Fréttablaðið - 23.11.2010, Blaðsíða 2
2 23. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR
MENNINGARMÁL Listasafn Einars
Jónssonar undirbýr nú bygg-
ingu tengihúss á austanverðri lóð
safnsins á Skólavörðuholti. Studio
Grandi hefur hannað frumgerð að
viðbyggingunni.
Júlíana Gottskálksdóttir, for-
stöðumaður Listasafns Einars
Jónssonar, segir ekki tímabært
að greina frá því hverjar séu fyrir-
ætlanir safnsins. Í tillögu sem
send var skipulagsyfirvöldum í
Reykjavík kemur hins vegar fram
að unnið hafi verið að málinu síðan
vorið 2008.
„Niðurstaðan er sú að raun-
hæfasti kosturinn sé að byggja
við austurálmu, á milli aðalhúss
og garðhúss. Viðbyggingin er því
tengibygging en jafnframt annar
inngangur í safnið fyrir hreyfi-
hamlaða og þá sem koma frá garði
til dæmis hópa. Í húsinu verður
jafnframt nauðsynleg aðstaða sem
nú vantar í safnið,“ segir í greinar-
gerð.
Borgarminjavörður segir
nýbygginguna taka tillit til beggja
húsanna á lóðinni og til umhverfis-
ins. Húsafriðunarnefnd segir við-
bygginguna falla vel að byggingar-
list safnsins og að hún sómi sér
einnig sem sjálfstætt höfundar-
verk.
Hnitbjörg eru friðuð. Elsti hluti
hússins var reistur 1916 en hliðar-
salirnir báðir voru ekki komnir
fyrr en 1937. Laust eftir síðari
heimsstyrjöldina var síðan byggt
garðhús við austurmörk lóðarinn-
ar. Það hús þjónar sem skrifstofa
starfsmanna listasafnsins. Nýja
viðbyggingin á að tengja þetta
garðhús við aðalbygginguna.
„Efnisnotkun verður sótt í það
sem fyrir er á staðnum, skelja-
sandssteining eins og Hnitbjörg,
grásteinsklæðning í framhaldi af
mosavöxnum garðhleðslum auk
koparklæðningar, viðar, sjón-
steypu og glers,“ segir í greinar-
gerð með tillögunni þar sem ítrek-
að er að núverandi hönnun sýni
form og umfang tengibyggingar-
innar aðeins í grófum dráttum.
Fram kemur að áhersla sé lögð
á að aðalinngangurinn í Hnitbjörg
haldi sér: „En vegna aðgengis
hreyfihamlaðra er opnuð leið
eftir hallandi gangstíg niður að
nýrri tengibyggingu og þaðan inn
á neðri hæð safnsins. Aðkoma frá
garði er sömuleiðis um tengibygg-
ingu inn í afgreiðslu og safnbúð,
en þar til hliðar er salernisaðstaða
og fatahengi. Aðrir húshlutar eru
lítill sýningarskáli næst garðhúsi
og stærra rými meðfram austur-
mörkum lóðar fyrir geymslu verka
og vinnuaðstöðu.“ gar@frettabladid.is
Byggt við Hnitbjörg til
að bæta aðgengi gesta
Listasafn Einars Jónssonar áformar að reisa tengibyggingu við hið friðaða hús
Hnitbjörg til að bæta aðgengi. Studio Grandi hefur hannað frumgerð byggingar-
innar. Húsafriðunarnefnd gerir ekki athugasemd við áætlanir listasafnsins.
EINAR JÓNSSON
MYNDHÖGGVARI
JÚLÍANA GOTT-
SKÁLKSDÓTTIR
HNITBJÖRG Á þessari samsettu mynd Fréttablaðsins sést hvar viðbyggingunni við
Hnitbjörg er ætlað að rísa samkvæmt útfærslu Studio Granda. SAMSETT MYND/JÓNAS
Hanna, ertu nokkuð fædd
með silfurskeið í munni?
„Það held ég alveg örugglega ekki,
enda er betra að þurfa að hafa
svolítið fyrir hlutunum.“
Hanna Pálsdóttir myndlistarkona sýndi
lesendum Fréttablaðsins í gær stóra
framreiðsluskeið úr silfri sem henni þykir
afar vænt um og hún erfði eftir Sigur-
borgu Sigurðardóttur ömmu sína.
