Morgunn - 01.06.1976, Side 43
TRÚ OG ÞEK.KING
41
maðurinn fer ósjálfrátt eftir þeim skilningi á sannleikanum,
sem höfðar til vitundarinnar.
Þvi meira, sem trúarbrögðin hugga sig við þá fölsku lausn,
að til sé tvenns konar sannleikur og fjarlægjast vitundarlífið,
því meira missa þau gildi sitt fyrir manninn. Þau munu missa
gildi sitt fyrir manninn og þjóðfélagið vegna þess að heims-
myndin, sá skilningur á raunveruleikanum, sem er ákvarð-
andi fyrir þjóðfélagið, hann verður ekki til út frá þokukennd-
um og óákveðnum tilfinningum, heldur út frá hugsun og
ákveðnum hugmyndum, sem streyma út frá raunverulegu
vitundarlífi mannsins. Sannleikur, sem hugsunin getur ekki
tengt við hina upplifuðu heimsmynd, hættir að vera mönnum
sannleikur. Hann verður að orðaleik, hann verður í raun og
veru bara að orðum, orðum, sem að vísu geta vakið huglægar
tilfinningar, en sem geta ekki orðið skapandi og breytandi
kraftur í heiminum og mannkynssögunni, eins og hann ætti
að vera.
Innst inni er maðurinn ekki fær um að trúa í raun á annað
en það, sem hann álítur satt og raunverulegt og skilningur
hans á því, hvað er satt og raunverultgt mun alltaf ákvarð-
ast af þeirri upplifun á veruleikanum, sem ráðandi er á hverj-
um tíma. Þannig hefur það ætið verið og þannig er það nú á
tímum.
Hugtakið „trú“ er orðið svo ruglingslegt og i raun og veru
svo óútskýranlegt vegna þess, að það hefur verið rifið frá
uppruna sínum á síðari tímum. Það hefur verið slitið úr
samhengi við reynslu mannsins og skilning. Menn hafa gert
takmörkun sína að dyggð og búið til trúarhugtak, sem leitar
að fullkomnun sinni i því að vera fjarstæða. Hvernig verður
yfirleitt trú til? Hvernig varð t. d. kristin trú til? Hún varð
til sem reynsla í kringum persónu Jesú Krists. Páll postuli
átti í fyrstunni mestan þátt í að útbreiða kristna trú, en hann
öðlaðist trú sína við mjög skýra reynslu. Hann skrifaði: „Ég
vil biðja með andanum, en ég vil einnig biðja með skyn-
seminni. Ég vil lofsyngja með andanum, en ég vil einnig lof-
syngja með skynseminni.“ Það voru svo karlar og konur, sem