Morgunn - 01.06.1976, Page 78
76
MORGUNN
Þegar fyllt hafði verið út í alla reitina, svöruðu menn spurn-
ingum á næsta blaði um 1) hve oft þeir muna að jafnaði
drauma sina (eftir hverja nótt, a. m. k. vikulega, mánaðar-
lega, enn sjaldnar, aldrei), 2) berdreymi (mánaðarlega, á
nokkurra mánaða fresti, sjaldnar, aldrei), 3) trú á tilveru
hugskeyta og forspárhæfileika (óhugsanleg, möguleg, viss) og
4) lestur bóka og greina um dulræn efni (oft, sjaldan, aldrei).
Að öllum tilraunum loknum var þátttakendum raðað og
þeim númeraðir frá 1 til 449. Sálfræðinemar, sem tilraunina
gerðu, voru settir i stafrófsröð, bekkjum hvers þeirra raðað
eftir aldri og loks var nemendum hvers bekkjar raðað eftir
stafrófsröð. Númer eitt varð því sá framhaldsskólanemandi,
er var fremstur í stafrófi yngsta bekkjar þess sálfræðinema,
sem var fremstur í stafrófi sálfræðinemanna, er framkvæmdu
tilraunina. Þá voru fengnar frá Reiknistofu háskólans 450
númeraðar raðir af tilviljunarbókstöfum með 100 bókstöfum
(LXYOZ) i hverri röð. Bókstafaraðirnar voru færðar inn á
númeruð blöðin með reitunum, merkt við hverja rétta lausn
og þær taldar hjá hverjum manni fyrir sig. Til að forðast
villur var farið tvisvar yfir öll gögn.
Þar sem fimm mismunandi bókstafir eru notaðir og reitirnir
100 hjá hverjum þátttakanda, má að meðaltali búast við 20
réttum lausnum á mann. Meðaltalið fyrir alla 449 þátttak-
endur reyndist 19,86 réttar lausnir sem er aðeins óverulegt
frávik frá meðaltilviljun.
Sé mönnum hins vegar skipt í flokka eftir svörum þeirra
við einstökum spurningum, kemur í ljós töluverður munur á
meðalgildum réttra lausna i forspárprófinu eins og sjá má í
meðfylgjandi töflu. Reiknivinna fór að mestu fram í tölvu
Reiknistofunnar.
Tökum fyrst spurninguna um trú á tilveru hugsanaflutn-
ings og forspárhæfileika. Þeir 90, sem töldu sig vissa um
tilveru þeirra, hlutu 41 fleiri réttar lausnir en búast hefði
mátt við fyrir meðaltilviljun (fræðilegt meðalgildi). Þeir
fengu að meðaltali 20,46 réttar lausnir. Hinir 331, sem töldu
slík dulræn fyrirbæri möguleg, hlutu að meðaltali 19,83 í’éttar