Fréttablaðið - 11.11.2010, Blaðsíða 12
12 11. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
HAUSKÚPA MEÐ HATT Í Bólivíu tíðkast
að halda árlega dag hauskúpunnar til
að þakka látnum fyrir veitta vernd. Á
þeim degi, sem nú síðast var haldinn
8. nóvember, eru hauskúpur dubbað-
ar upp og þeim færðar fórnir.
NORDICPHOTOS/AFP
Screwpull
40% 40% 30% 20% 20% 20% 20% 20% 20% 20%
20% 20% 20% 30%
Klingjum inn jólin
Öll gjafavara og smávara á 20-40% afslætti.
Frá fimmtudegi til sunnudags.
Flott hönnun, fágað handbragð.
Skeifan 8:
Fimmtudag: 10-18
Föstudag: 10-18
Laugardag: 11-15
Sunnudag: 13-18
Kringlan:
Fimmtudag: 10-21
Föstudag: 10-19
Laugardag: 10-18
Sunnudag: 13-18
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Akur-
eyri leitaði í gær að ólöglegum
leysigeislabúnaði sem beint hefur
verið að húsum, fólki og síðast í
fyrrakvöld að flugvél í aðflugi að
Akureyrarflugvelli.
Flugvélin, sem er frá Flugfélagi
Íslands, var að koma inn til lend-
ingar um hálfáttaleytið í fyrra-
kvöld þegar beint var að stjórn-
klefa hennar sterkum leysigeisla.
Gunnar Jóhannsson, lögreglu-
fulltrúi á Akureyri, segir að sam-
kvæmt lýsingum á atvikinu hafi
geislinn lýst flugstjórnarklefann
upp. Flugmennirnir gerðu flug-
turninum viðvart og hann hafði
samband við lögreglu skömmu
síðar.
Gunnar segir nokkurn veg-
inn vitað um staðsetningu þess
eða þeirra sem vörpuðu geislan-
um á flugvélina, samkvæmt lýs-
ingum flugmannanna. Talið er að
honum hafi verið beint úr bíl sem
var staddur á Vaðlaheiðinni. Þar
hafi fundist hjólför, en ekki hafi
verið hægt að ráða af þeim hvort
um fólksbíl eða jeppa hafi verið að
ræða. Lögregla hafi kannað sum-
arhúsabyggð á heiðinni en það hafi
engu skilað.
Fimm tilkynningar hafa borist
lögreglu um leysigeisla sem beint
hafi verið að fólki að undanförnu. Í
tveimur tilvikum hafði geisla verið
beint inn í hús, í tveimur tilvikum
að gangandi vegfarendum og loks
að bifreið í akstri. Engin teng-
ing finnst milli málanna, að sögn
Gunnars sem segir tilkynningarn-
ar hafa sýnt að geislinn hafi borist
frá mismunandi stöðum.
„Það virðist vera að þarna séu
á ferðinni óprúttnir náungar með
svona verkfæri undir höndum og
hafi verið að beina geislanum í
ýmsar áttir, að minnsta kosti í sex
skipti í síðastliðnum mánuði. Gall-
inn við þetta er sá, að geislinn er
svo sterkur og dregur svo langt að
það er erfitt að gera sér grein fyrir
því hvaðan hann kemur.“
Gunnar bætir við að geislinn
dragi fleiri hundruð metra ef ekki
kílómetra.
„Þetta er ekki talinn löglegur
búnaður í almannaeigu, því tækið
getur valdið ónæði og hættu, og
jafnvel augnskaða og þess hátt-
ar,“ segir Gunnar. Hann bætir við
að atvikið með flugvélina sé stór-
alvarlegt mál og algert ábyrgðar-
leysi. jss@frettabladid.is
STERKUR LEISERGEISLI Fólk á Akureyri hefur að undanförnu orðið fyrir ónæði af
völdum leisergeisla sem beint hefur verið að því á heimilum eða utan þeirra.
Leita að ólöglegum
leysigeislabúnaði
Lögreglan á Akureyri leitaði í gær að ólöglegum leysigeislabúnaði sem beint
hefur verið inn í íbúðarhús og að gangandi vegfarendum að undanförnu. Í
fyrrakvöld var geislanum beint að flugstjórnarklefa farþegaflugvélar í aðflugi.
BANDARÍKIN, AP Meira en þrjú
þúsund farþegar og hátt í 1.500
manna áhöfn á skemmtiferða-
skipinu Carnival Splendor fengu
loks aðstoð í gær þegar fyrstu
dráttarbátarnir frá Mexíkó
komu til að toga skipið til hafnar.
Skipið hefur rekið stjórnlaust
út af vesturströnd Mexíkó síðan
eldur braust út í vélarrúmi skips-
ins á mánudaginn.
Þessa daga sem síðan eru liðn-
ir hafa farþegarnir hreint ekki
fengið þann lúxus sem greitt var
fyrir. Loftkælikerfi hafa ekki
virkað, netsamband hefur legið
niðri og farsímar virka ekki.
Ekkert heitt vatn hefur heldur
fengist og eini maturinn í boði
eru matarskammtar sem borist
hafa með þyrlum.
- gb
Óskemmtileg skemmtiferð:
Dráttarbátar til
bjargar skipinu
MATARSKAMMTAR BERAST Farþegarnir
hafa þurft að láta sér nægja naumt
skammtað neyðarfæði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÞJÓÐKIRKJAN Tilnefningar for-
sætisnefndar kirkjuþings til
sannleiksnefndarinnar verður
fyrsta mál á dagskrá kirkjuþings
sem sett verður á laugardaginn
næstkomandi. Sannleiksnefnd-
in á að rannsaka viðbrögð þjóð-
kirkjunnar við kynferðisbrotum
og munu þrír skipa hana. Þeir
eiga að vera óháðir stofnunum og
embættum þjóðkirkjunnar.
Pétur Hafstein, forseti kirkju-
þings, segir nefndina fá fullan
aðgang að þeim gögnum kirkj-
unnar sem hún telji nauðsyn-
leg til að vinna að rannsókninni.
nefndarmenn munu ekki sinna
nefndarstörfum í fullu starfi,
heldur meðfram þeim störfum
sem þeir gegna nú þegar. Kirkju-
þing þarf að samþykkja tilnefn-
ingarnar og verða þær tilkynntar
á laugardag. - sv
Nöfnin tilkynnt á laugardag:
Þrír verða í
sannleiksnefnd