LÖGREGLUMÁL Fimm rándýrum úlpum var stolið frá
skólabörnum í Valhúsaskóla í gærmorgun. Stúlka
náðist á mynd í öryggismyndavél, þar sem hún var
að skoða úlpurnar og velja úr þær sem hún síðan
tók með sér út. Málið var kært til lögreglu í gær.
„Þetta gerðist allt mjög hratt og ég held að
enginn sé óhultur. Við erum bara óheppin,“ segir
Guðlaug Sturlaugsdóttir, skólastjóri í Valhúsaskóla.
Úlpurnar sem stolið var voru frá 66°Norður og
slíkar flíkur kosta allt að sjötíu þúsund krónum.
„Það eru læstir skápar í skólanum, sem öll börn-
in geta notað. Við munum svo sannarlega bregðast
við þessu,“ segir Guðlaug um viðbrögð skólans við
þjófnaðinum. „Vitaskuld er það ansi hart að þurfa
að gera ráð fyrir að svona lagað geti komið fyrir.
En við verðum að horfast í augu við það.“
Guðlaug segir að einungis úlpur stúlkna hafi
verið teknar. Stúlkan sem náðist á mynd hafi sést
koma þrisvar inn í fatahengið þegar enginn hafi
verið á svæðinu. Svo sýndist sem hún hefði kannað
hvort úlpurnar væru merktar áður en hún tók þær.
„Við viljum brýna fyrir foreldrum barnanna að
merkja úlpurnar þeirra almennilega,“ segir Guð-
laug og bætir við að merkingarnar þurfi að vera
óafmáanlegar. - jss
VALHÚSASKÓLI Úlpuþjófurinn náðist á öryggismyndavél.
Nemendur Valhúsaskóla urðu fyrir barðinu á bíræfnum þjófi:
Stal fimm rándýrum úlpum
Efnisnotkun verður
sótt í það sem fyrir er
á staðnum, skeljasandsstein-
ing eins og Hnitbjörg.
GREINARGERÐ UM VIÐBYGGINGU
SAFN EINARS JÓNSSONAR
LÖGREGLUMÁL Heimabrugg virðist
hafa aukist talsvert að undanförnu
og hefur lögreglan haft í nokkru að
snúast í þeim málum.
Bruggverksmiðjur eru jafnvel
farnar að skjóta upp kollinum, að
því er Geir Jón Þórisson yfirlög-
regluþjónn segir.
„Við tókum heilmikið hér um
daginn og þetta er alltaf að koma
upp af og til. Í þessu stóra tilviki
var framleiðslan meira að segja
sett upp í sérhúsnæði.“
Hann játar því að ástandinu sé
farið að svipa til þess sem við-
gekkst hér á landi á árum áður.
„Það mátti alveg búast við því.
Þegar vökvinn er dýr leita menn í
eitthvað ódýrara.“
Geir Jón segir að þó lögregla sé
ekki í opinberu átaki gegn bruggi
berist henni fjölmargar ábending-
ar sem hún svo vinnur úr.
Eins og fram kom í Fréttablað-
inu í gær er talsvert um neyslu á
heimabrugguðu áfengi, sem virð-
ist haldast í hendur við minni sölu,
auknar álögur og hækkandi útsölu-
verð. Samkvæmt könnun Capac-
ents fyrir Samtök atvinnurek-
enda hafa þrjú af hverjum fjórum
ungmennum á aldrinum 16 til 19
ára neytt eða orðið vör við brugg-
neyslu síðustu 12 mánuði. - þj
Fleiri bruggmál hafa komið til kasta lögreglunnar að undanförnu:
Viðbúið að sótt sé í bruggið
MEIRA BRUGG Heimabrugg hefur
aukist talsvert að undanförnu að sögn
lögreglu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
AFGANISTAN Mikið skortir upp á
að liðsmenn lögreglu og hers séu
færir um að taka að sér umsjón
öryggismála í Afganistan. Á leið-
togafundi Atlantshafsbandalags-
ins, sem haldinn var í Portúgal
fyrir helgi, kom fram að vonir
stæðu til að heimamenn í Afgan-
istan yrðu árið 2014 orðnir færir
um að sinna þessum störfum svo
erlenda herliðið gæti yfirgefið
landið.
