Fréttablaðið - 11.11.2010, Síða 56
40 11. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
Furðustrandir
Arnaldur Indriðason
Hreinsun
Sofi Oksanen
Danskennarinn snýr aftur,
kilja - Henning Mankell
Sokkar og fleira
Kristín Harðardóttir
Spegill þjóðar
Njörður P. Njarðvík
Stóra Disney
matreiðslubókin
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT
03.11.10 - 09.11.10
Fleiri prjónaperlur
Ýmsir höfundar
Stelpur! - Þóra Tómasdóttir
og Kristín Tómasdóttir
Þú getur eldað
Annabel Karmel
Einfalt með
kokkalandsliðinu
Hjónavígslan með öllu sínu
tilstandi er Sigurbjörgu
Þrastardóttur yrkisefni í
nýjustu ljóðabók hennar,
Brúður. Hún segir brúð-
kaup að mörgu leyti ævin-
týralegar og skrýtnar
uppákomur.
Brúður er safn sextíu texta um
giftingar, „víraðir og fagrir“ eins
og segir á bókakápu. Hér er rýnt
í brúðkaupið og allt tilstandið í
kringum það frá ýmsum sjónar-
hornum, skyggnst í huga brúðar-
innar, dregnar upp myndir sem
sumar hverjar eru sorglegar en
aðrar fullar af von.
Sigurbjörg segist hafa farið í
afar mörg brúðkaup í gegnum tíð-
ina, bæði hérlendis og erlendis, og
sankað að sér mörgum hugmynd-
um úr ólíkum áttum.
„Textarnir komu smátt og smátt,
sumir úr draumum og aðrir úr
veruleika. Þorvaldur Þorsteinsson
rithöfundur bauð mér til dæmis
einu sinni að hirða af sér nokkrar
bækur því hann stóð í flutningum.
Þar fann ég hollenska ljósmynda-
bók um útibrúðkaup með stór-
kostlegum myndum sem rötuðu í
ljóðin. Ég ritstýrði líka brúðkaups-
blaði Morgunblaðsins tvívegis og
ræddi af því tilefni meðal annars
við heyrnarlausa brúði, sem gaf
mér líka hugmynd að ljóði. Þegar
ég tók eftir því hvað ég var óvart
komin með marga texta um þetta
þema fór ég að raða þessu saman
í eina bók.“
En hvers vegna er yrkisefnið
Sigurbjörgu svona hugleikið?
„Ég hef stundum sagt að ég hafi
illan bifur á brúðkaupum,“ segir
hún og hlær. „Það er vissulega
dálítið harkalega að orði kveðið en
það er margt skrýtið sem mætir
manni í brúðkaupum; ákveðnar
endurtekningar sem helgast ekki
endilega af hefðum heldur tísku-
straumum, sem setja æ meira
mark á athafnirnar og umbúnað-
inn í kringum þær. Það er eitthvað
ævintýralegt við brúðarskrúðann
og allt tilstandið í aðdraganda
brúðkaupsins, sem er yfirleitt
miklu meira af hálfu brúðarinn-
ar og vinkvenna hennar en brúð-
gumans.“
Viðfangsefni bókarinnar er
kvenlegt; fjallar um brúðir eða
brúður, eftir því hvernig lesandi
vill túlka titilinn, en þetta er þó
ekki endilega „kvennabók“ að
sögn Sigurbjargar. „Þetta er bók
fyrir gifta, fyrir þá sem geta ekki
hugsað sér að gifta sig, fyrir frá-
skilda og marggifta. Þetta eru ekki
hefðbundnir bragir sem eru flutt-
ir til heiðurs hjónum á brúðkaups-
degi, heldur eru dregnar upp ýmis
konar myndir, sumar þess eðlis að
bókin er ef til vill ekki heppileg
gjöf á brúðkaupsdaginn, þegar fólk
er viðkvæmt og allt á helst að vera
fullkomið. Fyrst og fremst er þetta
bók fyrir fólk sem ann ljóðum.“
hún ræskir sig hljóðlega,
segir:
einu sinni sá ég heyrnarlausa
stúlku gifta sig, hún
var
eins og aðrar brúðir
að öllu
öðru leyti - táknmálskórinn söng
hann finnur hvernig pungurinn
liggur skakkur í smókingbuxunum
og hann togar
í skálmina og það lagast og hann
horfir á rjómann og hugsar: ég verð
að hætta að
kjaftbrosa núna, annars trúir mér
ekki sála
ÚR BRÚÐI
40
menning@frettabladid.is
Hef illan bifur á brúðkaupum
SIGURBJÖRG ÞRASTARDÓTTIR „Það er margt skrýtið sem mætir manni í brúðkaup-
um; ákveðnar endurtekningar sem helgast ekki endilega af hefðum heldur tísku-
straumum.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tvær sýningar eru eftir af sýning-
um Áhugaleikhúss atvinnumanna
á sjónleiknum Ódauðlegt verk um
draum og veruleika í Útgerð Hug-
myndahúss háskólanna. Verkið var
frumsýnt 27. október en síðustu
sýningar eru á sunnudaginn klukk-
an 21 og á sama tíma fimmtudag-
inn 18. nóvember.
Ódauðlegt verk um draum og
veruleika er fjórða verkið af fimm
undir yfirskriftinni Ódauðlegt
verk, sem öll eiga það sameigin-
legt að fjalla um mannlegt eðli og
tilvist. Í þessu verki er spurt hvort
sé raunverulegra, það sem fer fram
í huga fólks eða það sem sýnilega
hendir í veraldlegum heimi.
Áhugaleikhús atvinnumanna
er hópur atvinnufólks í sviðslist-
um sem setur upp framsækin
sviðslistaverk. Hópurinn leggur
áherslu á að hann er ekki markaðs-
drifinn og setur upp sýningar án
endurgjalds.
Leikstjóri og höfundur verksins
er Steinunn Knútsdóttir en leikar-
ar eru Aðalbjörg Árnadóttir, Arn-
dís Hrönn Egilsdóttir, Árni Pétur
Guðjónsson, Hannes Óli Ágústs-
son, Lára Sveinsdóttir, Orri Hug-
inn Ágústsson, Ólöf Ingólfsdóttir,
Sveinn Ólafur Gunnarsson. - bs
Ódauðlegt verk í Útgerðinni
ÁRÁSIN Á GOÐAFOSS Heimildarmyndin komin út á DVD með miklu aukaefni.
Síðustu sýningar Sirkus Íslands á Sirkus Sóley í Tjarnarbíói á þessu
ári fara fram sunnudagana 14. og 21. nóvember. Sýningin var sett
upp í Salnum í Kópavogi og Hofi á Akureyri fyrr á árinu við góðar
undirtektir.
Um er að ræða sirkussýningu með jafnvægislistum, loftfimleikum
og fleiri áhættuatriðum, auk þess sem trúðar sprella eins og tilheyr-
ir í þeirri starfsstétt.
Sýningunni er ætlað að höfða til allra aldurshópa.
Síðustu Sirkusar ársins
ÓDAUÐLEG VERK Ódauðlegt verk um draum og veruleika er fjórða verkið af fimm sem fjalla um mannlegt eðli og varpa upp
tilvistarlegum spurningum.