Fréttablaðið - 11.11.2010, Síða 2
2 11. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
Friðrik, þeim hefur ekki dottið
í hug að kalla þig bara Fred
the Viking?
„Jú reyndar. Nemendunum fannst
magnað að fá brimbrettakennslu frá
Fred the Viking from Iceland.“
Friðrik Guðjónsson var áður verðbréfa-
miðlari en fór til Havaí og tók að sér
brimbrettakennslu. Hann segist ýmist
hafa verið kallaður The Viking eða Fred.
DÝRAHALD „Þetta er hrikalega
ömurlegt. Ég ætla að skjóta
þessu til borgarráðs,“ segir Guð-
rún Þura Kristjánsdóttir, sem
umhverfisráð Reykjavíkur hefur
synjað um að halda fjórar land-
námshænur við heimili sitt á
Hjallavegi.
Hænurnar Lukka, Gríma, Bíbí
og Gæfa eru í kofa sem Guðrún
notaði áður fyrir kanínur og
stendur nærri íbúðarhúsinu í stór-
um bakgarði. Hænurnar fékk hún
í ágúst í fyrra. Þær voru inni í bíl-
skúr í fyrravetur en hafa verið í
kofanum síðan í sumarbyrjun.
Hænurnar komu til kasta borg-
aryfirvalda þegar nágranni gerði
athugasemd.
Skipulags- og byggingarsvið
segir íslenska hefð að flokka-
hænsnfugla sem húsdýr. „Engin
hefð er fyrir að líta á hænsnfugla
sem gæludýr í skilningi laga og
reglugerða,“ segir skipulagssvið-
ið og mælir gegn því að hænurnar
fái að vera.
Umhverfis- og samgönguráð
kveðst fagna því að borgarbúar
vilji stuðla að sjálfbærum lífs-
háttum og fjölbreyttu dýralífi í
borginni. „Slíkt verður hins vegar
að gerast í sátt og samlyndi við
aðra borgarbúa,“ segir ráðið og
synjar Guðrúnu um leyfið með
vísan til umsagnar skipulags-
sviðsins og til þess að „ekki virð-
ist sátt hjá nágrönnum um hina
fiðruðu íbúa“.
Guðrún segir alla nágrannana
jákvæða nema eina konu sem
hafi kvartað. „Þessi kona býr
tuttugu metra hér frá. Hún þyk-
ist finna lykt í ákveðinni vindátt.
Það er meiri lykt af hænsnaskít
sem maður kaupir en skítnum úr
mínum hænum,“ segir hún ósátt.
Guðrún leggur áherslu á að
hænurnar séu afar vistvænar.
„Þær éta alla matarafganga og
ég nota skítinn sem áburð. Þess
utan gefa þær okkur frá einu upp
í fjögur egg á dag,“ segir hún og
undirstrikar jafnframt að þær
Lukka, Gríma, Bíbí og Gæfa séu
afskaplega skemmtilegar.
„Þær eru bæði vinalegar og
sætar og flottar svona marg-
litar. Dóttir mín og önnur börn
elska þær og nágrannarnir gauka
gjarnan að þeim matarafgöng-
um,“ lýsir Guðrún og tekur að
lokum fram að lítill hávaði berist
frá hænsnahópnum enda sé þar
enginn hani á meðal.
„Þær fara að sofa klukkan sex
á kvöldin og heyrist ekki í þeim
fyrr en upp úr sjö eða átta næsta
morgun. Þá gagga þær dálítið
fram undir hádegi ef þær eru á
varptíma. Hinum nágrönnun-
um finnst þetta bara kósí. Manni
þykir vænt um þær og þess vegna
er þetta svona ömurlegt. Ég er
alveg gráti næst,“ segir Guðrún
Þura. gar@frettabladid.is
Fjórar hænur sendar
fyrir dóm borgarráðs
Guðrún Þura Kristjánsdóttir á Hjallavegi er gráti næst því umhverfissvið borg-
arinnar neitar henni um að halda fjórar landnámshænur í kjölfar kvörtunar
frá nágrannakonu. Guðrún segir þær Lukku, Grímu, Bíbí og Gæfu yndislegar.
