Morgunn - 01.06.1939, Síða 122
116
MORGUNN
ekki lengra máli. Þar eru víst rakin þessu til skýringar
og stuðnings flest eða öll meginatriði, sem áður hafa ver-
ið kunnug og því svo langt sem þau ná. Enda málið svo
mikilvægt fyrir alla kristnina, að þar má helzt ekkert
vanta, sem getur verið til skýringar og skilningsauka.
Spurningin væri þá, hvort nokkuð slíkt sé í greinunum
undan fellt eða fram hjá gengið. En um leið og eg viður-
kenni yfirburði þeirra, sakna eg þar þess atriðis, sem
Morgunn hefir jafnan haldið fram og bent á. Það eru nið-
urstöður sálarrannsóknanna, sem betur en nokkuð annað
sanna, að upprisusögurnar eru ekkert ósennilegar.
Þessar rannsóknir eru líka orðnar „staðreynd í verald-
arsögunni" og niðurstöðurnar sannaðar og munu ekki
framar glatast, svo að koma hlýtur að því, að ekki verði
fram hjá þeim gengið í slíku máli, þótt enn sé það gjört,
líklega fyrir enn viðloðandi lítilsvirðing á spíritisma.
Söderblom erkibiskup mun eiga við þetta, er hann seg-
ir, að sér sé „heldur óljúft að fást við þess konar útlist-
anir, sem skýra að vísu, en þó aldrei til neinnar hlítar“.
Og síðar talar hann um að „setja þessar sýnir og opinber-
anir í samband við almannareynslu vora og athuganir og
ályktanir vísindanna á líkum fyrirbrigðum1) og skyldum
enda þótt þau séu mjög ófullkomin". Hann tekur fram að
þau skýri, en ekki að hverju leyti þau séu ófullkomin og
ekki til hlítar.
En sálarrannsóknirnar hafa leitt í Ijós til hlítar og full-
lcomlega, að ekkert í upprisusögunum er ósennilegt, því
að það gjörist sannanlega allt enn í dag — allt, nema
opna og tóma gröfin. En Söderblom tekur fram, að læri-
sveinarnir reistu ekki boðskap sinn á tómri gröf, heldur
á því að Kristur birtist þeim. Og Páll nefnir ekki tóma
gröf í 1. Kor. 15, en telur mörg tækifæri, er hann birtist,
og mótmælir ákveðið að það hafi verið efnislíkaminn, sem
reis upp. (Hold og blóð getur ekki erft guðsríki og fleiri
1) í>. e. fyrirbrigðum sálarrannsóknanna.