Fréttablaðið - 16.11.2010, Side 20
16. NÓVEMBER 2010 ÞRIÐJUDAGUR2 ● fréttablaðið ● tíska og lífsstíll
Flottur jakki úr
ekta leðri. Frá
Kultur menn
í Kringlunni.
82.990 krónur.
● SKAPARAR TÍSKUNNAR ÚTLISTAÐIR Biblía tískunnar, Women‘s Wear
Daily, gaf nýverið út bók yfir helstu tískustrauma og hönnuði frá upphafi. Bókin tekur
fyrir hin ýmsu tískufyrirbrigði sem hafa mótað tískuna og má þar til dæmis nefna
kvenréttindakonurnar, viðskiptakonur í jakkafötum og mínipils. Bókin útlistar jafnframt
þá hönnuði sem mótað hafa tískuna með hönnun sinni og skiptir litlu hvort áhrifin voru
góð eða slæm, þau hafi haft mikið að segja um mótun tískunnar í heild sinni. Meðal þeirra
sem sköpuðu nýja tísku er Coco Chanel, en áhrif hennar ná langt út fyrir tísku og hönnun og
hafa mótað ákveðin lífsstíl.
Gabrielle Bonheur „Coco” Chanel skapaði ákveðinn lífsstíl
með hönnun sinni.
●EINFÖLD VIÐAR-
HÚSGÖGN ANOTHER
COUNTRY Another Country
hannar og framleiðir húsgögn
á litlu verkstæði í Dorset í Eng-
landi. Fyrsta húsgagnalína
Another Country, Series one,
var kynnt nú í haust og er inn-
blásturinn sóttur til breskra
sveitaheimila, kvekara og til
skandinavískrar og japanskr-
ar hefðar í notkun viðar í hús-
gagnahönnun. Series one sam-
anstendur af borðum, bekkjum
og þrífættum kollum, úr gegnheilli vaxborinni eik. Formin eru einföld og
engar skrúfur eða festingar sjáanlegar.
Hönnun Another Country hefur hlotið talsverða athygli og hefur til að
mynda ratað inn á síður hönnunar- og lífsstílstímarita svo sem nóvem-
bertölublaðs Wallpaper, Veftímaritsins DeZeen og Bo bedre svo einhver
séu nefnd. Sjá nánar á www.anothercountry.com þar sem einnig er
hægt að panta húsgögnin til kaups.
Beddi sem nýtist vel sem sæti undir nokkra
gesti, eða sem gestarúm. Dýnan hvílir laus
ofan á og með því að kippa henni af er
beddinn orðinn að sófaborði.
MYND/ANOTHER COUNTRY
● SKORPAN HOLL Skorpa sem myndast á brauði við bakstur er
býsna merkilegt fyrirbæri. Fyrir utan að verja brauðið skemmdum að ein-
hverju leyti inniheldur skorpan ýmis efni sem eru líkamanum holl. Vís-
indamenn telja að við bakstur myndist efni (pronyl-lísín) í skorpunni sem
hafi áhrif á mikilvæg ensím í líkamanum. Þau ensím hafa aftur jákvæð
áhrif á varnir líkamans. Gildir þar einu hvort
ger er notað í baksturinn eða ekki.
Meira finnst af efninu í brauði sem
er úr dökku korni en ljósu.
Baksturinn á brauðinu skiptir
máli. Þykk skorpa inniheldur
meira af pronyl-lísíni en þunn
en ef hún er ofbökuð og
liggur við bruna minnkar vægi
þess í skorpunni.
John Christopher Depp, betur þekktur sem Johnny Depp, er margt til lista
lagt. Auk þess að vera mikils metinn leikari er hann í hljómsveit, fram-
leiðir sitt eigið vín og á hlut í veitingastað. Johnny Depp er einnig sá
karlmaður sem mörgum þykir klæða sig hvað best, enda hefur Johnny
sérstæðan fatastíl sem heillar bæði karlmenn og konur. Fréttablaðið
leit við í Kringlunni og stal stíl Johnny Depp. - jbá
Steldu stílnum: Johnny Depp
Sérstæður stíll Depp
Gæjalegar
gallabuxur
frá Levi‘s
Kringlunni,
14.990 krónur.
Gallaskyrtur hafa verið vinsælar
síðustu misserin. Þessi fæst
í Marc O-Polo í Kringlunni
og kostar 14.900 krónur.
Það geta allir verið
svalir með flott-
an hatt. Þessi er
úr Spútnik og
kostar 6.900
krónur.
Klútur fyrir bæði konur
og karla frá Marc O‘Polo á 2.900
krónur.
Depp gengur
með Oliver People
gleraugu en þau fást
í versluninni Auganu.
Þessi eru á 44.700
krónur.
Svalir leðurskór á 49.990 krónur.
Þessir fást í Kultur menn og eru úr
ekta leðri og að mestu hand-
gerðir.
Johnny
Depp fer
ekki alltaf
hefðbundnar
leiðir í fata-
vali.
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín