Fréttablaðið - 16.11.2010, Síða 6

Fréttablaðið - 16.11.2010, Síða 6
6 16. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR FÉLAGSMÁL „Ég er hræddur um að margir í þessum stóra hópi hafi lítið síðustu vikuna í hverjum mánuði. Margir svelta einfaldlega,“ segir Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalags Íslands. Úttekt Þjóðmálastofnunar um hagi og lífskjör öryrkja sýnir að stór hluti öryrkja er fastur í fátæktargildru. Stór hluti öryrkja vill vinna launaða vinnu en uppbygging bótakerfis- ins og aðstæður á vinnumarkaði koma í veg fyrir atvinnuþátt- töku. Guðmundur segir að úttekt- in dragi upp dökka mynd en hafa beri hug- fast að hún var gerð hrunmán- uðina frá lokum september 2008 til janúar 2009. „Kjör öryrkja hafa versnað umtalsvert síðan, eins og hjá öðrum.“ Samkvæmt lífskjarakönnun Evr- ópusambandsins árið 2007 bjuggu um 23 þúsund Íslendingar á vinnu- aldri við hömlun eða fötlun. Mik- ill meirihluti öryrkja er 40 ára eða eldri enda langflestir hlotið örorku eftir að hafa verið virkir á vinnu- markaði. Áföll, veikindi eða slys með tilheyrandi tapi á vinnugetu eru þannig helstu ástæður þess að fólk fyllir hóp örorkulífeyris- þega, segir í skýrslunni en höfund- ur hennar er Guðrún Hannesdóttir félagsfræðingur. Guðmundur bendir á að 80 pró- sent aðspurðra vilji vera virk á vinnumarkaði. Hins vegar séu möguleikar öryrkja takmarkað- ir. „Það er ekki aðeins vegna fötl- unar heldur líka aldurs. Svo nefna langflestir bótakerfið. Þar vita menn hvað þeir hafa en ekki hvað þú færð. Með öðrum orðum, menn hræðast að tapa réttindum.“ Könnunin leiðir í ljós að heildar- mánaðartekjur öryrkja að meðaltali eru 175 þúsund krónur, en 40 pró- sent sögðust hafa átt í erfiðleikum með að greiða hefðbundin útgjöld á síðustu tólf mánuðum. Það er sláandi í könnuninni hversu hátt hlutfall öryrkja upplif- ir félagslega einangrun og fordóma í samfélaginu. Yfir 70 prósent upp- lifa einangrun en 45 prósentum svarenda finnst þeir finna fyrir fordómum vegna örorku eða fötl- unar sinnar. Fordómar koma ekki endilega utan frá heldur ekki síður frá fjölskyldu og vinum. Þeir sem eru á aldrinum 30 til 39 ára finna helst fyrir fordómum eða 59 pró- sent þeirra. Lægsta hlutfall er hjá þeim sem eru sextugir eða eldri, fjórðungur þeirra segist finna fyrir fordómum. svavar@frettabladid.is Fátækt og fordómar einkenna líf öryrkja Yfir 80 prósent öryrkja vilja vera virk á vinnumarkaði en bótakerfið og viðhorf atvinnurekenda stendur í veginum. Öryrki fær að meðaltali 175 þúsund krónur í mánaðarlaun. Fordómar og félagsleg einangrun er upplifun flestra öryrkja. EINN AF 23 ÞÚSUND Yfir 70 prósent öryrkja upplifa félagslega einangrun en 45 pró- sentum finnst þeir verða fyrir fordómum vegna örorku sinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI GUÐMUNDUR MAGNÚSSON „Til fatlaðs fólks teljast þeir sem eru líkamlega, andlega eða vits- munalega skertir eða sem hafa skerta skynjun til frambúðar sem kann, þegar víxlverkun verður milli þessara þátta og tálma af ýmsu tagi, að koma í veg fyrir fulla og virka þátttöku þeirra í samfélaginu á jafnréttisgrundvelli.