Fréttablaðið - 11.11.2010, Síða 4
4 11. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
SAMGÖNGUR Samgöngumiðstöð á
Reykjavíkurflugvelli var slegin út
af borðinu á fundi borgarstjóra og
samgönguráðherra síðdegis í gær
en í staðinn ákveðið að finna aðra
leið til að bæta aðstöðu farþega þar
til flugvöllurinn færi.
Nýir ráðamenn Reykjavíkur-
borgar mættu ekki til fundar við
nýjan samgönguráðherra til að
fylgja eftir stefnumörkun sem
fimm fyrrverandi borgarstjórar
og tveir fyrrverandi samgöngu-
ráðherrar hafa staðið að; að byggja
samgöngumiðstöðina, sem ríki og
borg hafa undirbúið saman í sex
ár. Fulltrúar borgarinnar, með þá
Jón Gnarr borgarstjóra og Dag B.
Eggertsson, formann borgarráðs,
í broddi fylkingar, kúventu stefnu
borgarinnar og sögðu nú engan
vilja fyrir samgöngumiðstöð, enda
væri verið að undirbúa brotthvarf
flugvallarins, að sögn aðstoðar-
manns borgarstjóra, Björns Blön-
dal.
Ögmundur Jónasson samgöngu-
ráðherra staðfestir að samgöngu-
miðstöðin sé nú út af borðinu. Sam-
komulag sé þó um að ná niðurstöðu
um að bæta aðstöðu farþega inn-
anlandsflugs enda sé ljóst að þrátt
fyrir ágreining um framtíð flug-
vallarins verði hann þar næstu ár.
- kmu
Borgarstjóri og formaður borgarráðs funduðu með samgönguráðherra:
Hætt við samgöngumiðstöð
REYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR Samgöngu-
ráðherra staðfestir að samgöngumið-
stöðin sé nú út af borðinu.
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
FRÉTTASKÝRING
Hvað kemur fram í skýrslu sérfræð-
ingahóps um skuldavanda heimil-
anna?
Engin ein leið sem hægt er að fara
til að greiða úr skuldavanda vegna
fasteignakaupa dugir til að bjarga
öllum sem eru í greiðsluvanda.
Þetta er niðurstaða sérfræðinga-
hóps stjórnvalda sem mat mismun-
andi leiðir til að leysa úr skulda-
vanda heimilanna.
Sérfræðingahópurinn telur í
grófum dráttum tvær leiðir til
að koma til móts við þá sem eru
í vanda. Annars vegar sé hægt
að lækka greiðslubyrði þeirra.
Hins vegar megi afskrifa skuldir,
sem hefði í för með sér lækkun á
greiðslubyrði.
Sérfræðingarnir fóru yfir alls
ellefu leiðir sem nefndar hafa
verið. Þar sem því var við komið
var metið hversu mörgum hver
leið myndi bjarga, og hver kostn-
aðurinn væri við hverja leið fyrir
sig. Kostnaðurinn mun falla á
ríkið, íbúðarlánasjóð, bankana og
lífeyrissjóðina.
Þrjár leiðir voru svo flóknar
að nær útilokað var talið að meta
áhrifin. Þar var um að ræða teng-
ingu afborgana við tekjur, eignar-
nám og niðurfærslu skulda með
gerðardómi og svokallaða tveggja
þrepa nálgun.
Sértæk skuldaaðlögun hagkvæm
Eftir stóðu átta leiðir sem starfs-
hópurinn gerði úttekt á. Áhrifin
af þeim leiðum, og kostnaðinn við
hverja og eina, má sjá á meðfylgj-
andi mynd.
