Fréttablaðið - 11.11.2010, Page 66
folk@frettabladid.is
50 11. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
Páll Óskar og listamaðurinn
Oddvar Örn hófu samstarf
fyrir nokkrum árum í kjöl-
farið á Gay Pride í Reykja-
vík. Afrakstur samstarfsins
má berja augum í Smáralind
á laugardaginn, en þá hefst
sýningin Páll Óskar eftir
Oddvar.
„Þetta er ógeðslega gaman. Við
hlæjum endalaust í tökunum enda
með svipaðan húmor,“ segir lista-
maðurinn Oddvar Örn Hjartarson
um vinnu sína með Páli Óskari
Hjálmtýssyni.
Ljósmyndasýningin Páll Óskar
eftir Oddvar hefst í Smáralind á
laugardaginn. 34 sviðsettar ljós-
myndir sem Oddvar tók af popp-
stjörnunni verða sýndar og af því
tilefni kemur út bók í formi stórra
póstkorta.
Oddvar hefur verið hirðljós-
myndari Páls undanfarin ár og
segir hann vera frábæra fyrir-
sætu. „Hann er náttúrulega rosa-
lega myndarlegur og með öll þessu
flottu hlutföll sem módel þurfa að
hafa,“ segir Oddvar. „Svo er hann
með sjálfstraustið í lagi og það
skiptir rosalega miklu máli.“
En er Páll einhvern tíma með
dívutakta í myndatökunum?
„Jú, jú, stundum er hann alveg á
túr. Ég fæ stundum að finna fyrir
því.“
Páll Óskar bregður sér meðal
annars í hlutverk flugmanns,
skáta, ofurhetju, sjómanns, pitsu-
sendils og gagnkynhneigðs hand-
boltakappa á myndunum. Oddvar
segist kunna ótrúlega vel að meta
síðastnefndu myndina. „Hún virk-
ar eins og týpísk Fréttablaðsmynd.
Kannski er þetta einkahúmor –
Palli er náttúrulega megahommi
og maður hefur svo oft séð þessa
Páll Óskar stundum alveg
á túr í myndatökunum
Plötusnúðanámskeið verður haldið í
Tónlistarskóla Akureyrar á laugar-
daginn. Farið verður yfir öll mikil-
vægustu atriði plötusnúðatækninn-
ar og hentar námskeiðið vel fyrir þá
sem eru að stíga sín fyrstu skref í
faginu. Námskeiðið verður í umsjón
Benna B-Ruff og Guðna Impulze,
sem hafa báðir verið starfandi plötu-
snúðar um árabil. Innritun fer fram
í Tónastöðinni á Akureyri og er þátt-
tökugjald sex þúsund krónur.
Plötusnúðar á námskeiði
BENNI B-RUFF Benni B-Ruff og Guðni
Impulze hafa umsjón með plötusnúða-
námskeiði á Akureyri á laugardaginn.
Tvær íslenskar heimildarmynd-
ir verða frumsýndar um helgina.
Gnarr, heimildarmynd Gauks Úlf-
arssonar um Besta flokks framboð
Jóns Gnarr og félaga, hefur þegar
vakið mikla athygli og deilur. Gauk-
ur fylgir þar eftir lygilegri vel-
gengni framboðsins sem hægt og
bítandi varð stærsta stjórnmála-
aflið í Reykjavík með ólíkinda-
tólið Jón Gnarr fremstan í flokki.
Gaukur er auðvitað fyrst og fremst
þekktur fyrir að vera einn af sköp-
urum Sylvíu Nætur ævintýrsins
og sumir hafa viljað meina að vera
Jóns Gnarr í borgarstjórastóln-
um sé eitt stórt grínatriði að hætti
íslensku dívunnar sem Ágústa Eva
Erlendsdóttir lék svo eftirminni-
lega.
Hin myndin er kannski á ögn
alvarlegri nótum þótt stjórn höf-
uðborgarinnar sé vissulega ekkert
gamanmál. Hún heitir Feathered
Cocaine og er eftir þá Þorkel Harð-
arson og Örn Marinó Arnarson.
Myndin var frumsýnd á Trib eca-
kvikmyndahátíðinni í New York
fyrr á þessu ári og fór í kjölfarið á
Hot Docks-hátíðina í Kanada. Þar
að auki verður hún sýnd eftir viku
á IDFA-heimildarmyndahátíðinni
í Hollandi sem er sú stærsta sinn-
ar tegundar. „Auðvitað er ég með
smá fiðring í maganum yfir því
að frumsýna hér á Íslandi og ég
hlakka mikið til,“ segir Örn í sam-
tali við Fréttablaðið. Myndin fjallar
um ólögleg fálkakaup olíufursta í
arabaríkjunum og hvernig þau hafa
nánast gengið af fálkastofninum
dauðum í sumum
löndum. - fgg
Tvær íslenskar heimild-
armyndir frumsýndar
ÓLÍKAR MYND-
IR Heimildar-
mynd Gauks
Úlfarsson um
Jón Gnarr og
Feathered
Cocaine eru
ólíkar íslenskar
heimildar-
myndir sem
verða frum-
sýndar um
helgina.
HIRÐLJÓSMYNDARI
Oddvar og Páll Óskar hafa
unnið saman síðustu ár.
Oddvar lætur Pál meðal
annars bregða sér í hlutverk
gagnkynhneigðs hand-
boltakappa, skáta og
pitsusendils.
LEONARDO DICAPRIO fagnar 36 ára afmælinu sínu í dag. Hann sást síðast í
hinni frábæru mynd Inception. Næst sjáum við hann í Hoover eftir Clint Eastwood. Þar
fer DiCaprio með hlutverk J. Edgar Hoover.
36
MYND/ODDVAR
kærleiksríkt forlag
Bókin Lofuð eftir metsöluhöfundinn Elizabeth Gilbert,
er nú komin út í kjölfar hinnar sívinsælu bókar
Borða, biðja, elska. Edda Björgvins spjallar af alkunnri
snilld um báðar bækurnar og kemur m.a. inn á hinn
klassíska en þversagnarkennda þríleik:
Ást, mat og húmor!
Í kvöld, 11. nóvember kl. 20.00,
í Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18
ELIZABETH GILBERT KVÖLD
MEÐ EDDU BJÖRGVINS
Í tilefni af fyrirlestrinum verða bækur
Elizabeth Gilbert á tilboði ásamt völdum
Sölkubókum
Ást c
c matur
húmor c
gullsmidjan.is
gaura, ótrúlega káta með aðal-
skvísuna og nýfætt barn,“ útskýr-
ir Oddvar. „Svo eru þeir að lifa tvö-
földu lífi; spila með báðum liðum
án þess að gera það opinbert. Það
er tilfinning okkar Palla og margra
samkynhneigðra. Það er svo mikið
af karlmönnum sem koma aldrei út
úr skápnum, þannig að það er flott
að setja Palla í þennan búning. Það
vita allir að hann er ekki straight.“
Oddvar ítrekar þó að allir geti túlk-
að myndirnar á sinn hátt.
Oddvar játar að það sé frábært
tækifæri fyrir sig sem ungan lista-
mann að vinna með Páli Óskari og
vonast til þess að vinnan opni fleiri
dyr. „Ef ekki, þá held ég áfram að
gera mína list. Á meðan ég er ham-
ingjusamur er ég sáttur,“ segir
hann.
Í tilefni af opnuninni treður Páll
Óskar upp og áritar í Hagkaupum
Smáralind klukkan 14 á laugardag-
inn.
atlifannar@frettabladid.is.