“ Samningur Sameinuðu þjóð- anna um réttindi fatlaðra sam- þykktur 13. desember 2006. Skilgreining LÖGREGLUMÁL Steingrímur Þór Ólafsson, grunaður höfuðpaur í stóru skattsvikamáli, er kominn til landsins og hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 27. nóvember. Steingrímur var handtekinn á flugvelli á eyjunni Margarita í Venesúela í síðasta mánuði. Hann var þá á leið til Spánar. Í síðustu viku féllust þarlend yfirvöld á fram- sal hans til Íslands. Venesúelskur lögreglumaður flaug með hann til landsins í gegnum París og afhenti íslenskum lögreglumönnum á föstu- dag. Steingrímur er talinn vera mað- urinn á bak við 270 milljóna króna svik út úr virðisaukaskattkerfinu. Fjöldi manna hefur sætt gæsluvarð- haldi vegna málsins, þeirra á meðal fyrrverandi starfsmaður Ríkis- skattstjóra. Í húsleit vegna málsins lagði lög- regla hald á rúmlega ellefu kíló af hassi sem grunur leikur á að hafi verið í eigu Steingríms. Lögregla hefur meðal annars rannsakað hvort ágóðinn af svikunum hafi runnið til fíkniefnakaupa. Talið er að brot fólksins hafi stað- ið í vel á annað ár. - sh Venesúelskur lögreglumaður fylgdi meintum höfuðpaur skattsvikamáli til Íslands: Kominn heim og farinn í varðhald STEINGRÍMUR Í VENESÚELA Lögregla stillti sér upp með Steingrími eftir handtökuna ytra. VERSLUNARTÆKNI Mikið úrval af frábærum tilboðum - líttu við VIÐSKIPTI Fjármálaeftirlitið (FME) hefur alls kært 43 mál til sérstaks saksóknara frá stofnun síðarnefnda embættisins. Þar af hafa sextán mál verið kærð und- anfarið ár. Þetta er meðal þess sem fram kom á ársfundi FME í gær. Í máli Lilju Ólafsdóttur, stjórn- arformanns FME, kom fram að þegar hefði verið brugðist við athugasemdum sem fram komu í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis í garð FME. Hún sagði að ímyndunarafl og kunnátta fjármálamanna fyrir hrun hefði verið meira en svo að svifasein ríkisstofnun réði við það. Þeir hefðu verið eins og ungling- ar sem prófuðu allt sem þeir gátu en skildu ekki samfélags- lega ábyrgð sína. Snar þáttur í að bæta ástandið væri að fræða fjármálafólk um hætturnar sem stafað geti af gjörðum þess. Gunnar Þ. Andersen, forstjóri FME, sagði morgunljóst að frek- ari hagræðingu þyrfti í fjármála- kerfinu til að fyrirtækin skiluðu nægum arði. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, lagði í ræðu sinni áherslu á lagahyggj- una sem ríkti fyrir hrun. Banka- menn hafi verið sérfræðingar í að fara í kringum lögin en FME hafi einblínt á lagabókstafinn og ekki séð hvað var að. FME hafi verið hluti af vandamálinu og þurfi nú að vera hluti af lausn- inni. „Við skulum ekki halda að við getum tamið ljónið – við þurf- um að læra að lifa með því og vera ávallt meðvituð um hversu hættulegt það er. Og við þurfum að vernda almenning,“ sagði Árni Páll. - sh Forsvarsmenn Fjármálaeftirlitsins segja stofnunina hafa brugðist við gagnrýni í rannsóknarskýrslunni: FME verði hluti af lausninni en ekki vandanum STJÓRNARFORMAÐURINN Lilja Ólafs- dóttir sagði að þegar hefði verið brugð- ist við gagnrýni. FRÉTTABLAÐIÐ / PJETUR Ertu búin(n) að setja vetrar- dekk undir bílinn? Já 69,4% Nei 30,6% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ætlarðu að fara í leikhús í vetur? Segðu skoðun þína á visir.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.