Sú leið sem virðist vænlegust
þegar tekið er tillit til kostnaðar
og þess fjölda sem hún getur hjálp-
að stendur raunar þegar til boða,
en það er svokölluð sértæk skulda-
aðlögun. Í henni felst að kröfuhaf-
GENGIÐ 11.11.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
204,9921
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
111,09 111,63
178,34 179,20
153,01 153,87
20,525 20,645
18,962 19,074
16,456 16,552
1,3572 1,3652
173,96 175,00
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
P
IP
A
R
\T
B
W
A
·
S
ÍA
25%
AFSL
ÁTTU
R
Vinur við veginn
VETRARTILBOÐ
Nú færðu 25% afslátt af frostlegi, rúðuhreinsi
og þurrkublöðum með Staðgreiðslukorti Olís.
Sæktu um Staðgreiðslukort á olis.is.
Vil
dar
pu
nkt
ar
Ice
lan
dai
r
-3k
r.
af e
lds
ney
ti
Afs
lát
tur
af
vör
um
Engin ein leið bjargar öllum
Sértæk skuldaaðlögun og hækkun vaxtabóta virðast bestu kostirnir af þeim sem sérfræðingahópur lagði
mat á þegar tekið er tillit til kostnaðar. Niðurfærsla lána um 15,5 prósent kostar um 185 milljarða króna.
ar færa niður fjárskuldbindingar
fólks í greiðsluvanda að greiðslu-
getu þeirra. Kostnaður við þá leið
er um 10 milljónir á hvert heimili
sem kemst úr skuldavandanum.
Næsthagkvæmasta leiðin virðist
vera hækkun vaxtabóta, sem kost-
ar tæpar 28 milljónir fyrir hvert
heimili sem bjargast, eða um 1,3
milljónir króna á ári.
Flöt lækkun skulda um 15,5
prósent kostar margfalt meira en
sértæka skuldaaðlögunin, en skil-
ar minni árangri hjá þeim 10.700
heimilum sem sannarlega eru í
skuldavanda að mati sérfræðing-
anna. Kostnaður fyrir hvert heim-
ili sem kemst úr vanda er um 123
milljónir króna.
Lækkun vaxta nær til flestra
Hægt væri að ná til flestra þeirra
sem eru í vanda með því að lækka
vexti af húsnæðislánum í þrjú
prósent. Kostnaðurinn við það er
hins vegar gríðarlegur, 240 millj-
arðar króna. Fyrir hvert heimili
sem bjargast úr skuldavanda væri
kostnaðurinn um 92 milljónir yrði
sú leið farin.
Starfshópurinn mat ekki kostn-
aðinn af því að gera ekki neitt til að
taka á skuldavandanum. Í skýrsl-
unni kemur fram að verði ekkert
gert megi annars vegar búast við
því að fleiri nýti sér þau úrræði
sem nú séu í boði, svo sem sér-
tæka skuldaaðlögun. Hins vegar
megi búast við að kostnaður verði
til vegna gjaldþrota heimila sem
ekki ráða við skuldir sínar.
brjann@frettabladid.is
Vandi leystur Enn í vanda Kostnaður
Lækkun skulda
í 100 prósent af verðmæti eigna
Stiglækkandi niðurfærsla skulda
í 90 prósent af verðmæti eigna
Hækkun vaxtabóta
Lækkun vaxta af
húsnæðislánum í 3 prósent
11,8%
88,2% 13,6%
86,4% 13,6%
86,4% 24,3%
75,7%
125 MILLJARÐAR
150 MILLJARÐAR
240 MILLJARÐAR
Sértæk skuldaaðlögun
Flöt lækkun skulda um 15,5 prósent
Niðurfærsla skulda miðað
við upphaflega lánsfjárhæð
Lækkun skulda
í 110 prósent af verðmæti eigna
19,6%
80,4%
14,0%
86,0% 11,7%
88,3% 8,4%
91,6%
18 TIL 26 MILLJARÐAR
185 MILLJARÐAR
155 MILLJARÐAR
89 MILLJARÐAR
Greining sérfræðingahópsins á mögulegum úrræðum fyrir heimili í skuldavanda
Heimili í vanda:
Niðurstaða starfshóps stjórnvalda er að um það bil 10.700 heimili af þeim 72.800 heimilum sem eru með fasteignalán
eigi í skuldavanda. Hlutfall heimila í vanda er því um 14,7 prósent.
