Fréttablaðið - 16.11.2010, Side 10
16. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR
STJÓRNMÁL Hlutafé smálánafyrir-
tækja þarf að lágmarki að vera
ein milljón evra, sem svarar til
rúmlega 153 milljóna króna á
gengi dagsins, samkvæmt frum-
varpsdrögum efnahags- og við-
skiptaráðherra um lög um smá-
lánafyrirtæki.
Er leitast við að setja lagaum-
gjörð um starfsemi smálánafyr-
irtækja sem er sambærileg þeirri
sem gildir um fjármálafyrirtæki,
að því er segir í tilkynningu frá
efnahags- og viðskiptaráðuneyt-
inu.
Auk ákvæðis um hlutafé má
nefna að í frumvarpsdrögunum
er gert ráð fyrir þröngum skil-
yrðum um lánveitingar. Ólögráða
mega ekki fá lán né heldur fólk
sem hefur tekjur undir atvinnu-
leysisbótum. Þá mega þeir sem
samið hafa um sértæka skulda-
aðlögun eða greiðsluaðlögun
ekki taka smálán. Enn fremur má
aðeins afgreiða smálán á milli níu
og fimm á virkum dögum.
„Við höfum kallað eftir umgjörð
um starfsemina og fögnum því
að málið sé loksins komið í ferli,“
segir Leifur Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Kredia.
Kollegi hans hjá Hraðpening-
um, Skorri Rafn Rafnsson, tekur
í sama streng. Báðir upplýstu að
ár væri liðið frá því að þeir áttu
fundi með embættismönnum um
málið en hvorugur vildi tjá sig
um einstök ákvæði frumvarps-
draganna.
Ráðuneytið kallar eftir athuga-
semdum og ætla Leifur og Skorri
Rafn að koma sjónarmiðum sínum
á framfæri við ráðuneytið.
bjorn@frettabladid.is
Milljón evrur
í hlutafé til að
veita smálán
Smálánafyrirtækjum eru settar þröngar skorður í
frumvarpsdrögum. Smálánafyrirtæki fagna því að
málið sé komið í ferli en ætla að gera athugasemdir.
Með starfsemi smálánafyrirtækja er átt við starfsemi sem felst í að
veita allt að milljón króna lán.
■ Fjármálaeftirlitið veitir smálánafyrirtæki starfsleyfi.
■ Hlutafé smálánafyrirtækis skal að lágmarki nema einni milljón evra.
■ Stofnendur, stjórnarmenn og starfsmenn smálánafyrirtækja undirgangast
sömu hæfisskilyrði og gilda um fjármálafyrirtæki.
■ Smálánafyrirtæki skal tilgreina á vefsíðu nöfn og hlutfallslegt eignarhald
allra sem eiga fimm prósent eða stærri hlut í fyrirtækinu.
■ Smálánafyrirtæki á að meta greiðslugetu viðskiptavina. Ekki er heimilt að
veita lán til fólks sem ólögráða, er ekki fjár síns ráðandi, hefur meðal-
atvinnutekjur síðastliðna tólf mánuði undir lægstu atvinnuleysisbótum,
hefur gengið frá samningi um sértæka skuldaaðlögun á síðustu tólf
mánuðum, hefur hafið greiðsluaðlögunarumleitan eða lokið samningi um
greiðsluaðlögun.
■ Óheimilt er að greiða út lán til viðskiptamanns fyrr en 48 klukkustundir
eru liðnar frá samþykkt lánsumsóknar.
■ Móttaka og afgreiðsla umsókna um smálán er heimil frá níu til fimm
hvern virkan dag.
■ Lög um vexti og verðtryggingu gilda um vaxtakjör smálána.
■ Smálánafyrirtæki er skylt að hafa í gildi ábyrgðartyggingu vegna fjárhags-
tjóns sem leitt getur af gáleysi.
■ Smálánafyrirtæki skulu greiða 600 þúsund króna fastagjald vegna kostn-
aðar við eftirlit.
■ Smálánafyrirtæki skulu greiða 166 þúsund krónur fyrir leyfisbréf.
Helstu ákvæði frumvarpsdraganna
– Lifið heil
Danatekt
www.lyfja.is
DANATEKT línan er krem, húðmjólk
og hársápa fyrir alla fjölskylduna.
Kremin næra þurra og viðkvæma
húð og hlífa henni. Hársápan er svo
mild að hana má nota á allan líkamann.
Svansmerkið tryggir heilnæmi og gæði.
Án parabena ilm- og litarefna
Nánari upplýsingar á www.portfarma.is
Nýtt
í Lyfju
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
19
70
1
0/
10
Húsnæði Heilsugæslunnar
í Glæsibæ til sölu
Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hefur til sölumeðferðar allt
hlutafé Þrengsla ehf.
