Morgunn


Morgunn - 01.06.1976, Side 13

Morgunn - 01.06.1976, Side 13
SVO SEM MAÐURINN SAIR . . . 11 Hinn feiknannkli, ótrúlegi, ósýnilegi heimur hluta og krafta, sem tæki 20. aldar hafa opnað oss, neyðir oss til þess að leiða hugann að slíkum möguleikum. Og þegar vér skyggn- umst aftur í hina löngu sögu mannkynsins, þá rekumst vér á ýmis tilfelli í skráðri sögu, þar sem slík skilningsvidd virðist hafa verið fyrir hendi. Þannig fáum vér vitneskju um það, að hinn mikli stærðfræðingur og vísindamaður átjándu aldar, Swedenborg, hafi á efri árum öðlast óskiljanlega vitunarvídd, að því er ævisöguritarar hans herma. Eitt atvik sem sýndi fjarskyggni Swedenborgs er sérstaklega frægt, ekki síst sökum þess að það er vottað af mörgum málsmetandi mönnum, með- al annarra heimspekingnum fræga Immanuel Kant. Kvöld nokkurt klukkan sex var Swedenborg að snæða kvöld- verð með nokkrum vinum sínum, þegar hann allt i einu komst í mikið uppnám og sagði að hættulegur eldur hefði brotizt út í heimaborg sinni Stokkhólmi, sem var í þrjú hundruð milna fjarlægð. Hann fullyrti skömmu síðar, að eldurinn hefði þeg- ar eyðilagt heimili eins af nágrönnum hans og ógnaði nú heimili hans sjálfs. Klukkan átta sama kvöldið hrópaði hann með nokkrum létti, að tekist hefði að stöðva eldinn þrem hús- um frá heimili sínu. Tveim dögum síðar var hvert einasta atriði sem Swedenborg hafði greint frá staðfest með raunveru- legum skýrslum um eldsvoðann, sem hafði brotist út einmitt á sömu klukkustund og Swedenborg hafði orðið fyrir skyggni- áhrifunum. Þetta dæmi um Swedenborg er aðeins eitt af mörgum hundruðum svipaðra tilfella, sem getið er um í sögunni og ævisögum mikilmenna og annarra sem minna eru kunnir. Samkvæmt ævisöguriturum Marks Twains, Abrahams Lin- colns og tónskáldsins Saint-Saens, svo einhverjir séu nefndir, áttu allir þessir menn það sameiginlegt, að þeim hafði ein- hvem tíma á ævinni opnast sýnir af atburðum sem gerðust í órafjarlægð, sem þeir gátu lýst í minnstu smáatriðum. Eða þá þeir sáu með sama hætti atburði sem gerðust í þeirra eigin lífi mörgum mánuðum eða árum síðar. Hvað snertir Swenden- borg þá þroskaðist fjarskyggnihæfileiki hans og varð að föst-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.