Morgunn - 01.06.1939, Page 97
MORGUNN
91
legan svip, með breitt og hátt enni og fagurmeitlaða
andlitsdrætti, og kemur mér fyrir sjónir sem dásam-
leg ímynd hins göfuglegasta grísks karlmannsfríðleika.
Búningur hans er frá gullöld Grikkja og klæði hans hvít,
en líkjast þó ekki neinum jarðneskum hvítum klæðum,
því að af þeim stafar ljómandi birta. Um höfuðið ber
hann sveig úr laufum og grannt ennisband úr gulli með
geislandi stjörnu.
Fleiri englar í svipuðum búningi stóðu eða gengu um
í garðinum í smáflokkum eða tveir og tveir saman í al-
varlegum viðræðum.
Ég hef nú ekki getað nema að eins nefnt á nafn dásam-
lega fegurð Ijósgarðanna, og eins er ég hrædd um, að
ég geti ekki meira en að eins getið um hinn undursam-
lega unað og áhrif af samræðum Leiðtoga, og verði því
aptur að láta ímyndunarafl lesenda minna um það, að
skapa sér líklega hugmynd um það.
Þeir geta hugsað sér, að þeir hlýði á einn af mestu
vitringum frá friðsældardögum Grikkja. Og þeir geta
látið hugann fljúga enn þá lengra og hugsað sér að þeir
séu að hlýða á þennan sama mann eins og hann mundi
vera, hefði hann haldið áfram að lifa á jörðinni meira
en tvö þúsund ár með sínum andlcgu hæfileikum og lík-
amlega þrótti óskertum. Og ef þeir hafa nóg ímyndun-
arafl til að fara enn lengra, geta þeir hugsað sér, er þeir
h'.ýða á slíkan mann, að hann h.ifi um allar þessar aldir
verið að þroskast og vaxa á þeim englasviðum, þar sem
hann er nú einn í tölu hinna æðstu engla. Ef þeir geta
þetta, þá munu þeir skilja, að ég, sem enn þá er barn
jarðarinnar og einfeldningur, sem hef um æfina verið
ofhlaðin önnum til að geta öðlazt menntun, kynoka mér
við því að reyna til að gefa öðrum nokkurn veginn rétta
hugmynd um orðin, sem féllu af vörum hans, er ég í
hrifningu hlýddi á hann í ljósgörðunum. Og þó verð ég
að gjöra þessa tilraun, því að þessi opinberun hefir ekki