GUÐRÚN OG HÆNURNAR Þótt Hjallavegur sé í landnámi Ingólfs Arnarsonar eiga
landnámshænur ekki heima í borgarlandinu frekar en aðrar hænur, segir umhverfis-
ráð, sem synjar Guðrúnu Þuru Kristjánsdóttur um leyfi til að halda hænurnar Lukku,
Grímu, Bíbí og Gæfu í bakgarðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FJÖLMIÐLAR Mannréttindadóm-
stóll Evrópu í Strassborg hefur
samþykkt að taka til meðferðar
tvö meiðyrðamál sem íslenskir
blaðamenn hafa tapað.
Annars vegar er um að ræða
svokallað Vikumál, sem blaða-
maðurinn Björk Eiðsdóttir tap-
aði fyrir Ásgeiri Þór Davíðssyni,
þekktum sem Geira á Goldfin-
ger.
Í hinu málinu fékk eigandi
skemmtistaðarins Strawberries
Erlu Hlynsdóttur, þá á DV, dæmda
fyrir ummæli Davíðs Smára Hel-
enarsonar.
Íslenska ríkið hefur fengið
frest til 16. febrúar til að skila
inn athugasemdum um málin og
svara því hvernig viðmiðin sem
beitt var í málunum samræmast
mannréttindasáttmála Evrópu og
hvort brýna nauðsyn hafi borið
til að takmarka tjáningarfrelsi
blaðamannanna.
Tvö önnur mál sem Erla Hlyns-
dóttir tapaði eru þegar til með-
ferðar hjá dómstólnum. Annað
þeirra vann fíkniefnasmyglar-
inn Rúnar Þór Róbertsson. Hann
hafði verið kallaður kókaínsmygl-
ari á forsíðu DV vegna máls sem
hann síðar var sýknaður í. Rúnar
var í fyrra dæmdur í tíu ára fang-
elsi í Papeyjarmálinu svokall-
aða.
Í hinu málinu fékk eiginkona
Guðmundar í Byrginu bætur fyrir
að vera bendluð við afbrot manns
síns í DV. - sh
Mannréttindadómstóll Evrópu skoðar fjóra dóma yfir íslenskum blaðamönnum:
Tvö meiðyrðamál til Strassborgar
ERLA HLYNSDÓTTIR Af fjórum fréttum
skrifaði þrjár þeirra Erla Hlynsdóttir, þá
blaðamaður á DV en nú á Vísi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
LÖGREGLUMÁL Helga Ingvarsdóttir
og Vickram Bedi, parið sem grunað
er um að hafa svikið allt að 20 millj-
ónir Bandaríkjadala út úr banda-
ríska auðkýfingnum og djasspían-
istanum Roger Davidson, gáfu 20
þúsund dali í kosningasjóð Demó-
krataflokksins fyrr í ár. Við það
tækifæri sátu þau fyrir á mynd með
Barack Obama Bandaríkjaforseta.
Bandarískir fjölmiðlar fjölluðu
um málið í gær og höfðu samband
við Hvíta húsið. Þar fengust þær
upplýsingar að vegna fjársvika-
málsins yrði styrkurinn látinn
renna til góðgerðamála.
Parið er sakað um að spinna
ótrúlega lygasögu um vírus frá
Hondúras, indverskan hermann
og valdasjúka pólska presta úr
reglunni Opus Dei og nota hana
til að hræða Davidson og fá hann
til að moka í þau fé.
Bedi veitti vefnum Journal
News viðtal úr fangelsinu í gær.
Þar fullyrðir hann að Davidson
ljúgi. Davidson sé ofsóknaróður
skattsvikari og klámhundur sem
hafi gefið parinu stórfé fyrir að
endurheimta 30 ára tónsmíðasafn
af hrundum hörðum diski.
- sh
Meintur svikahrappur veitir viðtal og fullyrðir að trúgjarna tónskáldið ljúgi:
Demókratar skila styrk Helgu og Bedi
Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP Helga og Bedi
sitja fyrir á mynd með Bandaríkjaforseta.
