Fréttablaðið - 11.11.2010, Side 16
16 11. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
hagur heimilanna
20% KÍLÓVERÐ Á RÆKJUM hefur hækkað um 20%
á síðastliðnum átta árum.
NEYTENDUR Íslendingar eiga ekki að
þurfa að hafa áhyggjur af miklum
breytingum í matarundirbúningi
þrátt fyrir að magn transfitusýra í
mat verði takmarkað fyrir jólin.
Laufabrauð, smákökubakst-
ur, kleinusteikingar og hangikjöt
munu halda sínu striki og hefur
matvælaiðnaðurinn í landinu þró-
ast hægt og bítandi á síðustu árum
í átt að transfitusýrulausum mat.
Kjartan Snorrason, bakarameist-
ari hjá Kristjánsbakaríi, segir að
hinar nýju reglur muni hafa lítil
sem engin áhrif fyrir jólin.
„Markaðslega séð hefur þetta
verið jákvætt og komið hægt og
bítandi án þess að nokkur verði
þess var,“ segir hann. Kjartan
nefnir kleinur sem dæmi um þær
breytingar sem hafa
orðið í bakstri á
notkun trans-
fitu.
„Þetta
e r l a n g -
mest mjúkt
jurtafeiti,“
segir Kjart-
an. „Fyrir
tíu árum síðan
var hún full-
hert en nú er þessi
þróun komin hér að
mjög stórum hluta. Ef þú handleik-
ur kleinur í dag þá verður smá fita
eftir á fingrunum og það er vegna
þess að hún er mjúk.“
Ólafur Reykdal, mat-
vælafræðingur hjá
Matís ohf., tekur í
sama streng og
Kjartan og telur
fullvíst að mat-
vælaiðnaður-
inn eigi auð-
veldlega eftir
að geta valið
hráefni þar sem
transfitusýrur eru í
lágmarki. - sv
Engar breytingar á jólamatnum þrátt fyrir transfitusýrureglur:
Iðnaðurinn er kominn langt
Allt sem þú þarft...Ekki missa af Fréttablaðinu á morgun
Fræðimenn uggandi um framtíð
rannsóknarstarfs á Íslandi
-Eiríkur Steingrímsson og Magnús Karl Magnússon
prófessorar við læknadeild HÍ.
„Ég veit alveg hver voru mín bestu kaup,“ segir Knútur
Bruun, fráfarandi lögmaður Myndstefs, hótelhaldari á Hofi
í Öræfum og stjórnarformaður Fjarskiptafélags Öræfinga.
Hann segir gæfuna fremur hafa verið sér hliðholla
í margvíslegum viðskiptum í gegnum tíðina. Höf-
uðverkurinn sé að finna verstu kaupin.
Margir geta fundið til einhverja ógæfu í bíla-
kaupum. „En ég hef alltaf verið andskoti hepp-
inn með það og hef þó átt marga bíla,“ segir
Knútur og rifjar um leið upp að hann hafi einnig
gert mjög góð kaup þegar hann fyrir mörgum
árum festi kaup á Lækjargötu tvö í Reykjavík
af Ásbirni Ólafssyni, þar sem núna er
verið að endurbyggja eftir bruna. „Það
voru rosalega fín kaup þótt húsið
kostaði mikla peninga og ég væri
rosalega hræddur við þetta. En
svo gekk þetta allt mjög vel og
ég átti húsið í mörg ár og rak
þar Listmunahúsið,“ segir Knútur, en kveður þar samt ekki
komin bestu kaupin.
„Ég held samt að stjarnan í mínu lífi sé eignarhluti í
jörðinni Hofi í Öræfasveit þar sem ég er kominn með
gistiheimili núna. Þar er ég að láta teikna fyrir mig
einbýlishús og þangað ætlum við að flytja, ég og
mín ágæta kona, Anna Sigríður Jóhannsdóttir.“
Knútur segir að þeim hjónum líði ákaflega
vel á Hofi. „Og það er gott fyrir karl sem er eins
gráskeggjaður orðinn og ég að halla sér þar upp
að klettaveggjunum og horfa út í Lómagnúp á
annan vænginn og niður í Ingólfshöfða á
hinn og yfir sandana og yfir jöklana og
allt saman.“
Um verstu kaupin vill Knútur ekki
margt segja annað en að eitt sinn
hafi hann verið hluthafi í því að
kaupa skip og það hafi verið hans
verstu kaup á lífsleiðinni.
