Morgunn


Morgunn - 01.06.1973, Side 61

Morgunn - 01.06.1973, Side 61
HINN FURÐULEGI EDGAR CAYCE 59 hafði þar, eins og síðar í lífinu, verið hæglátur, látlaus og prúð- ur drengur, vinsæll og vel látinn af öllum. En það var allsnennna, sem á því fór að bera, að hann væri öðrum ólíkur að einhverju leyti. Kom það fyrst í ljós, þegar hann var níu ára gamall með all-kynlegum hætti. Lýsti það sér í því, að honum virtist ómögulegt að stafa orðið cabin, sem þýðir eftir sambandinu kofi eða káeta. Þótti bekkjarbræðrum hans ekki lítið gaman að þessum vandræðum hans og hæddust að honum í bekknum, en kennari hans Lucian, sem var frændi hans, brást reiður við og veitti honum harða áminningu. Og þegar veslings Edgar kom heim eftir skóla var Lucian frændi hans þar kominn á undan honum, svo hann hlaut heldur en ekki kaldar kveðjur hjá föður sínum, Cayce óðalsbónda, sem var bæði sár og reiður. Og þama i dagstofunni hófst nú kennslustund, sem Edgar átti eftir að verða minnisstæð og allt annað en skemmtileg. Reyndi faðir hans þar að troða í hann undirstöðuatriðunum í stöfun, en af einhverjum óskiljanlegum ástæðum virtist dreng- urinn annað hvort ekki geta lært þetta eða ekki vilja það. Klukkan tíu um kvöldið var hin föðurlega þolinmæði þrotin. Veitti óðalsbóndinn syni sínum svo vænan kinnhest, að hann datt af stólnum, sem hann sat á. Þegar Edgar litli lá á gólfinu gerðist hið furðulega. Að því er hann síðar sagði heyrði hann rödd, sem sagði við hann: „Ef þú getur sofnað svolitla stund getum við hjálpað þér.“ Hver þetta var eða hvaðan þetta barst vissi hann ekki, en hann heyrði þetta mjög greinilega. Edgar bað nú föður sinn um að veita sér svolítið hlé, og svaraði hann því til, að hann ætlaði að skreppa fram í eldhús, en þegar hann kæmi aftur tækju þeir upp þráðinn, og væri honum þá vissara að sýna ofurlitla vitglóm. Þegar faðir hans kom inn aftur var Edgar steinsofandi á legubekk með stafrófskverið undir höfðinu. Síðar taldi Cayce bóndi, að hann hefði varla verið frammi nema svo sem stund- arfjórðung. Það fauk í hann við að sjá þetta. Hann þreif bók- ina undan höfði Edgars og vakti hann all-hranalega. En nú sagðist Edgar kunna lexíu sína, og foreldrum sínmn til
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.