Morgunn


Morgunn - 01.06.1973, Page 65

Morgunn - 01.06.1973, Page 65
HINN FURÐULEGI EDGAR CAYCE 63 að honum hafði tekizt að svæfa sjálfan sig og láta skrifa niður það, sem hann hafði sagt á meðan hann var í þessu ástandi. Fyrst í stað hóf Cayce þessa óvenjulegu hjálparstarfsemi með aðstoð vinar síns Laynes, en síðar tóku lærðir læknar þátt í þessu. 1 hvert sinn, sem Cayce hafði komið sér í leiðsludáið og ástandi sjúklingsins hafði verið lýst fyrir honum, komu þessi orð: „Já, við höfum líkamann hérna.“ Þessu fylgdi síðan sjúk- dómsgreining á máli læknisfræðinnar, sem sannfærði efagjöm- ustu lækna um það, að hvaðan sem þetta kæmi, þá lægi hér að baki mikil læknisfræðileg þjálfun og þekking, enda komu svo á eftir nákvæm fyrirmæli um meðferð sjúkdómsins. Cayce og samstarfsmenn hans kröfðust þess jafnan, að lækn- ingaraðferðin væri framkvæmd af læknum á staðnum, sem aðgang höfðu að sjúklingnum. En stundum var þetta ekki hægt, ýmist sökum þess, að læknar neituðu að vera nokkuð ríðnir við þetta dularfulla „kukl“ eða hins, að sjúklingarnir vildu ekki láta læknana koma nálægt sér, sökum þess að þeir höfðu misst alla trú á þeim. Enda voru fyrirmælin, sem gefin voru, þegar Cayce lá í dái, stundum ákaflega einföld, t.d. háls- skolun, grautarbakstrar, plástrar, heimatilbúið te eða hressing- arlyf. Oft voru fyrirskipaðar eins konar strokur eða nudd, eink- um á mænunni til þess að endurskapa flæði taugaaflsins um líkamann. Það fór nú ekki hjá því, að þessar lækningar færu að vekja eftirtekt. Kom fyrst um þær grein í blaðinu The Bowling Green í Kentucky árið 1903 og svo birtust fleiri í blöðum í Louisville og Nashville. Þetta leiddi til þess að bréf, símskeyti og lang- linu-samtöl hlóðust að, svo nota þurfti alla daga vikunnar til þess að hafá við að sinna þessu með einhverjum hætti. Það hggur í augum uppi, að Cayce var imian handar að verða stórefnaður maður á því að taka greiðslu fyi'ir hjálp sína, en það tók hann ekki í mál, og þetta önnum kafna góðmenni átti því fullt í fangi með að framfleyta lífinu. Hann var nú kvæntur og vann fyrir sér sem aðstoðarmaður hjá ljósmynd- ara. En þau litlu laun nægðu ekki fjölskyldunni til framfæris.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.