Þrengsli
Þrengsli ehf. er eignarhaldsfélag sem á fasteign nr. 226-2368
að Álfheimum 74, 3. hæð, 104 Reykjavík. Um er að ræða
tæplega 1.000 m2 að sameign meðtalinni. Fasteignin er í lang-
tíma útleigu og hýsir starfsemi Heilsugæslunnar í Glæsibæ sem
er hverfisstöð íbúa Voga og Heimahverfis.
Söluferlið
Boðið er til sölu allt hlutafé Þrengsla ehf. og er gert ráð fyrir að
það verði selt í einu lagi. Söluferlið er opið öllum áhugasömum
fjárfestum.
Fjárfestar sem óska eftir að taka þátt í söluferlinu skulu leggja fram
trúnaðaryfirlýsingu sem skilast til Fyrirtækjaráðgjafar Arion
banka á þar til gerðu formi. Í kjölfarið verða sölugögn afhent
fjárfestum.
Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka mun taka við skuldbindandi
tilboðum í hlutafé Þrengsla ehf. til kl. 16.00 fimmtudaginn 2.
desember næstkomandi.
Seljandi áskilur sér rétt til að i) gera breytingar á skilmálum
og/eða viðmiðum söluferlisins og/eða ii) ganga til samninga við
hvaða tilboðsgjafa sem hann kýs eða hafna öllum.
Frekari upplýsingar
Upplýsingar um söluferlið má nálgast hjá Fyrirtækjaráðgjöf
Arion banka í síma 444-6805 eða með því að senda tölvupóst á
fyrirtaekjaradgjof.threngsli2010@arionbanki.is.
GOÐSAGNIR UM
SPARPERUR
„... eru of lengi að ná fullu birtustigi“
Þessi staðhæfing á ekki við um OSRAM perur.
OSRAM DULUX® perur sem merktar eru með
einkaleyfisverndaðri QUICK START
tækni, verða bjartar allt að tvöfalt
hraðar en venjulegar sparperur.1
Endursöluaðilar um land allt osram.is
Jóh
an
n Ó
laf
sso
n &
C
o
Auglýsingasími
UTANRÍKISMÁL Aðeins þrjú skjöl finnast í forsætisráðu-
neytinu sem tengjast ákvörðun forsætisráðherra og
utanríkisráðherra um stuðning Íslands við
innrás Bandaríkjanna í Írak í mars 2003.
Skjölin verða ekki afhent fjölmiðlum.
Samkvæmt upplýsingum frá forsæt-
isráðuneytinu er um að ræða eina fund-
argerð ríkisstjórnarfundar og tvö
vinnuskjöl, sem eru undanþegin
upplýsingalögum.
Þessi skortur á skriflegum
gögnum um aðdragandann og um
ákvörðunina, er í takti við gagn-
rýni rannsóknarnefndar Alþingis
á íslenska stjórnsýslu, segir Ómar
Hlynur Kristmundsson, prófessor í
opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands. Í svari for-
sætisráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins kemur
fram að skjölin þrjú verði afhent utanrík-
ismálanefnd Alþingis. Utanríkisráðu-
neytið birti fyrir helgi lista með skjölum
sem tengjast ákvörðuninni. Aðeins lítill
hluti gagnanna tengdist málinu beint,
stór hluti var til dæmis úrklippur
úr erlendum dagblöðum. - bj
Skortur á gögnum um Íraksmálið sagður í takti við gagnrýni rannsóknarnefndar:
Þrjú skjöl í forsætisráðuneyti
ÁKVÖRÐUN Davíð Oddsson og Hall-
dór Ásgrímsson ákváðu í mars 2003
að Ísland færi á lista yfir viljugar þjóð-
ir sem studdu hernað Bandaríkjanna
í Írak. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BÚRMA, AP Aung San Suu
Kyi, leiðtogi Lýðræðis-
flokksins í Búrma, tók til
óspilltra málanna í gær við
að undirbúa endurkomu
sína í stjórnmál landsins.
Hún byrjaði á að ræða
við lögfræðinga um leiðir
til þess að fá stjórnmála-
flokk sinn skráðan á ný.
Í viðtali við BBC sagðist
hún enn vilja lýðræðisbyltingu
í Búrma, en tók fram að sú bylt-
ing yrði að vera friðsam-
leg. Hún sagðist ekki vera
hrædd þótt hún gerði sér
fulla grein fyrir að her-
foringjastjórnin gæti sett
hana í fangelsi aftur.
Suu Kyi var látin laus úr
stofufangelsi á laugardag,
en hún hefur verið fangi
herforingjastjórnarinnar
í landinu í samtals fimmt-
án af síðustu tuttugu árum.
- gb
Suu Kyi undirbýr endurkomu í stjórnmálin í Búrma:
Óttast ekki herforingjana
AUNG SAN SUU KYI