NEYTANDINN: Knútur Bruun, lögfræðingur og hótelhaldari
Stjarnan er eignarhlutur í Hofi
Lítraverð á eldsneyti nálg-
ast 200 krónur í fyrsta sinn
síðan í sumar. Verð nánast
það sama um allt land.
Álagning olíufyrirtækjanna
á bensínlítrann ekki meiri
síðan í vor. Skattar nema
rúmum helmingi af útsölu-
verði bensíns.
Útsöluverð á eldsneyti hefur hækk-
að nokkuð á undanförnum vikum
og er nú komið rétt upp undir 200
krónur á lítrann. Nánast sama verð
er á útsölustöðum um allt land.
Samkvæmt vefnum bensinverd.is
var ódýrast að
kaupa hjá Ork-
unni, þar sem
lítrinn kostaði
198,3 á öllum
stöðvum, en
dýrast var að
versla við Shell
þar sem lítrinn
var á 199,9 krón-
ur. Þess má geta
að bæði félögin
eru í eigu Skeljungs hf.
Þrátt fyrir verðhækkunina er
ekki að sjá að hana sé að rekja
til hærra innkaupaverðs á bens-
íni. Samkvæmt tölum frá Félagi
íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB),
sem reiknar verðið út frá verðlagi
og gengi Bandaríkjadals á hverj-
um tíma, var innkaupaverð auk
opinberra gjalda, það sem af er
nóvembermánuði, 167,3 krónur og
meðalverð á sama tíma var 197,6
krónur.
Miðað við þær tölur er álagning-
in 30,3 krónur, en hún hefur ekki
verið hærri frá því í maí þegar hún
var 31,7 krónur. Þá hafði álagning-
Álagningin á bensín
eykst milli mánaða
RUNÓLFUR
ÓLAFSSON in ekki verið hærri frá því í febrú-
ar 2009.
Útsöluverð hefur hækkað um
rúman þriðjung frá ársbyrjun
2009, en hluti af því er mikil stíg-
andi í skattheimtu ríkisins.
Samkvæmt tölum FÍB hafa skatt-
ar farið úr 76 krónum á lítrann upp
í 103, en náðu reyndar hámarki í
apríl þegar 105,6 krónur af hverj-
um lítra, sem þá kostaði 210 krónur,
runnu til ríkisins í formi skatta.
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB, segir í samtali
við Fréttablaðið að þessar tölur
bendi til þess að olíufélögin séu að
bæta í álagninguna og það vinni
upp lækkun á álagningu sem varð
í sumar.
„Það kom svolítið fjör á mark-
aðinn í sumar þegar Orkan reið
á vaðið og var með sama verð á
hverju sölusvæði, sem varð síðar
sama verð um allt land. Þá minnk-
aði líka munurinn sem hafði alltaf
verið á sjálfsafgreiðslustöðvum og
þjónustustöðvum niður í 30 aura.“
Runólfur segir að þetta sé virki-
lega áhyggjuefni fyrir bifreiðaeig-
endur hér á landi.
„Við sjáum að lítraverðið er
komið upp undir 200 krónur og það
er ekki hvetjandi. Svo kemur þetta
ofan í fréttir um að enn séu hug-
myndir um að setja veggjöld á veg-
ina til og frá Reykjavík, sem við í
FÍB erum alfarið á móti.“
thorgils@frettabladid.is
250
200
150
100
50
0 kr.
Útsöluverð
Innkaup með opinberum
gjöldum
Skattar kr/l
Útsöluverð að frádregnu
kostnaðarverði
Frá janúar 2009 til 10. nóvember 2010
Þróun bensínverðs á Íslandi
Heimild: FÍB
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
VERTU MEÐ VIÐSKIPTIN
Í RASSVASANUM
Meiri Vísir.
m.visir.is
Fáðu Vísi í símannog iPad!
Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem setja
„like“ við Vísi á Facebook geta unnið
óvænta vinninga í hverri viku.