Fréttablaðið - 11.11.2010, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 11. nóvember 2010 13
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, AP Lífsgæði í
Noregi eru þau mestu í heimi, sam-
kvæmt árlegri rannsókn þróunar-
nefndar Sameinuðu þjóðanna (SÞ).
Ísland fellur úr þriðja sæti á listan-
um í það sautjánda. Simbabve er í
neðsta sæti.
Fram kemur í skýrslu SÞ að fólk
er að jafnaði heilbrigðara, ríkara
og betur menntað í dag en nokkru
sinni fyrr. Stjórnandi þróunar-
deildar SÞ, Helen Clark, tekur fram
í skýrslunni að lönd geti almennt
gert mikið til þess að bæta lífskjör
fólks, þrátt fyrir bágan hagvöxt.
„Nú er ljóst að ekki er hægt að
mæla lífsgæði fólks einungis eftir
fjármagni landa,“ segir Clark í
skýrslunni. „Einnig verður að taka
tillit til þess hvort fólk getur lifað
löngu og heilbrigðu lífi og hvort
allir hafa tækifæri til menntun-
ar.“
Síðan árið 1970 hafa lífslíkur
fólks í arabaríkjum aukist úr 51 ári
upp í 70 ár og er það mesta fram-
þróunin á því sviði í heiminum.
Barnadauði fór úr 98 á hver þúsund
lifandi fædd niður í 38 og er það
minna en meðaltal heimsins, sem
er 44 börn af hverjum þúsund.
- sv
Úttekt Sameinuðu þjóðanna á lífsgæðum:
Ísland fellur niður
VIÐSKIPTI Eldgosið í Eyjafjalla-
jökli jók til muna áhrif samn-
ings sem Hraunverksmiðjan og
Hekluskógar gerðu með sér í byrj-
un árs. Hekluskógar áttu sam-
kvæmt samningnum að fá eitt tré
fyrir hvern seldan hraungrip frá
Hraunverksmiðjunni.
„Iceland Travel ferðaskrifstof-
an var fljót að kveikja á perunni
og ákvað að nota hraun úr eldgos-
inu til landkynningar og vegna
samvinnu þessara og fleiri aðila,
og með aðstoð sumarstarfsmanna
Landsvirkjunar hafa verið gróð-
ursett nokkur þúsund birkitré
við Hald sem er norðan Heklu,
í nágrenni Hrauneyja,“ segir á
vefnum. - óká
Eyjafjallagos eflir skógrækt:
Eitt tré á móti
hverjum mola
EYJAFJALLAJÖKULL Síðasta sumar voru
nokkur þúsund birkitré gróðursett við
Heklu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
UMHVERFISMÁL Félag sumarbú-
staðaeigenda í Heiðmörk óskar
eftir rökstuðningi fyrir því að
fækka eigi þar sumarhúsum
vegna vatnsverndarsjónarmiða.
„Við flesta þessa bústaði hafa
á undanförnum árum verið sett-
ar nýjar 3.200 lítra rotþrær
samkvæmt ströngustu kröfum
umhverfis- og samgöngusviðs
Reykjavíkurborgar,“ segir í bréfi
félagsins til borgaryfirvalda.
„Það er okkar trú að þessi litlu
sumarhús og eigendur þeirra
geri frístundabyggðina fjölskrúð-
ugri og skemmtilegri,“ segir enn
fremur í bréfinu. - gar
Sumarhúsaeigendur sárir:
Telja sér úthýst
úr Heiðmörk
Vegvísir um draumheima
Greinargóðar skýringar á um tvö þúsund
draumtáknum og leiðbeiningar um það hvernig
lesandinn getur sjálfur lært að skilja
mismunandi boð sem draumarnir færa honum.
Nýja draumaráðningabókin er aðgengilegt
uppflettirit – nútímaleg fróðleiksnáma!
Frá Aristótelesi til Ásdísar Ránar
Á fimmta þúsund tilvitnanir víða að úr heiminum
og frá umliðnum 3000 árum – frá Grikkjum
fornaldar til stjarnanna í dægurheimi
samtímans. Lífsspeki aldanna jafnt sem
kaldhæðni nútímans!
Tilvitnanirfyrir öll
tækifæri!
Nauðsy
nleg
handbó
k á
hverju
heimili
!
Glæsilegar
gjafabækur!
FULLT VERÐ 6.490,-
TILBOÐSVERÐ 4.490,-
Gildir til 15.11.2010
FULLT VERÐ 6.490,-
TILBOÐSVERÐ 4.490,-
Gildir til 15.11.2010
– Lifið heil
Lægra
verð
í Lyfju
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
20
05
1
0/
10
Íbúfen 400 mg
30 stk. Áður: 566 kr. Nú: 499kr.
*gildir út nóvember 2010.