Mikill meirihluti þeirra sem eru í vanda á það sameiginlegt að hafa keypt húsnæði á árunum 2004 til 2008. Vandinn
er misjafn eftir fjölskyldumynstri. Þannig er fjórðungur einstæðra foreldra í vanda en aðeins um átta prósent hjóna og
sambúðarfólks. Flest þeirra heimila sem eru í vanda, yfir 80 prósent, eru á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi.
Um 10.700 heimili í skuldavanda
40 MILLJARÐAR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
9°
6°
7°
8°
7°
7°
7°
23°
13°
20°
11°
27°
1°
14°
16°
4°
Á MORGUN
Víða allhvasst N- og V-til.
LAUGARDAGUR
Dregur smám saman
úr vindi og ofankomu.
-2
-2
-3
-1
-5
-8
-2
1
1
0
-3 10
14
13
13
8
13
10
18
13
15
10
0
-2
0
-1
-3
-1
-3
-2
-4
-5
VINDASAMT Bú-
ast má við stormi
um landið suð-
austanvert fram á
kvöld en það verð-
ur áfram nokkuð
hvasst á landinu á
morgun. Á laugar-
dag dregur smám
saman úr vindi og
ofankomu og á
sunnudag lítur út
fyrir hægan vind
og bjart veður en
hins vegar mikinn
kulda.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
EFNAHAGSMÁL Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, segir skýrslu
sérfræðinga-
hóps ríkis-
stjórnarinnar
valda miklum
vonbrigðum,
framsetningin
sé takmörkuð
og villandi.
Hann segir
að reikna verði
með því að
kostnaður hljót-
ist af því að gera ekki neitt, og
reikna verði þann kostnað á móti
kostnaðinum.
Sigmundur segist enn þeirrar
skoðunar að fara eigi í almenna
niðurfærslu lána, þó einnig verði
að bregðast við tilfellum þar sem
það dugi ekki til eitt og sér. - bj
Skýrsla veldur vonbrigðum:
Takmörkuð og
villandi skýrsla
EFNAHAGSMÁL Ólöf Nordal, vara-
formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, segir mikilvægt að búið sé
að kortleggja
skuldavanda
heimilanna.
Miðað við nið-
urstöður sér-
fræðingahóps-
ins sé ljóst að
engin ein lausn
dugi ein og sér,
engin töfra-
lausn sé í boði.
Ólöf segir að ýmsar af þeim
leiðum sem hafi verið rædd-
ar, til dæmis almenn niðurfell-
ing skulda, komi til móts við lítið
hlutfall þeirra sem séu í mest-
um vanda. Ein af þeim leiðum
sem skoða ætti betur er til dæmis
hækkun vaxtabóta, segir Ólöf. - bj
Gott að kortleggja vandann:
Engin töfra-
lausn í boði
EFNAHAGSMÁL Þór Saari, þingmað-
ur Hreyfingarinnar, segist enn
hlynntur almennri niðurfellingu
eftir að hafa séð útreikninga sér-
fræðingahóps ríkisstjórnarinnar.
Hann segir kolranga fram-
setningu að tala um kostnað við
hverja leið án þess að reikna
kostnaðinn við að gera ekki neitt,
sem geti orðið verulega hár.
Hann segir almenna niðurfell-
ingu nýtast mun fleirum en þeim
verst settu, fjöldi fólks geti rétt
haldið sér á floti og ekki sé langt
í að sá hópur gefist upp. - bj
Segir tal um kostnað villandi:
Enn hlynntur
niðurfellingu
SIGMUNDUR DAVÍÐ
GUNNLAUGSSON
ÓLÖF NORDAL