Meðal þess sem stendur í vegi
fyrir því að heimamenn geti
tekið við öryggismálum er lestr-
arkunnátta heimamanna. Ein-
ungis 11 prósent afganskra her-
manna og lögreglumanna eru
læs. Læsi meðal yfirmanna er
ekki nema 35 prósent. Í samræmi
við þetta hefur lestrar- og skrift-
arkennsla verið fyrirferðarmest
í þjálfun hermanna.
Ólæsið veldur margvíslegum
erfiðleikum í daglegum verkum
hermanna og lögreglumanna. - gb
Afganar með öryggismálin:
Lestrarkennsl-
an er í forgangi
AFGANSKIR HERMENN Aðeins tíundi
hver liðsmaður afganska hersins og
lögreglunnar er læs. NORDICPHOTOS/AFP
ÍRLAND Daginn eftir að írsk stjórn-
völd þáðu boð Evrópusambands-
ins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
um neyðaraðstoð setti Evrópusam-
bandið þau skilyrði að Írar yrðu
að fara út í harkalegar aðhalds-
aðgerðir í ríkisfjármálum.
Írska stjórnin tilkynnti jafn-
framt í gær að bönkum í landinu
yrði fækkað, sumir yrðu seldir og
aðrir sameinaðir.
Óljóst er hvort írska stjórnin
lifi nú út kjörtímabilið, því Græn-
ingjaflokkurinn, lítill flokkur sem
tekur þátt í stjórnarsamstarfi með
stóra flokknum Fianna Fáil, flokki
forsætisráðherrans. Brians Cowen,
segist vilja kosningar í byrjun
næsta árs.
ESB hefur boðist til að greiða
Írum allt að 60 milljarða evra, og
AGS býður allt að helming þeirrar
fjárhæðar í viðbót. Bretar hafa
sömuleiðis lofað nágrönnum sínum
8,1 milljarði evra í lán og Svíar
segjast einnig reiðubúnir að lána
1,1 milljarð evra. - gb
Írum settar strangar kröfur:
Græningjar
vilja kosningar
ÞINGMENN GRÆNINGJA Græningjar, litli
samstarfsflokkurinn í ríkisstjórn Brians
Cowen, segjast vilja leysa upp þing í
janúar og boða til kosninga. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI Framtakssjóður
Íslands, KEA, Stefnir, Auður
Capital, bandarískir eigendur
Eimskips og Saga Fjárfestingar-
banki eru á meðal þeirra sem
gert hafa tilboð í Haga. Fyrri
eigendur hvorki neita því né játa
að vera í hópi áhugasamra. Þetta
kom fram í fréttum Stöðvar 2 í
gær.
Arion banki auglýsti í október
eftir tilboðum í Haga. Tíu óskuld-
bindandi tilboð bárust, bæði frá
innlendum og erlendum aðilum.
- þþ
Töluverður áhugi á Högum:
Tíu hafa gert
tilboð í Haga
Vara við skreiðarsvindlara
Sendiherra Nígeríu, Kemafor Nonyer-
em Chikwe, hefur varað skreiðarselj-
endur við ólögmætum viðskiptahátt-
um með íslenska skreið. Breti sem
svikið hefur nígeríska skreiðarkaup-
endur árum saman í sýndarviðskipt-
um með skreið frá Íslandi er staddur
hér á landi, að sögn sendiherrans og
samkvæmt frétt frá Íslandsstofu.
LÖGREGLUMÁL
Hálfnaðir með ýsuna
Krókaaflamarksbátar hafa veitt 4.513
tonn af ýsu það sem af er fiskveiðiár-
inu, sem eru 47 prósent af úthlutuð-
um heimildum. Alls hafa þeir bætt
við sig 625 tonnum með því að leigja
heimildir úr aflamarkskerfinu, en á
síðasta fiskveiðiári juku þeir ýsuheim-
ildir sínar um alls 2.794 tonn með
leigu aflaheimilda.
SJÁVARÚTVEGUR
SPURNING DAGSINS
Ástrós
Tryggjum ungu fólki
áhrif við gerð nýrrar
stjórnarskrár.
stjórnmálafræðingur
Framboð til stjórnlagaþings
Gunnlaugsdóttir
astrosg.is„Ég borga þessa auglýsingu úr eigin vasa“.