Morgunn - 01.06.1976, Blaðsíða 20
18
MORGUNN
verið mikilsháttar prestur í Egyptalandi fyrir mörgum öldum
og búið yfir miklum sálrænum mætti. En eigingirni og hold-
legar fýsnir höfðu orðið honum að falli. f síðari endurholdgun
í Persiu hafði hann verið læknir. Eitt sinn hafði hann særst
í bardaga og verið skilinn eftir á sandinum til þess að bera
þar beinin. Þama lá hann aleinn án matar, drykkjar og skjóls
í þrjá sólarhringa og tók út slíkar þjáningar, að hann reyudi
af fremsta megni að losa vitund sína frá líkamanum. Þessi
tilraun heppnaðist. Og að nokkm leyti átti hæfileiki hans til
þess í nútíðinni að losa hugann úr viðjum likamans, einmitt
rætur sínar að rekja til þess viðburðar í fyrra lífi. Göllum
Cayces og kostum var lýst af hiklausri hreinskilni og taldir
eiga rætur sínar að rekja til einnar eða annarrar fyrri tilveru
og reynslu hans þar. Lífið í nútíðinni var eins konar reynslu-
próf fyrir sól hans. Honum hafði verið gefið tækifæri til þess
að þjóna mannkyninu án eigingirni og bæta með því fyrir
hroka, efnishyggju og holdlegar fýsnir fortíðarinnar.
Lammers var þeirrar skoðunar, að þessi nýi þáttur í dálestr-
unum væri svo mikilvægur, að hér þyrfti að gera miklu víð-
tækari rannsóknir. Krafðist hann þess nú að Cayce kallaði
fjölskyldu sina frá Selma til Dayton, og fullvissaði hann um
að hann skyldi sjá fyrir þeim á meðan á dvölinni stæði. Frú
Cayce og synir þeirra tveir samþykktu að koma og sömuleiðis
ritarinn Gladys Davis, sem næstum mátti nú orðið telja með
fjölskyldunni. Þegar þau komu og fréttu hvað hafði gerst,
voru viðbrögð þeirra mjög svipuð og hjá Cayce. Þau urðu
furðu lostin og áttu mjög bágt með að trúa þessu, en hrifust
smám saman með af forvitni og vaxandi áhuga. Og nú voru
líflestrar þeirra allra teknir fyrir. I hverju einstöku tilfelli kom
fram hreinskilið mat á skaphöfn hvers einstaklings fyrir sig og
gefið í skyn að eiginleikamir ættu rætur sínar að rekja til
reynslu á fyrri æviskeiðum. Þetta var sagt við annan son
hjónanna til dæmis: „Fjórum af fyrri lífum þínum hefurðu
eytt við vísindarannsóknir, og nú ertu haldinn efnishyggju
og eigingirni". Við hinn drenginn var sagt: „Þú ert mjög van-
stilltur á skapi. Það hefur orðið þér dýrt spaug, bæði í Egypta-