Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939 - 01.01.1939, Blaðsíða 22

Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939 - 01.01.1939, Blaðsíða 22
Sveinsson og setti nýtt met i hlaupinu. Magnús var næstur honum. Tími Odd- geirs var 1 klst. 6 min. 4 sek. K.R. vann Víðavangshlaupið og 1933 Silla & Valda-bikarinn i 5. sinn og til fullrar eignar; Oddgeir Sveinsson hlaut 2. verðlaun. — K.R. tapaði Drengjahlaupinu í fjórða sinn. Einar S. Guðmundsson úr K.R. hlaut 2. verðl. — Á íþróttamótinu 17. júr.í sigraði Ingvar Ólafsson í 4 iþrótta- greinum, og Þorgeir Jónsson og Magn- ús Guðbjörnsson urðu lika sigurveg- arar. — Á meistaramótið i Vestmanna- eyjiun sendi K.R. 6 menn. Ólafur Guð- mundsson varð meistari i 400 og 1500 m. hlaupi, og Garðar S. Gíslason í 100 m. hlaupi. Auk þess varð K.R. meist- ari i 4x100 m. boðhlaupi. — K.R. tap- aði Drengjamótinu í fjórða sinn. Nú var það hlutskifti Ármanns að sigra glæsilega. Rjarni Ólafsson hélt uppi heiðri K.R. með þvi að sigra í kúlu- varpi. — Magnús Guðbjörnsson vann Álafosshlaupið enn einu sinni, og 3. verðlaun hlaut Sverrir Jóhannesson, ungur og efnilegur KR-ingur. K.R. tapaði nú Viðavnngshlauu- 1934 inu i fyrsta sinn siðan 1925. Í.R. vann hlaupið og Morgun- blaðsbikarinn í fyrsta sinn. Sverrir Jó- hannesson úr K.R. hlaut 2. verðlaun. — Drengjahlaupið vann K.R, og átti nú bæði 1. og 2. mann. Það voru Einar S. Guðmundsson og Stefán Þ. Guð- mundssön. Var nú hlaupin ný leið. er var nokkru sfyttri en sú eldri. — Alls- herjarmótið fór fram þetta sumar eft- ir nýrri reglugerð. Nú fengu bara 4 menn stig, og átti mótið að haldast ár- lcga. Tnavar rtlafsson varð mesti „stiga- maður" K.R. og sigraði í 3 iþróttum. Garðar S. Gislason sigraði í sprett- blaupunum og Haukur Einarsson i 5000 m. göngu. Auk l>ess sigraði K.R. i 4x100 m. boðhlaupi. K.R. vann mót- Garðar S. Gíslason. ið. — Á meistaramótið sendi K.R. 12 menn og urðu 3 þeirra meistarar: Ól- afur Guðnmndsson í 400 og 800 m. hlaupi, Garðar S. Gíslason í 100 og 200 m. hlaupi og Sverrir Jóhannesson i 5000 m. lilaupi. K.R. varð boðhlaups- meistari (4x100 m.). — Ármann vann enn Drengjamótið, en nú nmnaði mjóu. — Á innanfélagsmóti þessa árs setti Garðar S. Gíslason nýtt ísl. met í 100 m. hlaupi: 11.0 sek. Á innanfélagsmóti drengja skaraði Kristján Vatfnes fram úr og lofaði miklu. — Garðar S. Gisla- son hlaut Afreksbikar K.R. þetta ár fyrir að hlaupa 100 m. á 11.3 sek. K.R. tapaði aftur Víðavangs- 1935 hlaupinu 1935. Í.B. vann. Og Sverrir hlaut nú bara 3. verð- laun. — K.R. vann Drengjahlaupið aft- ur og bikarinn til eignar; er það sá 3. i röðinni af þremur. Stefán Þ. Guð- mundsson varð fyrstur í mark og setti nýtt met. Árni Ólafsson lilaut 3. verðl. — K.R. vann Allsherjarmótið, en nú Sveinn Ingvarsson. munaði litlu, aðeins einu stigi. Var Ár- mann svona skæður keppinautur. En þeir Ingvar og Sverrir stóðu sig prýðilega á hættunnar stund, og Þor- geir Jónsson var sannkölluð hetja. Á þessu móti uppgötvaðist ný stjarna á iþróttahimninum: Sveinn Ingvarssön. Hann sigraði i 200 m. hlaupi — óvænl. Ný i])róttagrein, sleggjukast, fór fram i fyrsta sinn á þessu móti. Helgi Guð- mundsson úr K.R. kom sigurvonum Ár- menninga fyrir kattarnef. — K.R. hlaut 0 meistarastig á meistaramótinu. Krist- ján Vattnes varð meistari i kúluvarpi og spjótkasti, Sveinn Ingvarsson í 100 og 200 m. hlaupi, og Sverrir Jóhannes- son i 1500 m. lil. En auk þess sigraði boðhlaupssveitin. Nýja KR-kynslóðin „bauð góðan daginn" á þessu móti. — Á Ólympíunefndnrmóti i sepfember Helgi Guðnnindsson. setli Sveinn silt fyrsta met, í 400 m. hlaupi (54.1 sek.). —• Drengjamótið vanst nú loks aftur, i fyrsta sinn sið- an 1929. Var þar Kristján Vattnes stiga- hæstur. Hann sigraði i 6 iþróttagrein- um og setti met í þrem (kúluvarpi, kringlukasti og spjótkasti), og Stefán Þ. Guðmundsson setti met í 400 m. hlaupi. Kristján fékk hikar fyrir afrek sín. Á öðru drengjamóti, sem lialdið var fyrir drengi úr Vestmannaeyjum, bar Kristján höfuð og herðar yfir aðra keppendur og setli met í kringlukasti. Þá sefti Stefán og met i langstökki (0.02 m.). — Á innanfélagsmóti þessa árs setti Helgi Guðmundsson nýtt ísl. met í sleggjukasti (28.75). Nú var í fyrsta sinn haldið innanfélagsmót fyr- ir drengi undir 10 ára og var þátt- taka ágæt. — Sveinn Ingvarsson hlaut Afreksbikar K.R. fyrir að hlaupa 100 mefra 2. ágúst á 11.4 sek. Ólympíuárið kom. K.R. tapaði 1936 Víðavangshlaupinu í 3. sinn, en Sverrir lilaut 1. verðlaun, og Óskar A. Sigurðsson ])au þriðju. f.B. tók Morgunblaðsbikarinn fyrir fult og alf. — Drengjahlaupið vann K.R. í 3. sinn i röð, með yfirburðum. Óskar A. Sigurðsson og Stefán Þ. Guðmunds- son tóku 1. og 2. verðlaun. — K.R. vann Allsherjarmótið með glans. Krist- ján og Sveinn báru þar af; sigruðu þeir báðir i 3 greinum. Kristján setfi nýtt met i spjótkasti (50.24 m.) og kúluvarpi (13.12 m.) Helgi Guðmunds- son setti nýtt isl. met i sleggjukasti (29.55 m.). Einar S. Guðmundsson o<? Sverrir unnu sitt hvort hlaupið. — Á Ólympiudeginum i júlí sefti Kristján enn nýtt met í spjótkasti: 57.03 m. — Á Ólympiuleikana voru sendir 4 menn til að keppa i friálsum iþróttum. Af þeim voru 2 úr K.R., þeir Sveinn og Kristján. Keppti Sveinn í 100 m. hláupi 20

x

Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælisblað Knattspyrnufélags Reykjavík 1899 - 1939
https://timarit.is/publication/660

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.