MENNTAMÁL Nýbygging Háskólans
í Reykjavík við Nauthólsvík verð-
ur formlega tekin í gagnið í dag
en öll starfsemi skólans hefur nú
flust þar inn. Hornsteinn verður
lagður að byggingunni af þessu
tilefni – enginn venjulegur steinn
heldur loftsteinn sem bakhjarlar
skólans hafa gefið honum.
Ari Kristinn Jónsson rektor
segir fagnaðarefni að skólinn
sé nú loks fluttur að fullu í nýju
bygginguna. Spurður um loft-
steininn segir hann að það hafi
þótt við hæfi að fá loftstein sem
hornstein þar sem nöfn kennslu-
og skrifstofa skólans bera nöfn úr
sólkerfinu. - mþl
Nýtt hús HR formlega vígt:
Loftsteinn lagð-
ur að HR
HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK Hluti starf-
seminnar flutti inn í janúar á þessu ári.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LONDON, AP Tugir þúsunda
háskólanema söfnuðust saman í
London í gær til að mótmæla fyrir-
huguðum hækkunum á skóla-
gjöldum í breskum háskólum.
Ofbeldi blossaði upp þegar
hluti mótmælendanna réðst gegn
lögreglu og inn í höfuðstöðvar
Íhaldsflokksins sem er í forystu
í ríkisstjórn Bretlands. Stjórnin
hefur undanfarið kynnt áætlanir
um niðurskurð á ríkisútgjöldum.
Samkvæmt tillögunum þrefaldast
skólagjöld við breska háskóla og
munu nema jafngildi 1,6 milljóna
íslenskra króna. - mþl
Mótmæla skólagjöldum:
Stúdentaóeirðir
í Bretlandi
LONDON Í GÆR Mótmælin í gær eru
þau viðamestu gegn aðhaldsaðgerðum
ríkisstjórnar Davids Cameron hingað til.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Lögreglustjórinn á
höfuðborgarsvæðinu mun á næst-
unni kanna lögmæti auglýsinga
veðmálafyrirtækisins Betsson.
Dómsmálaráðherra vísaði mál-
inu til lögreglustjóra, en aug-
lýsingar Betsson hafa birst á
strætisvagnaskýlum undanfarið.
Samkvæmt lögum um happdrætti
er bannað að auglýsa, kynna eða
miðla upplýsingum um happ-
drætti sem ekki hefur verið veitt
leyfi fyrir hér á landi. Gildir þá
einu hvort sú starfsemi sé rekin
hérlendis eða ekki. - þj
Vafi leikur á um lögmæti:
Mál Betsson
til lögreglunnar
ÍÞRÓTTIR Félagið Ísland-Palest-
ína krefst þess að Knattspyrnu-
samband Íslands (KSÍ) aflýsi
fyrirhuguðum vináttulandsleik
Íslands og Ísraels þegar í stað.
Ástæðan er framganga Ísraels-
manna á herteknu svæðum Pal-
estínu. Leikið verður í Tel Aviv
þann 17. þessa mánaðar.
Í tilkynningu frá félaginu segir
að KSÍ væri nær að sniðganga
Ísrael á meðan „þarlend stjórn-
völd stunda hernám og landrán“.
- þj
Kalla eftir sniðgöngu:
Vilja að KSÍ af-
lýsi landsleik
MÓTMÆLI Sunnlendingar munu
safnast saman við Alþingishúsið
í dag klukkan fjögur til að mót-
mæla fyrirhuguðum niðurskurði
á framlögum til heilbrigðismála.
Þar verða undirskriftalistar
afhentir forsætis-, heilbrigðis- og
fjármálaráðherra en um 8.500
Sunnlendingar hafa skrifað undir
yfirlýsingu þar sem niðurskurð-
inum er mótmælt, sem jafngildir
því að 44 prósent kosningabærra
manna í heilbrigðisumdæmi Suð-
urlands. Sunnlendingar óttast
að niðurskurðurinn muni valda
lokun sjúkrahúsa og er í yfirlýs-
ingunni skorað á stjórnvöld að
koma í veg fyrir það. - mþl
Um 8.500 skrifað undir:
Sunnlendingar
mótmæla
SPURNING DAGSINS