að umfram alt hefur verið á ferðinni alveg sérstakur drengskaparmaður, sem ávalt hefur sýnt hinn sanna drengskap og heil- hrigði í hverju því máli, sem hann hefur unnið að. Ef allir íþróttamenn þessa lands ættu til sama drengskap og Erlendur, þá væru iþróttamenn okk- ar einhverjir mestu drengskannr iþróttamenn þessarar veraldar. Máli minu til frekari sönnunar. vil eg benda á það atvik, sem skeði i 50 ára af- 15

x

Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939
https://timarit.is/publication/660

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.